Frjáls verslun - 01.09.1978, Síða 15
ordspor
Það er víðar en í flugmálum sem fyrir-
tœki sameinast hér á landi. Þannig gerðist
það nýlega, að málningarverksmiðjan
Harpa hf. keypti einn af keppinautum
sínum, Atlantis hf í heilu lagi fyrir 52
milljónir króna eftir því sem Frjáls verzl-
un kemst nœst. Þekktasta framleiðsla
Atlantis hf. er Spreadmálning, sem seld
hefur verið í svokölluðu tónalitakerfi og er
framleidd eftir bandarisku einkaleyfi.
Harpa hf. hefur hins vegar fundið upp
sínar framleiðsluvörur sjálf og aðlagað
þcer íslenzku veðri og aðstœðum og er
Hörpusilkið þekktasta framleiðslutegund
fyrirtœkisins. Ætlunin mun vera að fram-
leiða og selja al/ar núverandi fram-
leiðsluvörur beggja fyrirtœkjanna áfram.
•
Forráðamenn skipafélagsins Bifrastar
hafa verið á ferðalagi um Norðurlönd að
undanförnu til að skoða skip. Nú er
nokkum veginn afráðið að Bifröst festi
kaup á öðru skipi sínu og verður það um
1500 tonn. Afkoma félagsins á þessu ári
hefur verið góð og munu brúttótekjur á
fyrra árshelmingi hafa numið tæpum
hálfum milljarði á móti tæplega 300
milljón króna gjöldum.
Rannsóknir á hagkvœmni sykurvinnslu
hér innanlands hefjast fljótlega á vegum
nýstofnaðs áhugamannafélags um sykur-
vinnslu. Verða þessar rannsóknir gerðar í
samvinnu við finnskt sykurvinnslufyrir-
tœki. Þegar hefur fengizt vUyrðifyrir lóð í
Hveragerði fyrir sykurverksmiðju, ef af
framkvœmdum verður, og er reiknað með
að hún rísi fyrir ofan þorpið í nágrenni
Grýtu. Þar er hœgt að fá nœgan jarðhita
til vinnslunnar. Gert er ráð fyrir að flytja
hráefnið, sem er melassi inn með skipum
til Þorlákshafnar, en melassi er óhreinsað
sýróp. A uk sykursins fást við úrvinnsluna
afgangsefni, sem þurrka má til notkunar í
fóðurbœti eða til sprittframleiðslu ogyrði
það vœntanlega gert í samstarfi við
ÁTVR.
•
Menn em að spá í hver verði næsti
forstjóri Tiyggingastofnunar ríkisins en
það kemur í hlut tryggingaráðherra Al-
þýðuflokksins að skipa í það embætti.
Miklar líkur eru taldar á, að Eggert G.
Þorsteinsson, fyrrverandi alþingismaður,
verði fyrir valinu. Eggert hefur setið í
tryggingaráði og er fyrrverandi trygg-
ingaráðherra.
Kristileg vakning á sér nú stað meðal
æskufólks í höfuðborginni. Samtökin
Ungt fólk með hlutverk eflast með hverri
vikunni sem liður og nemendur / efstu
bekkjum grunnskóla verja drjúgum tíma
á kristilegum kvöldsamkomum þar sem
þeir taka virkan þátt í bœnagerð og söng.
Er þetta fagnaðarefni flestum öðrum en
líffrœðikennurum í skólum borgarinnar,
sem hafa sárlega kvartað undan hlutskipti
sínu i umrœðum við þetta áhugafólk um
trúmál. Það hafnar nefnilega þróunar-
kenningunni og er ófeimið að láta skoð-
anir sínar í Ijósi! ^
Fullyrt er að sala hlutabréfa í Flug-
leiðum til almennings hafi enn ekki
numið þeim upphæðum, sem runnið hafa
í auglýsingar vegna þessarar hlutabréfa-
sölu. Hins vegar hafa starfsmenn félags-
ins sýnt mikinn áhuga og þó sérstaklega
flugmennimir. Þeir hafa margir tekið lán
í lífeyrissjóði sínum vegna hlutabréfa-
kaupa og ætla að hafa ákveðin áhrif á
stjórnarkjör íiélaginu á næsta aðalfundi.
L
15