Frjáls verslun - 01.05.1980, Blaðsíða 23
TOLLKRITIN
Sparnaður upp á þrjá milljarða
fyrir þjóðarheildina
Með tollkrít styttist geymslutími vöru, hún kemst fyrr á markað og vaxtakostnaður minnkar.
.0 ] sm\
i.0 |bo.:
“x 8
Ö? " ;>3e“
L 9, '6-. f,- ■jMnl W~
r ix
Hvað skyldi vera hægt að fá fyrir
þrjá milljarða króna ... Eflaust
verða svörin við þessari spurn-
ingu mörg og mismunandi. Til
skýringar á stærð þessarar upp-
hæða má nefna, að hún er jafn há
fjárveitingu ríkisins til utanríkis-
þjónustunnar eða Landhelgis-
gæslunnar. Þrír milljarðar króna
fara til embættis Lögreglustjórans
íReykjavík, og þrír milljarðar fara
til hafnarmála á íslandi. Á þessu
sést hve mikið er hægt að gera í
samneyslumálum væru þessir
peningar fyrir hendi.
En hvaðan er hægt að fá þrjá
milljarða króna? Hið fyrsta sem
mönnum dettur í hug, að ríkið gæti
gert er að skattleggja almenning
enn meira, leggja fleiri skatta á at-
vinnuvegina, gjöld á inn- og út-
flutning o.s.frv. En hin hliðin á
málinu er til. Fjármunir fást með
sparnaði og sparnaður hjá hinum
ýmsu aðilum, jafnt hinu opinbera
sem einstakling og atvinnufyrir-
tækjum, jafngildir sparnaði þjóð-
arheildarinnar. Félag íslenskra
stórkaupmanna hefur svar við
þeirri spurningu sem spurt var í
upphafi. Forsvarsmenn félagsins
halda því fram, að með því að gefa
greiðslufrest á aðflutningsgjöldum
innflutningsvara gætu þrír millj-
aröar króna sparast á einu ári. Sá
sparnaður kæmi hinu opinbera til
góða jafnt sem innflutningsaðilum
sjálfum og neytendum.
Það vill segja; með tollkrít getur
þjóðin sparað þrjá milljarða króna.
Tekin yrðu þá upp hagkvæmari
vinnubrögð hjá öllum aðilum sem
málið snerta og niðurstaðan yrði
lægra vöruverð og meira fjármagn
til ráöstöfunar hjá hinu opinbera
23