Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 23
verð hingað til lands verði miðaö
við það, sem þar tíðkast að jafnaði.
Þetta þýðir það að skapa verður
verðlagsskrifstofunni aðstöðu til
þess að fylgjast mjög náið með
verðlagi t. d. á Norðurlöndunum. Af
þessum ástæðum hefi ég hvatt
mjög til þess, að verðlagsstjóri fái
þessa aðstöðu, og hann hefur að
undanförnu tekið þátt í norrænu
samstarfi, sem vonandi leiðir til
þess, að í framtíðinni verði um að
ræða reglulega sanrwinnu og upp-
lýsingamiðlun milli verðlagsskrif-
stofanna á Norðurlöndum. Þá er
þess að geta, að seint i næsta
mánuði eða þar næsta verður
væntanlega haldinn fundur við-
skiptaráðherra Norðurlandanna,
og þar vænti ég þess, að sam-
starfsmálefni verðlagsyfirvalda á
Norðurlöndunum verði tekin fyrir,
auk ýmissa annarra málefna.
— Settar hafa verlð nýjar reglur
um sölu ferðamannagjaldeyris tll
fslendinga. Hvaða reglur gilda um
hámarksyfirfærslur til kaupsýslu-
manna og annarra, sem tara tll út-
landa í viðsklptaerlndum? Er fyrlr-
hugað að breyta jjeim reglum?
Hvað fá ráðherrar mikinn erlendan
gjaldeyri í dagpeninga vegna ferða
sinna til útlanda? En ríkisstarfs-
menn?
Svavar: — Aðalreglan er sú, að
kaupsýslumenn í viðskiptaerindum
fái jafnvirði allt að $ 1.000 í ferð.
Vikið er frá þessu, ef sérstaklega
stendur á. Almennur gjaldeyris-
skammtur ferðamanna er nú kr.
215.000 eöa jafnvirði ca. $ 700. I
hópferðum er þessi fjárhæð lækk-
uð, þar sem þá eru ýmsir liðir
ferðakostnaðar greiddir af ferða-
skrifstofu.
Ráðherrar eiga rétt á að fá í dag-
peninga jafnvirði DM 216 á dag. Að
auki greiða sendiráð fslands gisti-
kostnað þeirra og símtöl.
Ríkisstarfsmenn fá í opinberum
erindum dagpeninga jafnvirði DM
180 á dag. í Bandaríkjunum fá þeir
$ 80 á dag. Við þjálfun og eftirlits-
störf eru þessar greiðslur DM 110
og $ 48 á dag. Viðskiptaráðuneytiö
hefur nú ásamt Seðlabankanum,
hafið undirbúning að samræmdum
heildarreglum um þessi mál.
— Magnús Kjartansson fyrrver-
andi alþingismaður hefur í nýlegri
grein í Þjóðviljanum eindregið
hvatt til hækkunar vaxta. Hann
hefur jafnframt gagnrýnt hálfvelgju
Þjóðviljans í vaxtapólitíkinnl. Hver
er afstaða þín til spurningarinnar
um hækkun eða lækkun vaxta og
er aðgerða að vænta í þeim efnum
á næstunni?
Svavar: — I sambandi við
vaxtamál vil ég leggja á það mjög
mikla áherslu, að vextir á íslandi
eru ekki bara afleiðing af framboði
og eftirspurn fjármagns. Vextir á
Islandi eru háðir pólitískri ákvörðun
á hverjum tíma. Það er nauðsynlegt
að leitast við að hafa vexti sem
næst því, sem kalla má raunvexti.
Hins vegar er það þannig, að út-
flutningsatvinnuvegir okkar verða
að sjálfsögðu að byggja að mjög
verulegu leyti rekstur sinn og alla
starfsemi á lánsfé. Það er fráleitt að
vera með mjög háa vexti á lánum til
útflutningsatvinnuveganna, vegna
þess að þannig vextir, mjög háir
vextir á afurða- og rekstrarlánum,
eru tilefni til þess að fella okkar
krónu, sem er nú þegar orðin rýrari
en mörg okkar hefðu óskað.
Vextir eru ekki bara afleiðing,
þeir eru líka orsök þess verðbólgu-
ástands, sem hér er á (slandi. Þess
vegna tel ég nauðsynlegt og rétt-
lætanlegt að lækka vexti af afurða-
lánum til útflutningsatvinnuveg-
anna og miða þá við það, að unnt
sé með skaplegum hætti að reka
þessar undirstööugreinar lands-
manna, sem öll önnur lífskjör okkar
byggjast á. Eina leiðin til þess að
tryggja raunvexti er auðvitað sú að
þerjast gegn verðþólgunni og að
reyna að ná henni niður frá því sem
nú er. Raunvextir í 50% verðbólgu
eru 52%. Það segir sig vitaskuld al-
veg sjálft, að núverandi verðbólgu-
stig myndi ekki lagast að neinu leyti
heldur versna, ef raunvaxtastefnu
væri fylgt í útflutningsatvinnugrein-
um okkar. Það er talið að vextir séu
nú um 8% af útgjöldum frystihús-
anna í landinu. Ef þau ættu að
greiða það sem kallað er raunvextir
fyrir afurða- og rekstrarlán sín, má
ætla, að þessi tala yrði ekki 8%
heldur líklega 14%. Þetta þýðir þá
ósköp einfaldlega, að gengið
lækkaði í raun, sem mismuninum
næmi, hraðinn á verðbólgunni yrði
meiri, raunvextirnir hækkuðu aftur,
gengið lækkaði aftur, verðbólgan
ykist ennþá hraðar o. s. frv. o. s. frv.
Því tel ég, að vextir á afurða- og
rekstrarlánum til útflutningsat-
vinnuvega okkar eigi að vera lágir.
Meginatriðið er það, að við fikr-
um okkur út úr þeim vítahring
verðbólgunnar, sem nú umlykur
okkur í þessu þjóðfélagi. Það verð-
um við að gera með samræmdum
aðgerðum, þar sem við þeinum á-
takinu að peninga- og bankamál-
unum, aö fjárfestingunni, innflutn-
ingnum og versluninni og að við
náum þannig árangri stig af stigi
með sameiginlegum heildarað-
gerðum. Engin ein aðgerð dugir til
þess að leysa vandann og sam-
ræmdar aðgerðir leysa vandann
heldur ekki á einu augnabliki. Það
tekurtíma.
Vonandi fær núverandi ríkis-
stjórn tíma til þess að vinna sig út úr
þessum vanda. Annars er hætta á
því að framundan sé ný kollsteypa
stærri og hættulegri en nokkru
sinni fyrr. Sú kollsteypa gæti í senn
haft mjög alvarlegar afleiðingar
fyrir kjör fólksins í landinu og fyrir
allt atvinnulífið á (slandi. Sú koll-
steypa gæti þýtt það, að við glöt-
uðum efnahagslegu forræði okkar
með einhverjum hætti í hendur út-
lendinga. Þess vegna er barátta
núverandi ríkisstjórnar við efna-
hagsvandann öðrum þræði sjálf-
stæðisbarátta.
23