Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Síða 59
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
67
DV
Helgarblað
Kristjana Stefánsdóttir
Fékk erfitt hlutverk en stóö sig vel.
Stórsveit Reykjavíkur
Ánægjulegast var aö fá aö vera viöstaddur þessa fyrstu Ellington-uppfærslu.
Danskur Duke
á íslandi
Sérfræðingar í
viðgerðum og
viðhaldi á Sony
og Panasonic
tækjum.
Það gætti töluverðrar eftirvænt-
ingcir meðal kirkjugesta í Lang-
holtskirkju þann 24. nóvember sl.
þegar kór Langholtskirkju og Stór-
sveit Reykjavíkur komu sér fyrir á
pallinum til þess að flytja þætti úr
Sacred Concert Ellingtons og
Requiem eftir Lindberg fyrir þétt-
setinni kirkju. Eftirvæntingin var
ekki síst vegna helgitónlistar Ell-
ingtons sem þama átti að flytja að
hluta til.
Áður en lengra er haldið flnnst
mér rétt að hrósa stjómanda kórs
og hljómsveitar, Jóni Stefánssyni,
fyrir hugrekkið sem felst i því að
takast á við þetta tónverk eftir Ed-
ward Kennedy Ellington. Helgi-
konsertar Ellingtons, sem era þrir
talsins, vora í sifelldri endursmíð
og áttu fyrstu útgáfumar lítið sam-
eiginlegt með hinum seinni, nema
hinn sérkennandi Eilington-blæ
sem tónskáldið náði fram með pí-
anóleik sínrnn í forspilum og sér-
stakri natni við styrk og samleik.
Svíar betri en Danir
1 Því miður náðist hvorki jafnvægi
né Ellington-blær á tónleikunum í
Langholtskirkju. Jafnvægið sem
vantaði æði oft á milli kórs og
hljómsveitar verður að skrifast á
reikning stjórnandans sem auð-
heyrilega hafði ekki nægilega góða
tiifinningu fyrir séreinkennum Ell-
ingtons í hinum mismunandi
„deildum“ blásaranna. Stórsveitin
okkar hefur oft átt betri dag. Brass-
inn hljómaði ekki sannferðuglega.
Á hinn bóginn hljómaði kóriim
ákaflega vel, ekki síst þegar reyndi
á sópranraddimar á efri nótunum
þar sem þær voru hreinar og tærar.
Tónlist
Vandamálið var líka að útsetn-
ingamar, sem vora eftir danska tón-
listarmenn, John Höybye (organista
og kórstjórnanda) og Peder Peder-
sen (stórsveitarstjómanda), hljóm-
uðu eins langt frá Ellington og hugs-
ast getur. Margraddaðar kórútsetn-
ingar sálmanna, sem skrifaðar era
fyrir einradda gospelkóra banda-
rískra kirkjusöngvara, voru langt
frá hljómi þeim sem Ellington til-
einkaði síra Gensel á sínum tíma.
Ég var heldur ekki hrifmn af stór-
sveitarútsetningunum. Eiginlega
frnnst mér að Ellington eigi að fá að
Kór Langholtskirkju
Söng Ellington meö Stórsveit Reykjavíkur.
vera í friði fyrir dönskum tónlistar-
mönnum.
Öðra máli gegnir um þá sænsku.
Ég held að það hafi verið árið 1963
að Ellington hitti söngkonuna Alice
(Babs) Nilson. Þau komu fram í
sænska sjónvarpinu þar sem Alice
Babs söng m.a. Come Sunday í út-
setningu Strayhoms. Ellington
hreifst mjög af söng hennar og
nokkrum dögum seinna fékk hann
Alice til að koma til Parísar og gera
með sér hljómplötu. Það þótti
merkilegt að Duke Ellington fengi
sænska söngkonu til að syngja með
hljómsveit sinni, og þegar blaða-
maður í París spurði meistarann
skömmu seinna hvað þaö væri sem
Babs hefði umfram aðrar og frægari
söngkonur svaraði Ellington: „Allt!“
Ellington valdi Babs til að syngja
einsöngshlutverk í Sacred Concert
við flutning verksins
Divine-dómkirkjunni
fimm árum siðar. Þar
í St. John the
í New York
söng hún m.a.
Heaven með slíkum glæsibrag að
það er talið vera hápunktur ferils
þessarar mögnuðu söngkonu. í
Langholtskirkju fékk Kristjana Stef-
ánsdóttir það erflða hlutverk að
syngja Heaven með kór, stórsveit og
Sigurði Flosasyni, altosax. Krist-
jana var í upphafi örlítið óákveðin
en náði sér fljótlega á strik og end-
aði glæsilega í The Majesty of God.
Sigurður skilaði sínu hlutverki
mjög vel eins og búast mátti við.
Skemmtileg tOþrif í einleik Sigurð-
ar í Freedom-kaflanum og þá ekki
síður hjá Ólafi Jónssyni, clar., og
Stefáni S. Stefánssyni, alto, í The
Voice you heard fóra fyrir ofan garð
og neðan vegna jafnvægisvanda-
mála.
Kór og hljómsveit lék svo
Requiem eftir Nils Lindberg. Ein-
söngvarar vora þau Andrea Gylfa-
dóttir, sópr., Bergþór Pálsson, bar.,
og Harpa Harðardóttir, sópr., en
umsögn um þann hluta tónleikanna
verður að bíöa betri tíma.
Tónleikamir vora í heildina
ánægjulegir, þrátt fyrir vankanta.
Kórinn var á köflum stórgóður og
sveitin átti sína góðu kafla. Ánægju-
legast var að fá að vera viðstaddur
þessa fyrstu Ellington-uppfærslu.
Jón Stefánsson á heiður skilinn fyr-
ir átakið og frumkvæðið.
Ólafur Stephensen
Kór Langholtskirkju og Stórsveit Reykja-
víkur 24.11. 2001: Lofgjöröardjass. Ein-
söngvarar Andrea Gylfadóttir, Bergþór
Pálsson, Harpa Haröardóttir og Kristjana
Stefánsdóttir.
Einholti 2 • sími 552 3150
Panasonic
AF HVERJU
lækkaði Bónus
bókaverðið
um síðustu helgi?
^Athugaðu málið'
hjá okkur. ,
ÚS'oÁeíóúrí
®85 LÁRUSAR BLÖNDMJ
Listhúsinu, Engjatolgi 17-19
Smáauglýsingar
550 5000
Sígraent eöaltré í hæsta gaeðaflokki frá
skátunum prýðir nú þúsundir ísknskra heimila.
10 ára ábyrgð
í* 12 stærðir, 90 - 500 cm
Stálfótur fylgir
t* Ekkert barr að ryksuga
Truflar ekki stofublómin
f* Eldtraust
t* Þarf ekki að vökva
f* íslenskar leiðbeiningar
f* Traustur söluaðili
f* Skynsamleg fjárfesting
d%D
Bondolog íslenskro skáto