Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Page 38
46
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
¥
Helgarblað
I>V
>
Skelfilegir atburöir á Elliheimilinu á Akranesi
22 ára gamall maöur brýst Irm á elliheimili og kyrkir 43 ára gamla konu í rúmi sínu eftir aö hann hefur viö hana samfarir, sem ekki er enn Ijóst hvort
voru meö vilja hennar. Morðið var og er enn óhuggulegasta sakamáliö í sögu bæjarins.
Kyrkti konu á
elliheimili
- kynferðissamband hafði verið milli morðingjans og konunnar
Aðfaranótt sunnudagsins 30.
ágúst 1959, klukkan langt gengin
í fjögur vaknaði starfsstúlka á
Elliheimilinu á Akranesi við há-
vaða úr herbergi konu þar. í
fyrstu hélt starfsstúlkan að kon-
an væri að tala upp úr svefnin-
um, en þegar hún heyrði hana
segja „farðu, farðu“ taldi hún víst
að einhver væri inni hjá henni.
Starfsstúlkan áræddi ekki að fara
inn í herbergið heldur hringdi á
lögregluna, en þar var ekki svar-
að. Þá fór hún ásamt annarri
starfsstúlku i næsta hús og fékk
sér til aðstoðar mann sem þar
bjó en hann brá skjótt við og kom
með þeim yfir á elliheimilið.
Starfsstúlkan opnaði dyrnar og
sá hvar konan sem í herberginu
bjó lá á ská á svefnbekknum, meö
annan fótinn út af bekknum en
hinn á brún hans. Var hún á
náttkjól einum klæða og hafði
hann verið brettur upp þannig að
hún var allsnakin að neðan. Við
bekkinn sat ungur maður, hár og
grannur, allmikið ölvaður en þó
ekki ósjálíbjarga, og rólegur að
sjá. Hann spurði starfsstúlkuna
hvað hún væri að gera þama, en
þegar hann sá manninn sljákkaði
í honum og bjó hann sig til brott-
farar. Fóru starfsstúlkur og
komumaður að stumra yfir kon-
unni, hagræddu henni og
breiddu yfir hana, en þá virtist
þeim hún vera látin án þess að
þau veittu athygli neinum áverk-
um á líkinu, en ljóst þótti af að-
komunni að hafðar höfðu verið
við hana samfarir rétt áður.
Þegar læknir kom á staðinn úr-
skurðaði hann aö konan væri lát-
in. Marblettur var sjáanlegur rétt
fyrir neðan barkakýli og benti
það til þess að tekið hefði verið
fyrir kverkar henni. Við rann-
sókn á vettvangi kom í ljós að
brotist hafði verið inn í elliheim-
ilið, með því að brjóta rúðu í
glugga á geymslu á neðri hæð.
Virtist sem ódæðismaðurinn
hefði kunnað skil á húsaskipan,
því að hann hafi án þess að gera
vart við sig gengið að herbergi
konunnar, sem vár við hliöar-
gang á efri hæð hússins.
Við réttarkrufningu síðar var
staðfest að konan hefði verið
kyrkt - og enn fremur að i
leggöngum hennar var mikið af
sáðfrumum.
Sakaskrá ■ 16 liðum
Hin látna var 43 ára gömul og
hafði fasta búsetu á elliheimili
vegna þess að hún „gekk ekki
heil til skógar" eins og kom fram
i blöðunum. í málsskjölum segir
að hún hafi verið öryrki, en það
ekki útskýrt nánar. Kom í ljós að
ódæðismaðurinn var 22 ára gam-
all sjómaður sem bjó hjá foreldr-
um sínum í plássinu. Farið var
heim til mannsins þegar lögregl-
an hafði fengið greinargóða lýs-
ingu á honum og við yfirheyrslur
játaði hann að hafa brotist inn á
elliheimilið og farið inn í her-
bergi til konunnar „í þeim til-
gangi að hafa við
og báru þau að hafa hitt ódæðis-
manninn kvöldið áður. Eitt vitnið
hafði setið með honum að sumbli
og sagði að þeir „hefðu spjallað
um síldveiðar og daginn og veg-
inn“ en ekkert hefði komið fram í
samræðum þeirra sem bent hefði
til þess að maðurinn ætlaði sér aö
brjótast inn í elliheimilið. Kvað
vitnið manninn hafa verið kátan
segir, verið að hafa við hana sam-
farir.
