Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 76
Linda getur ekki
annað eftirspurn
hingað skoskan sérfræðing, sem
hefur starfað við karamellufram-
leiðslu í fjörutíu ár, með samstæð-
unni og hefur hann verið að inn-
leiða okkur í leyndardóma þeirra.
Annars get ég varla sleppt ykk-
ur, án þess að ég minnist á mjólk-
urduftið. Það er einn af stærstu
liðum hráefnis okkar og er ekki
hægt að oröa það öðruvísi en að
viö erum beittir afarkostum í þeim
málum. Við getum fengið mjólkur-
duft frá Englandi og Danmörku á
þrjú hundruð krónur kílóið. Hér er
okkur aftur á móti neitað um
heimild til innflutnings og neyddir
til að kaupa það á þrettán hundruð
krónur kílóið. Síðan greiðir ríkið
niður mismuninn og við eigum í
sífelldum vandræðum með að fá
hann endurgreiddan. Ég á inni
núna milljónir vegna þessa."
Eyþór í Llndu hress og kátur að vanda.
„Hér eru eðlilega alltaf ein-
hverjar breytingar, og á hverju ári
keypt eitthvað af vélum, enda má
heita að hér sé allt sjálfvirkt og að
mannshöndin komi hvergi að
framleiðslunni," sagði Eyþór H.
Tómasson, forstjóri sælgætis-
gerðarinnar Lindu, þegar blaða-
maður Frjálsrar verzlunar barði
dyra á skrifstofu hans. „Tækni-
þróunin hefur verið svo hröð á
þessu sviði, sagði Eyþór enn-
fremur, „og það dugir ekki annað
en að fylgja á eftir.
Við erum hér í þeirri aðstöðu að
geta aldrei annað eftirspurn. Það
vantar alltaf vörur. Með kexinu eru
það líklega um fjörutíu vöruteg-
undir, sem við framleiðum, sem
líklega er of margþætt, enda eig-
um við í sífelldum vandræðum
með að afgreiða vörupantanir. Við
fluttum ofurlítið út af sælgæti á
árabili, en það er úr sögunni, að ég
held. Að minnsta kosti meðan við
náum ekki að sinna innanlands-
markaðinum aö fullu. Enda væri
það ákaflega dýrt að vélvæða eins
og þyrfti til að hefja útflutning og
þótt ég þurfi ekki að kvarta í pen-
ingamálum, þá er fjármagnsskort-
ur alltaf fyrir hendi."
Keyptu nýjar vélar
„Nýlega keyptum við kara-
mellusamstæðu og búum nú til
fjórar tegundir af þeim, þar af eina
tegund sem ekki var til hér áður.
Þá getum viö hvenær sem er hafið
framleiðslu á ávaxtakaramellum,
ef tími ynnist aðeins til. Ég fékk
76