Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 65
Bíleigendur verða að
snúa bökum saman
Frjáls verzlun ræöir
viö Tómas H. Sveins-
son formann Félags
íslenzkra bifreiðaeig-
enda
„Viö vorum með upplýsingabás
á Auto 78 þar sem starfsemi FÍB
var kynnt. Flestir spurðu hvað Fé-
lag íslenzkra bifreiðaeigenda
gæti gert fyrir þá, en við snerum
gjarnan spurningunni við, þannig
að hún hljóðaði á þá leið, hvað
aukin félagaaðild gæti gert FÍB
kleift að auka þjónustuna við bif-
reiðaeigendur. Fyrir þessu reynd-
ist vera skilningur því árangurinn
af þessari takmörkuðu upplýs-
ingamiðlun leiddi til þess að 300
nýir félagar bættust í FfB.“
Á þessa leið fórust Tómasi H.
Sveinssyni orð í spjalli við Frjálsa
verzlun fyrir stuttu. Við inntum
Tómas eftir því hvert væri hans
persónulega álit á möguleikum
samtaka á við FÍB, en Tómas hefur
kynnzt þessum málum vel í störf-
um sínum fyrir samtökin og með
samanburði viö það, sem sam-
bærileg hagsmunasamtök hafa
upp á að bjóða í nágrannalöndum
okkar.
Tómas sagði að það væri engin
ný bóla að hagsmunasamtök
neytenda, eins og t. d. bíleigenda,
ættu erfitt uppdráttar á (slandi.
Neytendalöggjöf væri ekki til hér-
lendis sem samsvaraði því sem
geröist í nágrannalöndum og
stuðningur opinberra aðila við
neytendasamtök væri hvergi minni
en á Islandi. Fyrir bragðið væru
slík félög í stööugu fjársvelti, og aö
mestu leyti upp á sjálfboðavinnu
félaga komin. Það leiddi svo af lík-
um, að þar sem vinnudagur er eins
langur og raun ber vitni á (slandi,
Tómas H. Sveinsson.
væri erfitt að fá fólk til sjálfboða-
starfa, og þeir sem gæfu kost á sér
væru iðulega misnotaðir, þar til
þeir bókstaflega gefast upp. öflun
nýrra félaga væri umfangsmikið
skipulagsstarf og það upplýsinga-
efni, sem til þarf er dýrt. Hinsvegar
væri það augljóst, aö því fleiri sem
félagsmenn væru, því auðveldari
yrðu þessi störf. „Við. erum því í
hálfgerðum vítahring," sagði Tóm-
as, „og mun það vera svipað og
ástandiö hjá Neytendasamtökun-
um. Þörfin fyrir umsvifameiri starf-
semi og aukna samvinnu bifreiða-
eigenda hefur aldrei verið meiri
þar sem FIB hefur bent á, og fært
rök fyrir því, að bifreiöaeigendur
séu skattlagðir úr hófi fram á ís-
landi." Þá báðum við Tómas H.
Sveinsson að fræða lesendur um
hvað það væri sem öflug samtök
bifreiðaeigenda þýddu fyrir hinn
almenna ökumann.
Lögfræðiþjónusta fyrir félags-
menn
„FlB hefur undanfarið starfrækt
vísi að lögfræðiþjónustu fyrir fé-
lagsmenn og aðra," sagði Tómas.
,,Ég tel að þessa þjónustu væri
æskilegt að auka, og að hún verði
félagsmönnum algjörlega að
kostnaðarlausu. Hún næði þá til
allra lögfræðilegra atriða, sem
snerta akstur og umferð og sem
félagsmenn teldu sig þurfa aðstoð
við að ná rétti sínum. Hér gæti
verið um mál að ræöa sem rekja
mætti til mats á umferðarrétti, mál
vegna sekta, tryggingabóta og
vegna lögfræðilegra atriða í sam-
bandi við bílakaup og sölu, svo
eitthvaö sé nefnt."
Þá benti Tómas á kvörtunar-
þjónustu sem nú væri starfrækt að
takmörkuðu leyti og taldi aö auka
þyrfti slíka ókeypis þjónustu. Þaö
væri fyrst og fremst um kvartanir
bíleigenda aö ræða vegna þjón-
ustu verkstæða, bílaumboða og
annarra aöila sem stunduðu við-
skipti á sviði bíla.
Ókeypis námskeið reglulega
Þá benti Tómas á, að nám-
skeiðahald á vegum FlB hefði ver-
iö reynt og taldi að tvímælalaust
væri bæði gagn að og þörf fyrir
stóraukið námskeiöahald. Þaö
væru einkum regluleg námskeið
þar sem fjallað væri um meðferð
og eðlilegt fyrirbyggjandi viöhald
bíla og regluleg námskeið í slysa-
vörnum og „hjálp í viölögum." Slík
námskeið ættu að vera félags-
mönnum að kostnaðarlausu.
„Ég er á þeirri skoðun, að FlB og
félög farstöðvaeigenda geti í sam-
einingu unnið aö því að auka ör-
yggi vegfarenda til mikilla muna
með því að koma upp þéttriðnu
neti móðurstöðva um land allt, þar
sem hlustað væri allan sólarhring-
inn. Á þann hátt mætti tryggja, að
hægt sé að ná í hjálp ef slys eða
óhapp ber að höndum, hvar sem
er á vegum landsins. Með því að
tengja slíkt net við vegaþjónustu,
•sem starfrækt væri allan sólar-
hringinn í stærstu bæjum lands-
ins, auk lögreglu og sjúkraliðs,
væri stórum áfanga náð í eflingu
slysavarna í landinu. Þetta starf
ætti að vinna í samvinnu við fleiri
65