Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2000, Blaðsíða 74
78
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
y'H
rv..J^' Gítarinn eht.Ý
'a Laugavegi45,l^
A, sími552-2125og895-9376.«
VT Kassagitarar
51 ÍÆSkt, f«-á 7.900 kr.
og snúra.
lY* Áður 40.400 kr.
Nú 27.900 kr. / | W3^ ^
Ej|gjSaj| \ Hljómborö
frá 3.900^.
Völusteinn 10 ára
he?"n *em
hfur slegia
a. 1 Zegn!
aftn*«st/;boð.
s*gr.
kr- 3í.977
Husqvarna Viking Sarah
® VOLUSTEINN
Völusteinn / Mörkinni 1/108 Reykjavík
Sími 588 9505 / www.voIusteinn.is
20% afsláttur af
öllum borðstofusettum
og sófaborðum til jóla.
í Míru
30% afsláttur af
postúlíni og glösum.
^Bæjarlind 6, simi 554 6300
www.mira.is
ÞstTLu
aá hitta
Hann verbur til vibtals
í NESTI í dag!
NESTI Lækjarq. Hafnarf.,
kl. 10-12,
NESTI Geirsgötu,
kl. 13-15,
NESTI Ártúnshöfða,
kl. 16-18
Olíufélagið hf
www.esso.is
'
Tilvera
I>V
Fylgjur og
fvrirboðar
- þeir sem hafa kvikindi eða skrímsli sem fylgju séu af óhræsisættum
Það er gömul þjóðtrú að allir eigi
sér sérstaka fylgju sem fer með
þeim hvert sem þeir fara. Fylgja á
sér reyndar tvær merkingar í ís-
lensku, þ.e.a.s. ósýnileg vera, maður
eða dýr, sem fylgir fólki eða ættum,
og hins vegar bamsfylgja eða fóstur-
himna. Þrátt fyrir merkingarmun-
inn eru fyrirbærin skyld.
Hér á landi hefur því lengi verið
trúað að ósýnilega veran ætti upp-
runa sinn í bamsfylgjunni og að
það þyrfti að koma henni sérstak-
lega fyrir.
1 Þjóðháttum Jónasar á Hrafna-
gili segir að það megi alls ekki kasta
barnsfylgjunni á víðavang því þá
gátu iÚir andar náð valdi á henni
eða dýr étið hana og átti andinn eða
dýr síðan að fylgja baminu. Ekki
þótti heldur ráðlegt að grafa hana í
jörðu nema fergja hana með grjóti
þvi annars gátu hundar eða önnur
rándýr grafið hana upp og étið.
Einnig var sagt að það dýr sem fyrst
stigi yfir staðinn sem fylgja var
grafin á mundi fylgja barninu. Ör-
uggast þótti að brenna fylgjuna og
þá átti ljós eða stjama að fylgja við-
komandi einstaklingi.
Samkvæmt forni trú átti fylgjan
að vera eitthvað í líkingu við lund-
arfar þess sem hún tilheyrði. Sigfús
Sigfússon þjóðsagnasafnari segir að
hyggnir foreldrar hafi grafið barns-
fylgjuna undir þröskuldi þar sem
móðir barnsins gekk mest yfir.
andi kemur í heimsókn. Til er fjöldi
þjóðsagna sem segir frá því þegar
ættarfylgjur gera vart við sig.
Þórður Tómasson í Skógum segir
frá í bók sinni, Gestir og gangandi,
að á fögrum sumardegi 1991 hafi
vinur hans komið að Skógum.
„Skömmu eftir brottför hans spurði
mágur minn, Magnús Tómasson:
„Hvernig er það, fylgir eitthvað
honum Vilhjálmi?" „Hvers vegna
spyrðu þess?“ sagði ég. „Jú, við átt-
um góðan heimiliskött. Nokkru
áður en Vilhjálmur kom,
þennan sama dag, var
kötturinn einn sín liðs
á túnblettinum fram-
an við íbúðarhúsið
okkar á Skógum.
