Frjáls verslun - 01.09.1978, Qupperneq 42
sérefni
Matvælaúrvalið
aldrei meira
Verzlað í stórmarkaðl. Úr 4000 tegundum að vel|a.
Á þessu ári er gert ráð fyrir að
heildarvelta fyrirtækja og verzlana
í matvælaframleiðslu, innflutningi
og verzlun nemi um 100 milljörð-
um króna með söluskatti þann
tíma, sem hann var á matvöru og
mun láta nærri að það sé um
þriðjungur heildarverzlunar í
landinu. Um 385 fyrirtæki reka
verzlun með matvöru, og eru þá
taldar hreinar matvöru- og ný-
lenduvöruverzlanir svo og bland-
aðar verzlanir, eins og kaupfélög-
in og stórmarkaðir eins og Hag-
kaup. Hins vegar mun láta nærri
að matvara sé seld í u. þ. b. 550
verzlunum, eða að ein matvöru-
verzlun sé fyrir hverja fjögur
hundruð íbúa hér á landi.
Þróunin í matvælaframleiðslu
og innflutningi matvæla og skyldr-
ar vöru hefur að mestu leyti orðið á
s. I. 15—17 árum, eða frá því að
hömlum af innflutningi var aflétt
upp úr 1960. Úrval matvöru og ný-
lenduvöru hér á landi er orðið
feiknalega mikið og mun láta nærri
að stór kjörbúð hafi á boðstólum
um 4000 vörutegundir, sem gefur
nokkra mynd. Útlendingar, sem
heimsækja ísland og koma inn í
kjörbúðir hér reka gjarna upp stór
augu er þeir sjá allt vöruúrvalið,
fjölda tegunda af einstakri vöru.
Innan við 5 starfsmenn í 415 mat-
vöruverzlana
Til skamms tíma voru langflestar
verzlanir hér, að kaupfélögum
undanskildum smáverzlanir,
kaupmaðurinn á horninu. Á s. I.
áratug hefur hins vegar orðið
veruleg þróun í átt til þess að
byggðar hafa verið stærri og
vandaðri verzlanir en áður þekkt-
ust og samfara því hefur vöruúr-
valið aukizt. Þó eru hérlendis 194
verzlanir, þar sem færri en 5
manns starfa við reksturinn, 55 þar
sem starfsmenn eru frá 5—30, en
aðeins 3 þar sem starfsmenn eru
fleiri en 30. í skýrslum Verzlunar-
ráðs íslands kemur í Ijós að 4/5
verzlana með matvörur hafa innan
við 5 starfsmenn. Hér eru ekki
taldar með sjoppur og söluskálar,
sem eru 220, þar af 80 á höfuð-
borgarsvæöinu og 140 úti á
landsbyggðinni.
Breytingar á lífsvenjum hafa
einkum orðið þær á s. I. 15 árum,
að mjög hefur færst í aukana að
konur vinni fulla vinnu utan heim-
42