Frjáls verslun - 01.09.1978, Page 58
Hart barizt á
bak við tjöldin
Það er engum vafa
undirorpíð að hvergi er
samkeppni harðari en á
hinum alþjóðlega bíla-
markaði. Á undanförnum
árum hafa átt sér stað
veigamiklar breytingar á
fyrirsjáanlegri stöðu bíls-
ins sem framleiðsluvöru,
þær formúlur sem áður
réðu byggingu og útliti
bíla t. d. í Bandaríkjunum
hafa breytzt og þær
breytingar eiga eftir að
hafa afdrifaríkar afleið-
ingar fyrir bílaframleið-
endur í Evrópu og Japan.
Olíuþörf Bandaríkjanna er mætt
með innflutningi og nemur sá inn-
flutningur um 50% af heildarolíu-
notkun þar í landi. Af þessum sök-
um hefur Carter forseti beitt sér
fyrir því með sérstökum reglu-
gerðum að hafin verði framleiðsla
smábíla í stórauknum mæli. Liöur í
þessum nýju reglugerðum eru
ákvæði um leyfilega hámarks-
eyðslu bíla sem fullnægja verður
strax á árinu 1983. Er þar í grófum
dráttum miðað við að eldsneytis-
þörf fólksbíla á hvern ekinn kíló-
metra minnki um helming miðað
við það sem gilti fyrir árið 1977.
Þessar reglur munu leiða til þess
að bandaríkjamenn fari að fram-
leiða smábíla. Carter forseti á þó
eitt eftir. Þótt honum muni takast
að knýja bandaríska bílaframleið-
endur til þess að framleiða mun
smærri bíla, þá er langt frá því að
honum hafi tekizt aö sannfæra
bandaríska neytendur um kosti
þeirra umfram þá stóru, þægilegu
og hlutfallslega ódýru bíla sem sú
þjóð hefur átt að venjast.
Bandarískir bílaframleióendur
munu af þessum sökum snúa við
blaðinu. í stað þess að einbeita sér
að innanlandsmarkaði og láta út-
flutning mæta afgangi, neyðast
þeir til að stefna að gífurlegum út-
flutningi smábíla frá byrjun, eða
þann tíma sem tekur að venja
bandaríska neytendur við smábíl-
ana.
Þegar þess er gætt að fram-
leiddir eru 9 milljón bílar á ári í
Bandaríkjunum og framleiðendur
eru bæði fáir og stórir í sniðum,
þarf ekki mikið hugmyndaflug til
að gera sér grein fyrir hvað
bandarískir smábílar, sem eyða
um og innan við 10 lítrum á 100
kílómetra, þýða á alþjóðlegum
bílamarkaði: Samkeppnin mun
verða harðari en nokkru sinni fyrr.
Sjálfur Henry Ford II hefur látið svo
um mælt, að bandaríkjamenn séu
ekki í nokkrum vandræðum með
aö framleiða smábíla bæði betri og
ódýrari en flestir framleiðendur í
Evrópu gætu, — vandinn væri sá
að selja þá á heimamarkaðnum.
Reikningsdæmið er einfalt.
Evrópskur bíll á borð við Volks-
wagen Golf er t. d. þeim kostum
búinn, að hann má selja á mis-
munandi verði. Þegar framleiösla
—pBB
• N i '
1
58