Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1978, Page 43

Frjáls verslun - 01.09.1978, Page 43
ilis, einkabílaeign landsmanna hefur aukizt mjög svo og að frysti- kistur eru nú til á nær hverju heimili. Hér áður fyrr var það lang- algengast aö fólk keypti daglega í matinn og því spratt upp aragrúi smábúða, sem eigandinn og 1 —2 starfsmenn unnu við. Þetta verzl- unarform er að sjálfsögðu mjög algengt enn í dag í eldri hlutum Reykjavíkur þar sem kaupmaður- inn er eins konar miðstöð lífsins í hverfinu. Mikill fjöldi fólks verzlar enn á þennan hátt, en hefur þó breytt sínum venjum á þann hátt, aö þaö sækir stærri innkaup, þar sem möguleikar eru á hagstæðara verði í stórmarkaði. Stórmarkaðir eru raunar fáir enn sem komið er, en stóru kjörverzl- anirnar taka orðið til sín mikið af daglegri verzlun. Þar er verzlað í stóru og vönduðu húsnæði, vöru- úrval er mikið og góð bílastæöi, viðskiptavinirnir afgreiða sig aö miklu leyti sjálfir og hafa því lítil kynni af afgreiðslufólki, sem þeir yfirleitt sjá aðeins við kassann, þar sem greitt er. Af stóru mörkuðun- um var Hagkaup fyrst til að ríða á vaðið og byrjaði með matvöru í smáum stíl fyrir rúmum 10 árum, en er flutt var í Skeifuna varð ger- breyting á. Önnur fyrirtæki, sem fylgdu á eftir voru Vörumarkaöur- inn, Kaupgarður, Árbæjarmarkað- urinn, Sparkaup í Hafnarfirði, sparimarkaður SS í Austurveri svo nokkur dæmi séu nefnd, og nú er í undirbúningi bygging stórmark- aðar í Mjóddinni neöan við Breið- holt, sem nokkur stór innflutn- ingsfyrirtæki eiga aðild að. Að jafnaði er talið að álagning mark- aðanna sé 13—16%, en hinna 15- 20%. Innflutningsfyrirtæki kaupmanna Sú þróun er nú að færast í vöxt að stór innflutningsfyrirtæki setji upp eða eignist hlutdeild í mörk- uðum og kjörverzlunum, og er þaö að nokkru leyti mótleikur við því er kaupmenn sjálfir settu á stofn eig- in innflutningsfyrirtæki. Tvö slík fyrirtæki eru nú starfandi, Inn- kaupasamband matvörukaup- manna IMA, og Matkaup hf. Til- gangurinn með stofnun IMAvarað Það er nóg pláss í M AZDA 323 fyrir fjölskylduna Kynnið ykkur, okkar og farangurinn ótrúlega hagstæöa verö frá kr. 3.080.000. (gengisskr. 18/10) Nú eru fáanlegar 5 geröir af MAZDA 323, er hægt aö gera betri bílakaup í dag? jj| £ jj § • m ■ ■ ■ Cs . r\ í 11 N'S'\'" ^ 'W . li w BÍLABORG HF. SMIDSHÖFDA 23 símar: 812 64 og 81299 43

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.