Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Blaðsíða 57
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
65
DV
Helgarblað
Óli H. Ólason, trillukarl
og útvegsbóndi í Grímsey
Höfum oft orðið að fara
tvær ferðir eftír aflanum
„Ég er búinn að vera á sjó í 60 ár
eða síðan ég var átta ára gamall og ég
hef aldrei séð annað eins magn af
íiski eða upplifað annað eins fiskirí.
Við feðgarnir erum með stærsta
þorskkvóta á einum smábáti á land-
inu, 400 tonn, og vegna þess hve veið-
in hefur verið góð þá verðum við að
fara að halda aftur af okkur. Það er
ekki um auðugan garð að gresja þeg-
ar þorskkvótann þrýtur. Það er helst
að við gætum reynt að veiða steinbít
þar til nýtt fiskveiðiár gengur í
garð.“
Þetta sagði Óli H. Ólason, trillu-
karl og útvegsbóndi í Grímsey, er
rætt var við hann um veiðar
Grímseyinga. Óli H. og Óli Bjarni,
sonur hans, voru þá að veiðum í ná-
grenni Grímseyjar á Óla Bjarnasyni
EA og sagðist sá gamli bara vera þvi
feginn að fá tilefni til þess að setjast
niður og spjalla og hvíla sig frá línu-
drættinum og aðgerðinni.
Mest 6,7 tonn eftir daginn
Að sögn Óla hafa aflabrögð
Grimseyjarbáta verið með fádæm-
Óli H. Ólason er útvegsbóndi
í Grímsey
Hann gerir út Óia Bjarnason EA í
krókaaflamarkskerfinu meö syni sín-
um og aö auki eiga þeir feögar sex
sóknardagabáta sem þeir gera aö-
eins út á sumrin.
faðma dýpi.
Allur afli Óla Bjarnasonar EA
hefur verið seldur á vegum Fisk-
markaðarins á Dalvík og hefur
verðið verið hátt siðustu vikurn-
ar. 1 síðustu viku fengu þeir feðg-
um selategundum að því leyti að
þegar nóg er af fiski þá ræðst
hann á þorskinn við kviðuggann,
gerir þar gat á kviðinn og sýgur
úr honum lifrina. Hann er svo
snöggur að þessu að maður sér oft
hálfdauða fiska og lifrarlausa
svamla um í sjónum. Eitt vorið
lenti ég í því að fá 100 þorska í
netatrossu sem allir höfðu orðið
fyrir barðinu á blöðruselnum á
meðan ég var að draga trossuna.
Þetta var á um 40 faðma dýpi
norðvestur af Grímsey. Þegar ég
dró trossuna var blöðruselurinn
nýbúinn að ráðast til atlögu og
töluvert af þessum 100 þorskum
voru enn lifandi þegar þeir komu
upp. Þrátt fyrir að blöðruselurinn
ráðist á þorskinn í netunum þá er
sjaldgæft að hann festist sjáifur í
netunum líkt og t.d. vöðuselurinn.
Þá getur maður heldur aldrei ver-
ið viss um að þessi fjandi sé ekki
á svæðinu. Það getur verið allt
morandi af þeim þótt það sé speg-
ilsléttur sjór og maður sjái ekki
einn einasta sel því blöðruselur-
inn getur verið allt að hálftíma í
kafi í einu,“ segir Óli og það er
greinilegt að honum er allt annað
en hlýtt til „blöddans".
í máli Óla kemur fram að
blööruselsplágan sé frekar að
Óli Bjarnason EA í október 2000.
W'ð höfum mest komiö 5,5 tonnum í bátinn en yfirleitt förum viö í land þegar viö erum komnir meö tæp fjögur tonn.
Viö höfum mest veriö meö 6,7 tonn eftir daginn í tveimur vitjunum og oft hefur aflinn veriö á milli fimm og sex tonn.
Þetta er allt góöur þorskur og engir venjulegir Norölendingar
um góð sl. tvö ár eða svo en þó
aldrei eins góð og síðustu vikurn-
ar.
• „Viö rerum ekkert framan af
maímánuði vegna þess hve verðið
á mörkuðunum hafði lækkað mik-
ið en þegar við byrjuðum aftur 20.
maí sl. þá fengum við strax
mokafla. Við höfum verið með 400
til 500 kíló af fiski á balann og oft
höfum viö farið tvær veiöiferðir á
dag. Við höfum mest komið 5,5
tonnum í bátinn en yfirleitt förum
viö í land þegar við erum komnir
með tæp fjögur tonn. Við höfum
mest verið með 6,7 tonn eftir dag-
inn í tveimur vitjunum og oft hef-
ur aflinn verið á milli fimm og sex
tonn. Þetta er allt góður þorskur
og engir venjulegir Norðlending-
ar. Meðalvigtin hjá okkur á slægð-
um þorski er 2,4 kíló en reyndar
er uppistaða aflans mun vænni
fiskur. Það er töluvert um smáan
þorsk í aflanum og hann dregur
meðalvigtina niður. Reyndar
fáum viö líka stærri þorsk með,
sjö til átta kílóa fisk, en það er
ekki eins mikið af honum og smá-
fiskinum,“ segir Óli en í máli
hans kemur fram að þorskurinn,
sem þeir feðgar hafa verið að
veiða að undanfömu, sé horaður
og svangur eftir hrygninguna.