Með dulda geöveilu
Þórði Mölier, sérfræðingi í
tauga- og geðsjúkdómum, yfir-
lækni sjúkrahússins á Kleppi,
var falin rannsókn á geðheil-
brigði hins seka. Greindarþroski
hans reyndist í meðallagi, en höf-
uðvandamál hans var mikil
Sat ölvaður y
ir líki konunnar
* atbui'ður á ‘**™'** ^ 3 t& h.nuar. Þeg*i
•lífT ‘ Í!
* htfzt ím m veikhðmt ke
‘ *ar hmm yir feaaí
i,ft3kiS.il
Kona myrt á
SáktnMröpr á vanda tii^ Akranesi
æðís er hann drekkur
Píltmr 9Á; talhra er hafa-
'úf(> VitidW dttÁfcto- IWrj,
istlwttaíí’ ti J&tfKumi,. Iwíkir
v»si»r er «*í«s t»ff
■vnr lÁyirt /«*•. 11 ára jpttö-
oft. »r aií- atvinnú.
hana samfarir", en hann sagðist
hafa þekkt konuna lítillega og tví-
vegis haft samfarir við hana
áður. Hann mundi þó nánast ekk-
ert frá atburðum næturinnar og
bar því við að hann hefði verið
mjög ölvaður. Hann minntist þess
ekki að konan hefði verið samför-
unum „sérstaklega mótfallin"
þannig að um nauðgun hefði ver-
ið að ræða, og kvaðst hann held-
ur ekki muna eftir þvi að hafa
beitt hana ofbeldi. Að konan
hefði verið látin þegar hann yfir-
gaf herbergi hennar kvaðst hann
ekki hafa haft nokkra hugmynd
um.
Maðurinn gerði þannig grein
fyrir sjálfum sér að hann ætti
vanda til að drekka sér til óminn-
—
Sjöundi hlutl
is. Sagði hann að áfengi hefði þau
áhrif á sig að hann yrði ofsafeng-
inn í skapi og framferði, og gjarnt
að lenda í slagsmálum. Hann
hafði fengið sektir fyrir ölvun í
fleiri en einum kauþstað landsins
og var sakaskrá hans af þeirri
ástæðu í 16 liðum.
Spjallaö um síldveiðar
Vitni voru leidd fram í málinu
22 ara gansril •eKsðw
tvrUr húlsstæps Unii
í lúmi runtr á riBlwi—iWww
aAfnraantt tmmns súimf*
yfir drykkjunni og ekki
með nein illindi, en hann
hafi verið orðinn mjög
ölvaður þegar hann sagð-
ist ætla að halda heim á
leið um þrjúleytiö.
Ákærði sagði sjálfur að þótt
hann myndi ógjarnan málavexti,
þá benti allt til þess að það væri
hann sem ætti sök á dauða kon-
unnar, en þaö heföi alls ekki verið
ætlun sín þegar hann fór inn á elli-
heimilið að stytta henni aldur eða
misþyrma henni á nokkurn hátt,
heldur hafi tilgangurinn, sem fyrr
Starfsstúlkan opnaði
dymar og sá hvar konan
sem í herberginu bjó lá á
ská á svefnbekknum,
með annan fótinn út af
bekknum en hinn á brún
hans. Var hún á náttkjól
einum klœða og hafði
hann verið brettur upp
þannig að hún var
allsnakin að neðan. Við
bekkinn sat ungur mað-
ur, hár og grannur, all-
mikið ölvaður en þó ekki
ósjálfbjarga, og rólegur
að sjá.
Blöðin í ágúst-september 1959
Maöurinn geröi þannig grein fyrir
sjálfum sér aö hann ætti vanda til
aö drekka sér til óminnis. Sagöi
hann aö áfengi hefði þau áhrif á
sig aö hann yröi ofsafenginn i
skaþi og framferöi, og gjamt aö
lenda í siagsmátum. Hann haföi
fengiö sektir fyrir ölvun í fleiri en
einum kauþstaö landsins og var
sakaskrá hans af þeirri ástæöu
í 16 liöum.
áfengisneysla. „Um er að ræða
ungan sjómann, sem frá æsku
hefur neytt áfengis í óhófi miklu
og breytist við það úr stilltum og
prúðum pilti í uppivöðslusegg
sem engu eirir, þegar hann er
undir áhrifum áfengis. Hefur
þetta orðið meira áberandi með
árunum. Minni hans er takmark-
að mjög eftir slíka drykkju."
Geðlæknirinn leiddi getum að
því að hugsanlega hefði konan
sýnt nokkurn mótþróa við sam-
farirnar, sem þá hugsanlega hefði
valdið hinum ofsalegu viðbrögð-
um hans.
