Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1969, Side 9
LANDSBÓKASAFNIÐ 1968
9
LiSdýrafræði eftir Stefán Stefánsson. Gjöf Kára Sigurjónssonar, starfsmanns Rann-
sóknarstofu háskólans, um hendur Donalds Ingólfssonar ljósmyndara.
Is Human World Leadership Straight or Spurious? Vélrit. Gjöf höfundar, Stefáns
Valdimars Finnssonar, Victoria, B.C.
Morris Spivack gaf stóra möppu meS teikningum og dagbókarbrotum eftir sjálfan
sig.
Lárus Sigurbjörnsson, fyrrv. borgarskjalavörður, færði safninu m. a. leikrita-
slitur eftir Stephan G. Stephansson, er hann hafði fengið á sínum tíma frá Þorkatli
Jóhannessyni háskólarektor.
Einar Magnússon rektor færði safninu ýmis gögn varðandi Gagnfræðadeildarfé-
lagið Framsókn, alls fjórar bækur, komnar úr fórum Tómasar Jónssonar borgarlög-
manns.
Xerox-myndir af bréfi Jónasar Hallgrímssonar til J. Steenstrups 29. ágúst 1839.
Gjöf frá Jprgen Ask stud. mag. um hendur Aðalgeirs Kristjánssonar skjalavarð-
ar.
Sigursteinn Magnússon aðalræðismaður í Edinborg aflaði xerox-mynda af nokkrum
sönglögum Sveinbjarnar Sveinbjörnssonar, er til voru í British Museum í London,
en ekki hér, og sendi safninu að gjöf.
Eftirtalin handrit voru keypt á árinu:
Prestaævir Sighvats Grímssonar Borgfirðings, þrjú bindi, sérstök uppskrift.
Eitt bréf frá C. C. Rafn til sr. Daníels Halldórssonar; ennfremur Boðsbréf Forn-
fræðafélagsins 28. 4. 1846.
Lærdómsbók í evangelískum kristilegum trúarbrögðum handa unglingum, Leirár-
görðum 1799. — Skrifuð innskotsblöð með hendi sr. Halldórs Ámundasonar á Mel-
stað.
Leikrit Matthíasar Jochumssonar, Helgi magri, með hendi höfundarins.
Skarðstrendingasaga Gísla Konráðssonar, síðari hluti, með hendi Skúla Þorvalds-
sonar.
Loks voru keyptar xerox-myndir af þeim verkum Sveinbjarnar tónskálds Svein-
björnssonar, er til voru í Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn, en vanlaði í
Landsbókasafnið. Var þetta gert samkvæmt tilvísan Jóns Þórarinssonar tónskálds.
Hér fara á eftir nöfn þeirra einstaklinga og stofnana, er gefið hafa Landsbóka-
safninu handrit á árinu, án þess að frá þeim handritum verði sérstaklega skýrt:
Davið Björnsson, Winnipeg. — Einar G. Pétursson stud. mag., Reykjavík. — Dr.
Finnur Sigmundsson, Reykjavík. -— Friðrik Þórðarson cand. philol., Ósló. Frú
Rósa Hjörvar, Reykjavík. — Snæbjörn Jónsson, fyrrv. bóksali, Portchester. -— Dr.
Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrv. hagstofustjóri, Reykjavík. — Konunglega bókasafnið,
Stokkhólmi. — Þjóðminjasafn íslands, Reykjavík. — Þj óðskj alasafn íslands, Reykja-
vík.
Landsbókasafn færir öllum gefendum handrita beztu þakkir.