Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1978, Page 85

Frjáls verslun - 01.09.1978, Page 85
Fjórir milljaröar komnir í hitaveituna á Akureyri „Hitaveitan er númer eitt hjá okkur í dag, hana ber hátt yfir allt annað,“ sagði Valgarður Bald- vinsson, bæjarritari á Akureyri, þegar Frjáls verzlun innti hann eftir fregnum af bæjarfélaginu sjálfu. „Það er gífurlegt fjármagn, sem í hana fer,“ sagði hann enn- fremur, „enda held ég, að í dag séu komnir einir fjórir milljarðar í þetta verkefni. Það er þó aðeins áætluð upphæð, ég hef ekki ná- kvæmar tölur. Við hófum borun- arframkvæmdir vegna hitaveit- unnar árið 1975, en lagning hennar hófst í fyrravor. Við vonum að henni verði lokið innan þriggja ára. f dag standa framkvæmdir þannig, að um áramót ætti um helmingur bæjarbúa að vera bú- inn að fá hitaveitu." Af viðræðum við Akureyringa hefur okkur virzt að mönnum þyki harðar gengið eftir innheimtu op- inberra gjalda hjá bænum nú en áður. Er það rétt? „Það gæti verið nokkuð til í því, þótt við höfum ekki beitt neinum þvingunaraðgerðum í ár umfram önnur ár. Staðreyndin er sú, að bærinn hefur verið með mjög miklar framkvæmdir í sumar og peningaþörfin er mikil. Við eigum í greiðsluerfiðleikum og því höfum við gengið nokkuð þétt á eftir op- inberum gjöldum. Við verðum hreinlega að knýja á að bæjar- gjöldin séu greidd." Hvaða framkvæmdir, aðrar en hitaveituna ber hæst? „Jafnframt hitaveitunni hefur verið gert verulegt átak í gatna- gerð. Þar á ég við enduruppbygg- ingu gamalla gatna, endurnýjun lagna og undirbúning undir mal- bikun, sem fara á fram, þegar hitaveituframkvæmdum er lokið. Við höfum í sumar lagt áherzlu á undirbygginguna, til þess að þurfa sem minnst að rífa upp fyrir hita- veitu. önnur stór verkefni eru svo m. a. svæðisíþróttahús, sem er eitt af forgangsverkefnum okkar. Bæjar- stjórnin hefur sett það mark að Ijúka við það á þessu kjörtímabili. Svo er unnið að skólabyggingum, byggingu dagvistarheimila og við- byggingu við dvalarheimilið Hlíð, sem er elliheimili. Það má ekki gleyma því, að hér er í byggingu mikil viðbót við sjúkrahúsið, sem er stórt verk. Þetta er eiginlega bygging á nýju sjúkrahúsi, því í heildina er það meira um sig, en það sjúkrahús sem fyrir er og byggt er í tengslum við. Nú er unnið við eina álmu þessa mannvirkis. Við getum einnig minnst á, að unnið er að undirbúningi fyrir bætta aðstöðu í Hlíðarfjalli. Fram- kvæmdir þar fóru lítiö af stað í „Hjá okkur eru verkefnin nóg, að minnsta kosti það. Satt að segja er yfirfullt að gera, sérstak- lega í heit-húðuninni,“ sagði Jó- hann Guðmundsson, forstjóri fyr- irtækisins Sandblástur og málm- húðun á Akureyri, þegar Frjáls verzlun hafði samband við hann. „Við vinnum hér mikið fyrir Slippstöðina og RARIK, en fyrir þá unnum við til dæmis allt járnverk í línurnar hér Norðanlands," sagði Jóhann ennfremur, „þannig að sumar, en ætlunin er að bæta við skíðalyftum og fleiru." Akureyri hefur löngum verið talin hafa sérstöðu, hvað varðaði stöðugleika í atvinnu- og við- skiptalífi. Er það að breytast núna? „Það held ég ekki. Ekki svo verulegt geti talizt. Það er rétt, að hér hafa hlutirnir verið stöðugri, haldið betur jafnvægi en víða annars staðar á landinu. Atvinnulff hér hefur byggzt mikið á iönaði, þannig að sveiflur í sjávarútvegi hafa ekki orðið eins tilfinnanlegar. Við höfum ekki lent í neinum síld- arævintýrum. Ég held þetta jafn- vægi sé ekki að raskast neitt í dag, að öðru leyti en því sem eðlilegt er, að ástand í efnahagsmálum þjóð- arinnar hafi áhrif á staðinn, eins og aðra staði." verkefnin eru óþrjótandi. Við höf- um hér um fjórtán starfsmenn núna og þurfum að stækka til að geta annað því sem gera þarf. Hér er allt að springa utan af okkur." Þið hafið þá undan engu að kvarta? „Nei. Ekki annað en að við eig- um í hræðilegum erfiðleikum með rekstrarfé, eins og allir aðrir. Það tekur því varla að syngja þann söng, það þekkja hann allir." „Nóg að gera“ í Sandblæstri og málmhúðun 85

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.