Frjáls verslun - 01.09.1978, Qupperneq 66
aðila sem láta sig umferðaröryggi
varða, svo sem tryggingarfélögin,
umferðarklúbba og Slysavarnarfé-
lagið og deildir þess úti á landi.
Fræðsla er undirstöðuatriði
Þá spurðum við Tómas H.
Sveinsson, hvort hann teldi ekki
að aukin fræðsla væri virkasta
leiðin til þess að stuðla að bættum
hagsmunum bíleigenda.
,,Það er enginn vafi á því að þar
mætti gera betur. Því miður hefur
útgáfa félagsblaös FlB ekki gengið
nógu vel en sú upplýsingastarf-
semi sem FÍB hefur rekið gagnvart
fjölmiðlum hefur að mínum dómi
sannaö, að þar mætti gera miklu
betur. Ég er þeirrar skoðunar, að
stöðug fræösla og áróöur í fjöl-
miðlum, skólum og á vinnustöðv-
um muni fljótt bera árangur. Það
er ótvírætt hagsmunamál almenn-
ings að hags bíleigenda sé gætt,
þar sem bíllinn er nauðsynlegt al-
menningsfarartæki hér á landi, og
þá fer ég ekkert leynt með það, að
það er fyrst og fremst gagnvart
ríkisvaldinu sem baráttan stendur
og bíleigendum hefur aldrei verið
nauðsynlegra en einmitt nú að
snúa bökum saman.
Það er mjög brýnt mál að koma
blaðaútgáfu félagsins í fastar
skorður og er ég vongóður um að
það megi takast á næstunni."
Vegaþjónustan, skoðunarstöð,
akstursbraut
Þá ræddi Tómas um fleira, sem
hann taldi að FÍB gæti gert í krafti
almennrar aðildar bíleigenda.
Nefndi hann m. a. sérstaka akst-
ursbraut sem hægt væri að koma
upþ, en þar mætti líkja eftir ýmsum
þeim aöstæöum sem fyrir geta
komið í umferðinni, t. d. hálku. Á
þessari braut mætti síðan leið-
beina ökumönnum í akstri og
slysavörnum, hemlunarmörkum o.
fl. Einnig kæmi til greina að slík
braut væri notuð fyrir aksturs-
íþróttir af ýmsu tagi.
Og þá barst talið að vegaþjón-
ustu F(B.
„Það er ekkert vafamál, að
vegaþjónusta FfB hefur sannað
gildi sitt á undanförnum árum og
það er þjónusta sem bíleigendur
kunna vel að meta. Ef bæta mætti
þessa þjónustu, væri það einkum
á þann hátt, að þjónustubifreið
væri viðbúin að staðaldri í öllum
stærri kauþstöðum landsins eða
byggðarlögum. Umsjón með henni
heföi reyndur bifvélavirki sem
hefði yfir öllum nauðsynlegum
tækjabúnaði að ráða til skyndivið-
gerða undir berum himni. Þessar
þjónustubifreiðar þyrftu að vera
öflugar og með drifi á öllum hjólum
þannig að þær gætu veitt aöstoö í
slæmu færi á vetrum og við gang-
setningu í kuldum, jafnvel utan
venjulegra vega.
Annað mál sem rætt hefur verið
og er mjög áhugavert, er að FÍB
gæti komið á fót skoðunarstöð þar
sem hægt er að fá bíla skoðaða
gegn vægu gjaldi í því skyni að
finna hvort leyndir gallar séu í ör-
yggisbúnaði, t. d. í sambandi við
kaup og sölu notaðra bíla og sem
almennt fyrirbyggjandi eftirlit og í
viðhald í tengslum viö skoðunar-
stöðina. í þessari skoðunarstöð
ætti einnig að vera hægt að fram-
kvæma lögboðna skoðun sem nú
er í höndum Bifreiðaeftirlits ríkis-
ins."
Aukin þjónusta við ferðalanga er-
lendis
„Viö hjá FÍB höfum haft sam-
band viö gjaldeyrisyfirvöld í því
skyni að fá nauðsynlegt leyfi til
þess að geta gefið út skuldaviður-
kenningu fyrir félagsmenn sem
nota má í vissum tilvikum erlendis.
Málið hefur verið í rannsókn hjá
Gjaldeyrisdeild bankanna undan-
farna 5 mánuði. Ef leyfi fæst er hér
um mjög hagnýta þjónustu að
ræða, sem getur komið sér afar vel
fyrir þá sem feröast á eigin bíl er-
lendis. Ég ætla ekki að fara út í aö
skýra í einstökum atriðum á hverju
þetta byggist, en í stuttu máli get-
um við sagt að þessi þjónusta gæti
þróast uþþ í það aö greiðsla sé
fyrirfram tryggð fyrir ýmsa neyðar-
þjónustu sem ferðamenn kunna
að vera í þörf fyrir erlendis, svo
sem viðgerðir eða drátt til verk-
stæðis, sjúkraþjónustu vegna
slysa, lögfræðiaðstoð vegna slysa
og sektir vegna umferðalagabrota.
Inn í þennan þjónustuþátt yrði
síðan bætt margs konar þjónustu
samstarfsfélaga okkar erlendis.
Búvélaverk-
stæðið hf.
ÖSEYRI2
AKUREYRI
★
ALHLIÐA
VÉLAVIÐGERÐIR
★
NtSMÍÐI
svo sem
innréttingar
í gripahús.
★
SÖLUUMBOÐ:
SÖNNAK
rafgeymar
★
RAFGEYMA-
HLEÐSLA
SÍMI
96-23084
66