Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 28
adutan
Kínverjar endurskipuleggja
iðnaðinn og landbúnað
,, Við verðum óhjákvæmilega undirokuð á nýjan
leik, ef okkur tekst ekki á næstu áratugum að
hagræða svo um munar á þeim sviðum, þar
sem efnahagsástandi okkar og tækniþekkingu
er stórlega ábótavant í samanburði við að-
stæður í löndum heimsvaldasinnanna. “
— Mao Tse Tung.
kommúnistaflokksins, gerir ráð fyrir aö stefnt
verði hröðum skrefum að iðnvæðingu, vél-
væðingu í landbúnaði og aukinni utanríkis-
verzlun. Þá er fyrirhugað að endurbæta skóla-
kerfió og vísindastarfsemi og ennfremur aö
endurskipuleggja grundvallaruppbyggingu at-
vinnulífsins í því augnamiði að hleypa auknum
þrótti í framleiðsluna.
Nákvæm markmið
í áætluninni er kveðið á um tiltekin markmiö
fram til ársins 1985 með óvenjulegri nákvæmni.
Gert er ráð fyrir að kornuppskeran verði þá
komin í 400 milljón tonn miðað við 285 milljón
tonn í fyrra. Stálframleiðslu á meir en tvöfalda
eða í 60 milljón tonn og áformað er að Ijúka 120
mikilvægum, nýjum framkvæmdum, þar á
meðal sex stáliðjuverum en eitt þeirra, sem
Japanir munu reisa, á að framleiða sex milljón
tonn á ári. Á verkefnaskrá eru einnig 10 nýjar
olíu- og gasvinnslustöðvar, 30 raforkuver, fimm
stórar hafnir, sex nýjar járnbrautarlínur, þús-
undir kílómetra af nýjum olíu- og gasleiðslum
Áróðursmynd, er sýnir verkamenn í olíuiðnaðinum. Ráðgert er að hefja
olíuvinnslu á 10 nýjum stöðum fyrir 1985.
Kínverskir ráðamenn
hafa gert áætlun til
ársins 1985, þar sem
lögð er áherzla á iðn-
væðingu, vélvæðingu
í landbúnaði og
aukna utanríkisverzl-
un. Áætlunin þykir
marka þáttaskil í
efnahagsmálastefnu
Kínverja.
Foringinn mikli er látinn og mikið af hinni
róttækustu hugmyndafræði hans og tilraunum
í efnahagsmálum hefur farið með honum í
gröfina. En eftirmenn Maos, Hua Kuo-Feng,
formaður og forsætisráðherra, og Teng
Hsiao-Ping, varaforsætisráðherra, hafa ekki
gleymt viðvörunum Maos um hættur stöðnun-
arinnar. I stefnuskrá, sem snerta mun öll við-
skiptalönd Kínverja, hafa ráðamenn í Peking
sett niður á blað viðamikla átta ára fram-
kvæmdaáætlun, sem hefur að markmiði að
koma efnahag Kínverja í fremstu röð á al-
þjóðavísu um næstu aldamót.
Þessi áætlun, sem kynnt var á síöasta þingi
28