„Hann er hvorki fáviti né geð-
veikur, heldur ofdrykkjumaður,
hugsanlega með dulda geðveilu,
sem varla eða ekki kemur fram
nema undir lamandi áhrifum
áfengis."
Þessi niðurstaða geðlæknisins
þótti í engu draga úr sakhæfi sjó-
mannsins. Dómurinn sagði hann
sjálfan hafa komið sér í það
ástand, sem honum mátti vera
ljóst að gat verið hættulegt þeim
sem hann umgekkst, og var hann
dæmdur í 16 ára fangelsi.
__ 1984
Dallasæðið í algleymingi
Á dagskrá sjónvarps árið 1984
voru hinir vinsælu Dallasþættir,
sem endursýndir voru á Stöð þrjú
fyrir nokkru, við miklu minni vin-
sældir. Ljóst
ðeyafMbs er af sjón-
varpskynn-
ingum frá
þessxun
tíma að
hjörtu áhorfenda hafa slegið í takt
við hjörtu Dallas-fjölskyldunnar.
„Það er skemmst frá þvi að segja
að Ray og J.R. eru búnir aö vera
fullir i síðustu tveimur þáttum og
viröast ætla að halda eitthvað
áfram enn. Svo nærri þeim gengur
foðurmissirinn að skelfing er upp á
að horfa. Bobby gieyið er að burð-
ast við að stjóma fyrirtækinu, en
það gengur auðvitað hvorki né rek-
ur, þvi hinir i fjölskyldunni em í
slikri sorg að peningar em nú
orðnir algjört aukaatriði.“
Hver man ekki þessa dýrðar-
tíma?
Nýjung: Greiðslukort
Rætt var og ritað mn þá miklu
nýjimg greiðslukort í janúarmán-
uði 1984. Þá höfðu aðeins örfáir til-
einkað sér
nýjungina,
en í frétt í
DVfrá
þessum
tima segir
formaður kaupmannasamtakanna
að kaupmenn hafi „æmar áhyggjur
af þessum nýja greiðslumáta“. Inn-
kaupasamband matvörukaup-
manna varaði hka við þeim við-
skiptaháttum sem þama vora að
ryðja sér til rúms með notkun
greiðslukorta og sögðu að þar veltu
kortanotendur auknum kostnaði
yfir á þá sem staðgreiddu vöra
sína. „Þetta mundi óhjákvæmilega
leiða til þess að hækka yrði vöra-
verö um 3-5 prósent. Ekki væra
verslanir heldur i stakk búnar til
þess að stunda slík lánaviðskipti
þvi flestir kaupmenn þyrftu á því
fé að halda sem kæmi inn við eðli-
leg viðskipti,“ sagði kaupmaðurinn
áhyggjufullur. Við geram ráö fyrir
því að nú hafi þessi vandamál leyst
farsællega.
msTHmfomm
ánmmwM ^
Njósnarínn Treholt
í erlendiun fréttum á fyrri hluta
ársins 1984 bar
það hæst að
Ame Treholt,
skrifstofustjóri
í norska utan-
ríkisráðuneyt-
inu, var hand-
tekinn fyrir
njósnir. Treholt
njósnaði fyrir Sovésku leyniþjón-
ustuna KGB. Fréttin kom sem reið-
arslag yfir Norðmenn og var sagt
að Treholt-málið væri stærsta frétt
Noregssögunnar efdr síðari heims-
styijöld, en Treholt var vel kunnur
diplómat og naut mikilla vinsælda,
jafnt hjá samstarfsfólki sem og í
fjölmiðlum. Á þessum tíma var get-
um leitt að þvi að peningar hefðu
leitt Treholt út í njósnir frekar en
hugsjónaástæðm-.
fyrv 0jfUsotr
Sverrir fór niður fyrir núll
Iðnaðarráðherra árið 1984,
Sverrir Hermannsson, var í frétt-
um snemma
árs vegna þess
að hann mælt-
ist til þess að
starfsfólk sitt í
ráðuneytinu
skrifaði zetu.
Helgarblaö DV
brást skjótt við
eins og
endranær og
skellti Sverri í stafsetningarpróf
sem lagt var fyrir nemendur MR
meðan zetan var og hét. Sverrir
gerði 26 villur, þar af 9 zetuvillur.
Magnús Guðmundsson, íslensku-
kennari við skólann, fór yfir úr-
lausnina og varð að orði: „Nei,
heyrðu, nú hætfum við að telja,
hann er kominn niður fyrir núll!“