Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
31
Helgarblað
DV
DV-MYND BRINK
Maöur meö völd
„Það er erfitt að leika menn með völd, “ segir Björn Ingi. „Manni finnst þeir þurfa að sýna völd sín á einhvern hátt en svo uppgötvaði ég að þegar völdin eru til staðar
hefur maður ekkert fyrir þeim; þau eru til staðar eins og fötin sem maður gengur /', sjálfgefin. Ég ákvað að reyna að skapa mjúkan, skemmtilegan og þægilegan mann.
Pétur er í raun mjög góður maður með ákveðna lífsstefnu. Textinn sér um afganginn; allt sem hann aðhefst og segir ber merki um valdníðslu og misbeitingu. ‘
Mjúkt og þœgilegt illmenni
„Undir lok fundarins er borin
upp tillaga þar sem því er lýst yfir
aö Dr. Stokkmann sé fjandmaöur
fólksins. Þá spyr Ásláksen fundar-
stjóri hvort einhver sé þessu mót-
fallinn. Ég hef heyrt á fólki að því
þyki erfltt að sitja undir þessu en á
síðustu sýningu gerðist það að kona
í salnum rétti upp hönd sína til að
mótmæla. Fólk lifir sig því mjög
inn í verkið.“
... eitthvað eins og guð
Þegar æfingum fyrir Fjandmann-
inn lauk í vor hófust æfmgar á Beð-
ið eftir Godot eftir Samuel Beckett
en þar fer Björn Ingi með hlutverk
Pozzo. „Beðið eftir Godot er ótrú-
legt leikrit," segir Björn Ingi. Björn
Ingi hafði ekki áður komið nálægt
írska stórskáldinu en hugmyndin
að uppsetningunni kviknaði þegar
Peter Engkvist kom hingaö til lands
og var að klippa saman sjónvarps-
útgáfu af Ormstimgu. „Ég vann
með Peter í Lofthrædda erninum
Örvari og við höfum haldið sam-
bandi síðan og vorum alltaf að leita
okkur að verkefni til að takast á
við. Á æfingum á Djöflunum fékk
ég hugboð um Godot og nefndi þaö
við Peter sem sagði að sig hefði
lengi langað til að setja það upp.
Eitt leiddi af öðru og verkið komst
á svið.
Þaö er hægt að setja verkið upp á
milljón vegu. En Beckett skrifar
miklar og nákvæmar leiklýsingar
og eins og ég upplifði verkið þá
fannst mér að því minna sem ég
þvældist fyrir og leyfði verkinu
frekar að streyma í gegnum mig því
betur kynntist ég verkinu. Plottið
er ekki mjög flókið, tveir menn bíða
og tveir koma tvisvar í heimsókn.
Stundum finnst mér Beckett vera
að hlæja að okkur, mér og þér og
öllum. Við erum skrýtin og höfum
mjög sterka þörf fyrir að trúa því
að það sé tO eitthvað sem er eins og
guð. Við verðum helst að sjá hann,
Björn Ingi Hilmarsson fer
á kostum í hlutverki hins
ósvífna stjórnmálamanns
í Fjandmanni fólksins
langaði líka að leika með Ingvari en við
vorum saman í bekk í Leiklistarskólan-
um. Það var lika frábært að leika á móti
honum.“
Við sköpun persónunnar leit Björn
Ingi í kringum sig eftir fyrirmyndum og
þá sérstaklega í heimi íslenskra stjóm-
mála. „Þó maður sé ekki sammála
stjómmálamönnum þá hafa þeir allir
svo oíboðslega „rétt“ fyrir sér því þeir
eru svo trúaðir á eigin orð. Maður hrist-
ir stundum hausinn yfir þessu fyrir
framan sjónvarpið.
Pétur vill hafa fólk með sér í flokki en
bróðir hans er meiri hugsjónamaður.
Dr. Stokkmann veður eld og brennistein
fyrir hugsjónir sinar og tapar öllu.“
Bæði rétt og rangt
í Fjandmanni fólksins beinir Ibsen
spjótum sínum meðal annars að fjöl-
miðlum sem bæjarstjórinn Pétur Stokk-
mann vinnur á sitt band með hræðslu-
áróðri og snjöllum brögðum sem í dag
yrðu tengd við almannatengsl. Stokk-
mann Björns Inga ber nokkur merki
þess að hafa fengið ráðleggingar frá al-
mannatengslasérfræðingum, hann er
mjög nútímalegur stjómmálamaður.
„Pétur notar öölmiðla meðvitað til að
halda völdum. Fjölmiðlar hafa svo mik-
ið vald, við myndum okkur skoðanir
með þeim upplýsingum sem fjölmiðlar
færa okkur,“ segir Bjöm Ingi. „Valdið
hefur opinberað sig mjög eftir hryðju-
verkaárásimar á Bandarikin. Ef ég styð
ekki árásir á Afganistan þá styð ég tali-
bana. Leikritið Ballar að sumu leyti um
það að tvö sjónarmið geta bæði verið
rétt eða röng.“
Afl ffyrir Austurland
Það kemur fyrir að maður verður
pirraður í leikhúsi. Oftast er þá um
að kenna að það sem fram fer á
sviðinu er leiðinlegt eða illa gert.
