Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Side 33
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
33
DV
Helgarblað
Blaðamenn DV á vaktinni í tuttugu ár:
Veislan á
öskuhaugunum
- myndir skólausa ljósmyndarans ollu umróti í þjóðfélaginu
Neytendamál hafa verið DV hug-
leikin á tuttugu ára ferli blaðsins frá
sameiningu Dagblaðsins og Vísis í
nóvember 1981. Blaðið hefur með
ýmsu móti hvatt til betri kaup-
mennsku, betri framleiðslu, lægra
verðs til neytenda og skynsamlegrar
framleiðslu á neysluvörum almenn-
ings. Blaðinu sveið sárt að sjá heilum
bílförmum af tómötum, gúrkum,
rabarbara, kartöflum og kindakjöti
sturtað á öskuhaugana. Almenningur
skildi líka að slík sóun verðmæta er
vítavert athæfi. Þetta brottkast mat-
væla olli umróti og heitri umræðu í
þjóðfélaginu. Hin mikla matarveisla
fyrir rottur og fugla á sorphaugum
borgarinnar var gagnrýnd harðlega.
Vísir og DB höfðu fylgst vel með
málum af þessu tagi á undan DV og
greint frá svipuðum atburðum. En í
DV er greint frá miklu magni af kart-
öflum á öskuhaugum borgarinnar í
júli 1984. Hagkaup sturtaði þar í tuga-
tali 25 kilóa pokum af spænskum kart-
öflum en þær höfðu blotnað og svepp-
ir komnir i þær, sögðu Hagkaups-
menn. Þar var varla mannamatur á
ferðinni og voru landsmenn þó ýmsu
illu vanir þegar jarðeplin voru annars
vegar.
Ljósmyndari DV á haugunum
Sumarið 1987 var líflegt á haugun-
um og Sveinn Þormóðsson, sá árvakri
ljósmyndari, náði myndum í tvígang
þegar offramleiðsla á iambakjöti og
tómötum var dysjuð á haugunum í
því skyni að stjórna framboði og eftir-
spurn og halda þannig uppi óheyri-
lega háu verði á vörunni. Sveinn seg-
ir í minningabók sinni, Á hælum
löggunnar, sem Reynir Traustason
skrifaði, að það hafi ekki beinlínis
verið óskahlutverk blaðamanna að
standa vaktina á öskuhaugum borgar-
innar. Á haugunum reyndu starfs-
menn að telja Sveini trú um að það
væri fjarri lagi að urða ætti kjöt í
gríðarmikilli holu sem jarðýta hafði
gert á staðnum. Sveinn beið siðan
utan svæðis í bíl sinum hinn róleg-
asti.
Biðin launaði sig. Hann náði í
skottið á lambakjötsframleiðendum
sem töldu vöru sína betur komna á
haugunum en í munni og maga neyt-
enda.
Sveinn lýsir því hvernig hann
komst fram hjá farartálma sem verðir
hauganna höfðu sett upp til að koma í
veg fyrir fréttaflutning af málinu.
Hann klöngraðist haugdrullugur yfir
leðjuna, búinn að týna báðum skón-
um, og sá hvar vörubíll, hlaðinn
lambakjötsskrokkum, nálgaðist. Á
sokkgleistunum kom Sveinn aðvíf-
andi til að ná þessum líka fínu frétta-
myndum af því hvernig góðgætinu
var sturtað í holuna. Þrátt fyrir
myndabann karlanna á haugunum
gátu þeir ekki annað en brosað að
Sveini, grútskítugum, með myndavél-
ina um hálsinn. „Ég var víst ærið
groddalegur en það skyggði hvergi á
ánægju mína yfir þvi að hafa náð
góðri mynd,“ segir Sveinn sem fékk
DV-verðlaun mánaðarins fyrir mynd-
ina og Kjartan Gunnar Kjartansson
sömu verðlaun fyrir góða blaða-
mennsku í þessu neytendamáli.
Gífurlega hörð viðbrögð
Sveinn var orðinn hagvanur á
haugunum. Hann hafði nokkrum dög-
um fyrr afhjúpað grænmetisheildsala
sem vildu fleygja miklu af ágætum
tómötum og gúrkum fremur en að
lækka verðið á markaðnum og örva
fólk til aukinnar neyslu á hollustunni.