Skyndilega ýfðist á
honum hvert hár
eins og gerist þegar
hundur stendur
framan í ketti. Ég
sagði Vilhjálmi þetta
við næstu samfundi
okkar. Hann hló við og
sagði: „Þetta kemur mér ekki
á óvart, Hörglands-Móri fylgir mér.“
Flestar fylgjur sem eru í dýralíki
þykja illar nema ef um bjarndýr er
að ræða. Þar að auki er sagt að þeir
sem hafa kvikindi eða skrímsli sem
fylgju séu af óhræsisættum.
Draugar frá Islandi fara aftur
helm
ann nálgist fylgjurnar þá og á
dauðastundinni er sagt að þær séu
komnar aftur fyrir þá. Einnig er
sagt að ef fylgja manns gerir vart
við sig eftir að viðkomandi kemur í
heimsókn sé hann feigur.
Tvær sögur um fylgjur
Fylgjur manna geta verið æði mis-
munandi og er sagt „að maður einn
væri í Mýrasýslu sem móðir hans
fylgdi, en af því svo margt illt þótti af
henni standa þar sem hann
kom gátu héraðsmenn að
lokum ekki hýst hann.
Önnur sögn, og úr
sama héraði, er að
þar var maður sem
Magnús hét. Hann
var bæði holds-
veikur mjög og þar
á ofan illhryssing-
ur. Einu sinni var
hann fluttur til lækn-
is og var komið með
hann að Borg á Mýrum og
lofað að vera nætursakir. Það-
an var farið með hann að Ánabrekku
og féll þá af honum annar fóturinn og
dó hann þá skömmu síðar. Prófasts-
konuna, sem þá var á Borg, hryllti
mjög við honum. Næstu nótt dreymdi
hana að hann kæmi þangað aftur,
enda var komið með fótinn af honum
til kirkjunnar daginn eftir, en það
átti að vera fylgja Magnúsar sem bar
fyrir hana í svefni."
Gestafylgjur
Upphaflega voru fylgjur eins kon-
ar verndarar mönnum til heilla. Eft-
ir að kristni var lögtekin í landinu
og kirkjunnar menn fóru að atast i
fornum vættum fór að dofna yfir
heillafylgjunum og þær breyttust í
uppvakninga, afturgöngur eða ætt-
arfylgjur, móra og skottur. í seinni
tíð eru fylgjur draugar sem fylgja
ákveðnu fólki eða ákveðnum ættum
og láta gjarnan vita af sér á undan
heimsóknum. Það er gömul trú að
hver og einn eigi sína fylgju sem
gerir vart við sig áður en viðkom-
í safni Stofnunar Áma Magnús-
sonar er til frásögn Vestur-íslend-
ings sem segir að það hafi fjöldinn
allur af draugum fylgt vesturfórun-
um á sínum tíma. Eftir að húsbóndi
fylgjunnar dó leiddist draugunum
fyrir vestan haf og flestir þeirra fór
aftur heim um leið og tækifæri
gafst.
Samkvæmt Þjóðsögum Jóns
Árnasonar gat deyjandi maður gefið
þeim sem hann vildi fylgju sína.
Þetta er reyndar í ósamræmi við þá
hugmynd að fylgjan deyi um leið og
húsbóndi hennar. Sumir segja aftur
á móti að þegar merm nálgast dauð-
Fylgjulykt
Menn þykjast oft verða varir við
fylgjur þótt þeir séu ekki sjáendur né
að þá dreymi fyrir gestakomu. Verða
menn þá varir við einkennilega lykt
sem sumir segja að líkist súru smjöri
og heitir það fylgjulykt. Ef óvenjuleg-
ur drungi eða þreyta leggst yfir menn
um miðjan dag er það kallað aðsókn
og getur hún bæði verið góð eða
slæm. Áður fyrr var talið gott ráð að
skyrpa í allar áttir og fussa og sveia
tO að hrekja í burt slæmar fylgjur.
-Kip