Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Side 39
með miklum gróðurleyfum, lítið kornað, þá ryðrautt lag,
álíka þykkt, síðan venjuleg móalög.
Aðaltegundir: Fjalldrapi, bláberjalyng, krækilyng, tún-
vingull.
Aukategundir: Beitilyng, ljónslappi, túnfífill, kornsúra,
mosajafni, jakobsfífill, blóðberg, smjörgras o. fl.
Mosar: Drepanocladus uncinatus, Dicranum spp., Pleur-
ozium schreberi, Rhytidiadelphus squarrosus, Rhyt. triqu-
etrus, Rhacomitrium canescens, Rh. lanuginosum, Ptilidi-
um ciliare.
Skófir: Cladonia spp., Peltigera spp.
IX. Snjódœld, í svonefndri Lynglág, við NV-horn tún-
girðingarinnar, en snjór liggur þar að jafnaði allan vetur-
inn og fram í maí eða júní. Reiturinn er í botni dældarinn-
ar, nálægt miðju hennar, slétt graslendi, sem hallar um 10°
í Au. Efst er brúnt lag, um 20 sm, mjög þétt og torfkennt,
síðan rauðbrún og gulbrún lög, einnig þétt.
Aðaltegundir: Hálíngresi, finnungur, ljónslappi.
Aukategundir: Mýrfjóla o. fl., mosarnir Drepanocladus
uncinatus, Poganatum urnigerum og lifurmosategundir,
fremur lítið áberandi.
X. Kalblettur i nýrœkt, á Selárbakka, 5—7 ára gamall. I
blettinum óx ekkert nema haugarfi. Nýræktin er upphaf-
lega mýri, með dálitlum halla til N. Efsta jarðvegslagið
mjög þétt, blautt, torfkennt, klofnar í flögur, með sýru-
kenndri lykt.
EÐLIS- OG EFNAEIGINLEIKAR
Aðferðir.
Eins og um var getið í inngangi að þessum pistli, þá voru
gerðar nokkrar mælingar á eðlis- og efnaeiginleikum jarð-
vegs í þeim gróðurlendum, er umrædd hafa verið hér að
framan og dýralíf var rannsakað í. Ein sýnaröð með sex
deilisýnum, sú sama og tekin var til útrekstrar á maurum
og mordýrum, var notuð til þessara mælinga. Sýni þessi
voru vegin strax við töku og aftur er þau voru fullþurr
41