Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1981, Side 19

Frjáls verslun - 01.08.1981, Side 19
einstakra banka veita gagnvart hverju ööru. Þaö er hægt aö leggja inn eöa taka út úr sparisjóðsbókum, leggja inn á veltureikninga og skipta ávísunum, taka á móti greiðslum á víxlum og af- borgunum af skuldabréfum hvar sem er á landinu. Þá höfum við á prjónunum nýjungar í samvinnu eins og flutnings- þjónustu milli sparisjóóanna, sem veitir viðskiptamanni sparisjóös rétt á að flytja meö sér milli sparisjóða viö bú- ferlaflutninga réttindi er hann kann aö hafa áunnið sér t.d. til lánafyrirgreiöslu með viðskiptum við sparisjóð á fyrri heimaslóð. Ennfrernur erum við að hleypa af stokkunum nýjum lánaflokk- um annars vegar HEIMILISLÁNUM SPARISJÖÐANNA, sem eru lán tengd samningsbundnum sparnaði svo og lánum tengdum launareikningi í spari- sjóðum hvort tveggja sjálfvirk lán til viðskiptamanna sparisjóðanna og hagstæðari þeim en nokkrar aðrar innlánsstofnanir bjóða í dag. FV.: Vinnur Sambandið að því að sam- eina sparisjóði þar sem þeir eru smæstir eða fækka þeim? Myndi það ekki vera í mótsögn við markmið um að veita þjónustu í sem mestri nálægð við einstaklingana? Svar: Ég get fullyrt að Sambandið vinnur ekki að því að fækka sparisjóöum. Þvert á móti. Viö viljum fjölga spari- sjóðum með því aó aðstoða við að stofna nýja, þar sem sparisjóðir eru ekki starfandi í dag. Hitt er rétt að per- sónulega tel ég þaö mikils vert ef hægt væri að sameina sparisjóði, sem starfa í nálægð hver við annan eða stofna sjóði sem ná til sýslu eöa kjördæmis á grunni þegar starfandi sparisjóða á slíku svæöi. Þetta verður þó að gerast án þess að afgreiðslur sem eru starf- andi í dag séu lagöar niður þannig að áfram sé hægt að veita þjónustu í ná- lægð við einstaklingana. Sparisjóða- samböndin á hinum Noröurlöndunum hafa beitt sér fyrir hliöstæðum verk- efnum til þess að styrkja minni sjóði og gera þeim betur kleift að taka í notkun nútímatækni, sinna verkefnum sem þeim eru ofviða í dag og gera þá þannig samkeppnishæfari. Ég er ekki í nokkrum vafa um að við verðum að stefna að hliðstæðri þróun hér á landi. 19

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.