Sveinn var nú orðinn nokkuð hagvan-
ur á haugunum og leist orðið ekki á
að verða fréttaritari með fast aðsetur
á þeim stað. En hann náði líka ágæt-
um myndum af ýmsu ætilegu sem
kastað var, meðal annars miklu
magni af rabarbara sem hent var.
Uppljóstrun DV vakti hörð við-
brögð og Upplýsingaþjónusta land-
búnaðarins fann sig knúna til að
halda blaðamannafund um málið. Þar
Vítamín á haugana
Hér eru tómatar frá SFG komnir á öskuhaugana í staö
þess aö leyfa neytendum aö njóta vítamínanna.
Kartöflur dysjaöar
Þessar kartöflur sem Sveinn Þormóösson myndaöi á
haugunum komu frá Hagkaupi - kaupmenn sögöu vör-
una hafa skemmst af vatni sem í þær komst.
Umræöan hafði áhrif
Umræður um veisluna á öskuhaug-
unum stóðu lengi í fjölmiðlum lands-
ins. Fólki ofbauð háttalagið. Án efa
hafði fréttaflutningurinn áhrif inn í
kerfið. í stað þess að hvetja til aukinn-
ar framleiðslu á matvælum af ýmsu
tagi fóru menn að hugsa sitt ráð og
draga fremur úr en auka framleiösl-
una. Án efa urðu myndir Sveins Þor-
móðssonar og fréttaflutningur DV til
þess að bæta ástandið á þessu sviði.
-JBP
DV-MYND SVEINN ÞORMÓÐSSON
Mannamatur undir jaröýtutönn.
Heilir lambsskrokkar komnir undir jarðýtutönnina á öskuhaugum Reykjavíkur.
Myndir Sveins Þormóössonar vöktu þjóöarathygli og uröu til þess aö fram-
leiöslustýring matvæla var bætt.
kom fram að skattgreiðendur borguðu
177 tonn af haugakjöti að fullu, 36,4
milljónir króna. Neytandinn var að
borga fyrir kjöt án þess að fá að borða
það. Kristján Már Unnarsson, blaða-
maður DV, segir frá þessu í fram-
haldsfrétt og bendir á að þessi upp-
hæð sé svipuð og það fé sem ríkið
verji til byggingar dagvistarheimila
árið 1987.
Eins og títt er um svokallaða hags-
munaaðila reyndu landbúnaðarsam-
tökin að bera á borð upplýsingar um
að þarna hefði ekki verið um heila
skrokka að ræða, einnig að þetta hefði
verið ærkjöt og hrútakjöt. Ljósmyndir
Sveins Þormóðssonar, skólausa Ijós-
myndarans, sýndu heUa skrokka og
ekki var annað að sjá en samtökin
færu með rangt mál.
Markaðsstjóri Sölufélags garð-
yrkjumanna reyndi líka að bera blak
af matvælabrottkasti síns fyrirtækis.
Fyrirtækið hafði lækkað heUdsölu-
verð tómata úr 150 krónum í 80 krón-
ur nokkru fyrr og þá jókst neyslan.
En SFG hækkaði síðan aftur verðið á
mánudegi - og þá lokaðist markaður-
inn aftur og útkoman var akstur
tómatanna á sorphauga borgarinnar á
fimmtudag. Þetta þótti neytendum
ekki góð latína.
NÝIR FJÖLSKYLDU-
MEÐLIMIR í BAKSTURINN
(hStttí2
.'HÝTTO
7}
JSc
Jc
Vc
im
un
nft
^ukker
'X^ukkcr
'Cukke*
Hor ucnt ckoklíctsu/k /■
Hor Mcrt ckokolectcimoi
f clts ucd siokoUctcsuiak ?
rockcoTOMuLDkcn ‘/
Hor uci iordqubbssiuck
flor mcd iorttb*rsi*o«
Hcin mcet iOr<tbKrsmck
TotHuiokcri
bckortrions Pir!
bckorattons Pcrlc
bckorcsjons Pcrle
konstercc
flor mcit cirronsmck
flor mcC citronsmay
Hclls mcC sitronsmak
StTruuHenmckutnen
tOMusokerl
J^Cukker
7></« Q
Jyu/ater