Þorskurinn hrygnir á grunninu
við Grímsey í apríl og fram í maí
og gengur síöan út á 30 til 40
ar 145 krónur að jafnaði fyrir
þorskkílóið en Óli vekur athygli á
að töluvert sé haft fyrir því að
gæðin séu sem allra mest.
„Sjórinn núna er 7,3"C heitur og
hitastigið hefur líklega hækkað
um einar 3,5°C á aöeins hálfum
mánuði. Við tökum því eitt kar af
ís með okkur á sjó og ísum fiskinn
jafnóðum eftir að búið er að gera
að honum. Fiskurinn er því að-
eins um einnar gráðu heitur þeg-
ar honum er landað og síðan ísum
við hann aftur í landi og geymum
hann í kæli þar til ferjan kemur
og nær í farminn."
Árviss plága
En það eru fleiri en bara sjó-
mennirnir í Grímsey sem setið
hafa við veisluborð hafsins aö
undanfórnu. Óli verður myrkur í
máli þegar helsta samkeppnisaðil-
ann, blöðruselinn, ber á góma.
„Sá bölvaði glæpon! Ég er viss
um að hann hefur tekið fleiri þús-
und tonn af fiski í apríl og maí.
Þetta er árviss plága hér á miðun-
um. Afi minn sagði mér að blöðru-
selurinn kæmi alltaf norðan úr
höfum i kringum sumardaginn
fyrsta, eftir að fengitímanum lyki,
og hann væri hér á Kolbeinseyjar-
og Grímseyjarsvæðinu fram til 20.
maí. Það var enginn smáhaugur af
þorski sem hann komst í þetta
árið. Blöðruselurinn er ólíkur öðr-
aukast en hitt. Ástæðan sé m.a. sú
að verulega hefur dregið úr veið-
um Norðmanna á sel á hafsvæð-
inu fyrir norðan ísland.
„Við þurfum fleiri menn eins og
Þórð Pétursson á Húsavík til þess
að gera út á blöðruselinn. Það þarf
að gera virkilegt átak til þess að
halda þessum skaðvaldi í skefj-
um.“
Ufsinn ekki sést I þrjú ár
Að sögn Óla hafa Grímseyingar
ekki mikið heyrt um aflabrögð
smábáta annars staðar við Norð-
urland en þó segist hann hafa
frétt af því að smábátar hafi feng-
ið mokafla á línu út af Núpunum
fyrir norðan Kópasker.
„Ég geri ráð fyrir því að afla-
brögðin séu víða góð þessa dag-
ana. Við verðum að fara að taka
lífinu með ró vegna kvótastöð-
unnar en e.t.v. verður hægt að fá
eitthvað af steinbít á línuna í
sumar. Ufsinn er hins vegar al-
veg horfinn. Við fengum oft mjög
góðan ufsaafla á færaslóðana sem
við drógum á eftir bátunum en
það eru örugglega þrjú ár síðan
ufsa varð vart hér í einhverjum
mæli. Ufsinn fer allur suður fyrir
land þegar hann nær 75 til 80
sentímetra lengd. Þá fer hann að
eltast við síldina," segir Óli H.
Ólason.
Amerískur hvífdarsfóll
ófrúlega þœgilegur!
ÞÚ VEluR UM IfElqARNÁMskEÍð
eöa NÁMskEið kENNd viRk kvöld
KeNNsIuÁÆtIuN í NÓVEMbER:
5-4.NOV. ökuskóli 2 (llElqARNÁMskEÍð)
5.-8.nov. ökuskóli 1 (viRk kvöld)
24r25.NOv. ökuskóli 1 (ÚElqARNÁMskEið)
26r29.NOv. ökuskóli 2 (viRk kvöld)
AlliR NEMENduR ÖkuskóÍANS SÆkjA UMÍERÖARÍUNdi kjÁ^
SEM IhaIa skiÍAÖ 26% (ÆqRÍ slySATÍðNÍ UNdANÍARÍN ÁR.
EÍTÍRTAldÍR ökukENNARAR MæIa MEð
ÖkuskÓÍANUM,SuðuRlANdsbRAUT 6.
EqqERT V. ÞoRkElssoN 895 4744
Davíó ÓIaísson 895 7181
BjöRN RAqNARSsoN 5 57 8406
Lúðvík Eíösson 894 4444
Jónas Traustason 892 8582
VaWímar Jónsson 894 145 5
Pétur HAtlqRÍMssoN 897 1250
JóIhann DavíÖsson 897 7419
NjÁll CuNNlAuqssoN 898 5225
SiquRjÓN BjARNAsoN 897 1595
VeI MENNTAÖÍR Oq ÁNÆqðÍR ökuMENN ERU okkAR MARkMÍð
...fæst hjá okkur!
Búsáhöld og Gjafavörur
KRINGLUNNI
© 568 6440