Ég viðurkenni að ég varð pirraður
í fyrsta atriði eftir hlé á Fjand-
manni fólksins. En pirringur minn
og eflaust margra annarra var ekki
vegna „listræns ágreinings" heldur
vegna þess aö réttlætiskenndin var
Ingvar og Björn Ingi í gervi Stokkmann-bræöranna
„Mig langaði líka að leika með Ingvari en við vorum saman í bekk í Leiklistar-
skólanum. Það var líka frábært að leika á móti honum. “
kvalin vegna framferðis Péturs
Stokkmanns og skósveina hans. At-
riðið er sett þannig upp að áhorf-
endur eru í hlutverki fundarmanna
á fundi sem Dr. Stokkmann hefur
boðað til. En atburðarásin er á svip-
aða leið og þegar virkjanasinnar á
Austurlandi yfirtóku aðalfund Nátt-
úruverndarsamtaka Austurlands
þegar sem hatrammastar deilur
stóðu yfir vegna virkjanamála.
vita hvemig hann lítur út, hvort
hann er með skegg og þá hvernig
það er á litinn, hvenær hann kem-
ur og hvað hann segði. Það er svo
margt sem hægt er að segja um
leikritið Beðið eftir Godot. Það vek-
ur upp spumingar sem hver og
einn verður að svara fyrir sig.
Verkið hafði mikil áhrif á mig og er
eitt skemmtilegasta leikrit sem ég
hef fengist við.“ -sm
„Þetta var dauður, þriðja flokks
smábær. í dag erum við í þann mund að
verða alþjóðlega þekktur heilsubær. Ég
sé það fyrir mér að innan flmm ára hafi
tekjur hvers einasta manns í þessari
stofu vaxið hreint gífurlega. Ég sé fyrir
mér að skólamir okkar verði stærri og
betri. Og innan tíðar verður hér í bæn-
um fullt af glæsivögnum, hér verða
byggð glæsileg heimili, fyrsta flokks
búðir verða opnaðar eftir endilangri að-
algötunni. Ég sé fyrir mér að ef við
sleppum við rógburð og illkvittnar árás-
ir verðum við einhver rikasti og falleg-
asti heilsubær í veröldinni. Þetta eru
valkostir ykkar.“
Það eru tæp 120 ár frá því þessi orð
vom skrifuö af Henrik Ibsen en þau get-
ur fólk fengið að heyra í Borgarleikhús-
inu í magnaðri sýningu á Fjandmanni
fólksins í leikstjóm Maríu Kristjáns-
dóttur. í verkinu er það bæjarstjórinn
Pétur Stokkmann sem mælir þessi orð.
Meðal þess sem gerir sýninguna sterka
og sérstaka er hversu vel umfjöllunar-
efni verksins á við á íslandi einmitt um
þessar mundir. Raunar væri hægt að
fuUyrða að éf verkið væri skrifað af ís-
lendingi á síðustu missemm logaði hér
allt í illdeilum og mörgum þætti harka-
lega að sér vegið. Sérstaklega væri við-
búið að skeyti myndu fljúga milli virkj-
ana- og vemdunarsinna. Umflöllunar-
efni verksins er lýðræðið og í þvi heyr-
um við óvenju beinskeytta gagnrýni á
galla lýðræðisins. „Hafði meirihlutinn á
réttu að standa þegar hann stóð hjá
meðan Jesús var krossfestur?" spyr Dr.
Stokkmann. „Hafði meirihlutinn á réttu
að standa þegar hann neitaði að trúa því
að jörðin snerist um sólina og lét kné-
setja Galileó eins og hund? Það tekur
meirihlutann fimmtíu ár að komast á
rétta skoðun. Meirihlutinn hefur aldrei
rétt fyrir sér fyrr en hann breytir rétt."
Valdníðsla og misbeiting
Bjöm Ingi Hilmarsson fer með hlut-
verk hins sleipa stjómmálamanns, Pét-
urs Stokkmanns, sem berst af fullri
hörku gegn bróður sínum sem honum
fmnst valda fullmiklum usla i bæjarfé-
laginu með framgöngu sinni i nafni
sannleikans. „Það er erfitt að leika
menn með völd,“ segir Björn Ingi.
„Manni finnst þeir þurfa að sýna völd
sín á einhvem hátt en svo uppgötvaði
ég að þegar völdin em til staðar hefur
maður ekkert fyrir þeim; þau em til
staðar eins og fótin sem maður gengur i,
sjálfgefm. Ég ákvað að reyna að skapa
mjúkan, skemmtilegan og þægilegan
mann. Pétur er i raun mjög góður mað-
ur með ákveðna lífsstefnu. Textinn sér
um afganginn; allt sem hann aðhefst og
segir ber merki um valdníðslu og mis-
beitingu."
Bjöm Ingi þekkti ekki til verksins
þegar Guðjón Pedersen tjáði honum að
María Kristjánsdóttir hefði óskað eftir
því að hann léki Pétur Stokkmann.
Hann las það og varð mjög hrifinn. „Mig
Beöiö eftir Godot
„Stundum finnst mér Beckett vera að hlæja að okkur, mér og þér og öll-
um. Við erum skrýtin og höfum mjög sterka þörf fyrir að trúa því að það
sé til eitthvaö sem er eins og guð. “