Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 12
STIKLAB A STORU...
Umferðarteljarar
Nú hafa um skeið verið í notkun
hjá Vegagerð ríkisins fullkomnir
umferðarteljarar með skráningu og
tölvuvinnslu sem hafa þá sérstöðu
að vera hannaðir og smíðaðir hér-
lendis hjá Öryrkjabandalagi íslands
og Eðlisfræðistofu Raunvísinda-
stofnunar háskólans. Þessir teljar-
ar eru öruggari og auðveldari í
notkun en loftslönguteljararnir sem
lengi hafa verið notaðir hér. Að auki
er öll úrvinnsla gerð í tölvu og er
mjög sjálfvirk og sparar mikla
vinnu.
I þessum teljurum eru í raun tvö
tæki. Fyrst er skynjari sem skynjar
með rafsegulbylgjum þegar bílar
fara um veginn og gefur þá frá sér
rafpúls en seinna tækið er teljari og
minni sem telur rafpúlsana frá
skynjaranum og geymir tölu bíla
sem fara um veginn á einhverju
ákveðnu tímabili, t. d. 15 mínútum,
klukkutíma eða degi allt eftir því
hvernig tækið er stillt. Tækin geta
talið á allt að 4 akreinum samtímis.
Úr teljurunum er lesið inn á segul-
band þegar minni tækisins er fullt
og af segulbandinu síðan inn á
tölvu þegar heim er komið. Með
tölvunni má reikna meðalumferð
dagsins, umferðarmesta og um-
ferðarminnsta tímabil, heildarum-
ferð vikunnar og annað sem
áhugavert þykir. Auk þess að
prenta út niðurstöðurnar getur
talvan dregið upp línurit af umferð á
móti tíma og þannig fæst mjög
auðveldlega mynd af umferðar-
þunganum.
Miklar smjörbirgðlr
Um mánaðamótin september/-
október voru til í landinu um 1300
lestir af smjöri. Er þetta mjög mikið
og samsvarar næstum því árs-
neyslu þjóðarinnar af smjöri. Við
verðbreytinguna, sem varð hinn 11
sept., varð þó veruleg verðlækkun
eins og alþjóð er kunnugt, og við þá
breytingu hefur smjörsalan tekið
nokkurn kipp. Þegar litið er á árið í
heild, hefur orðið rúmlega 20%
aukning í magni í smjörsölu miðað
við fyrstu átta mánuði ársins í ár og í
fyrra, en vonast er til, að söluaukn-
ingin verði þó töluvert meiri það
sem eftir er ársins.
Óskar H. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Osta- og smjörsöl-
unnar hefur skýrt svo frá að þessar
smjörbirgðir væru um 3.5 milljarðar
króna að framleiðsluverðmæti, og
væri sú tala fundin með því að
leggja saman niðurgreiðslur ríkis-
sjóðs og heildsöluverð. Nú færi
framleiðsla mjólkurbúanna hins
vegar að dragast saman, eins og
jafnan á haustmánuðum, og af
þeim sökum mætti búast við að
verulega gengi á þessar birgðir í
vetur.
Varðandi ostasöluna skýrði
Óskar svo frá, að hún hefði verið
mjög svipuð fyrstu átta mánuði
þessa árs og sama tímabil á síðasta
ári. Birgðir af ostum hefðu verið um
1400 lestir um síðustu mánaðamót,
en eftirspurn erlendis frá hefði ver-
iö vaxandi, einkum frá Bandaríkj-
unum, svo að afskipanir væru tíðar
um þessar mundir. Því væri gert ráð
fyrir, að ostabirgðir yrðu mjög svip-
aðar um næstu áramót og verið
hefði í ársbyrjun.
Vetraráætlun í innanlandsflugl
Vetraráætlun innanlandsflugs
Flugleiða hófst hinn 1. október og
er nú viðameiri en nokkru sinni. Alls
verða farin frá Reykjavík 82 flug á
viku. Til samanburðar má geta þess
að brottfarir frá Reykjavík voru 78 á
viku samkvæmt áætlun í fyrra.
Áfangastaðir eru hinir sömu og áð-
ur, þ. e. a. s. Reykjavík, Patreks-
fjörður, Þingeyri, (safjörður, Sauð-
árkrókur, Akureyri, Húsavík, Egils-
staðir, Hornafjörður, Fagurhóls-
mýri og Vestmannaeyjar. Með
þessari upptalningu er þó aðeins
hálf sagan sögð, því í framhaldi af
innanlandsfluginu frá Reykjavík
flýgur Flugfélag Norðurlands til
staða á norður- og austurlandi og
Flugfélag Austurlands frá Egils-
stöðum til margra staða austan-
lands. Flugfélag Norðurlandsflýgur
nú í fyrsta sinn áætlunarflug milli
Akureyrar og Siglufjarðar, en aðrir
áfangastaðir eru (safjörður, Gríms-
ey, Húsavík, Kópasker, Raufarhöfn,
Þórshöfn, Vopnafjörður og Egils-
staðir. ( sambandi við innanlands-
flug Flugleiða til Egilsstaða flýgur
Flugfélag Austurlands til sjö
áfangastaða. Nú er í fyrsta sinn
tekið upp áætlunarflug til Breið-
dalsvíkur, en aðrir áætlunarstaðir
eru Bakkafjörður, Borgarfjörður
eystri, Djúpivogur, Vopnafjörður,
Hornafjörður og Norðfjörður. Frá
Reykjavík verður flogið með Fokker
Friendship skrúfuþotum Flugleiða,
Flugfélag Norðurlands flýgur Twin
Otter skrúfuþotum og Chieftain
flugvél, Flugfélag Austurlands flýg-
ur Piper Navajo og Islander flugvél.
Handbók um fjármál einstaklinga
Fjárfestingahandbókin sem
kemur út á næstunni að tilstuðlan
Fjárfestingafélags (slands, er sam-
in fyrir hinn almenna borgara. Hún
fjallar um fjármál einstaklinga og
leggur áherslu á að kynna helstu
reglur sem beita skal við mat fjár-
festinga, kosti þeirra og galla. Þá
fjallar bókin um á hvern hátt ein-
staklingar geta komið betra skipu-
lagi á fjármál sín. Bókin fer ítarlega
ofan í helstu tegundir fjárfestinga
hér á landi og lyftir hulunni af
margs konar viðskiptum, sem fram
að þessu hefur einungis verið á
færi fárra að stunda með árangri
vegna almenns þekkingarskorts.
[ fáum orðum sagt, leggur bókin
áherslu á að einstaklingar fari ofan í
V
12