Frjáls verslun - 01.08.1981, Page 33
ráðuneytið beint framkvæmdum
við nýbyggingar heilsugæslu-
stöðva aðallega að tveimur gerð-
um fyrir H 1 og H 2 stöðvar, skv.
teikningum tveggja arkitekta, m.a.
í því skyni að hagnýta reynslu sem
þannig fæst við notkun hús-
næðisins og lækka byggingar-
kostnað. Dæmi um slíkar bygg-
ingar eru 375 ferm H1 í stöð á
Kirkjubæjarklaustri, 430 ferm H 2
stöð í Búöardal og 735 ferm H 2
stöð á Dalvík.
Þessum ábendingum virðist þó
ekki fylgt alls staðar. Má í því sam-
bandi nefna að 430 ferm H 1 stöð
var opnuð í Vík í Mýrdal á árinu
1978. íbúar á starfssvæði stöðvar-
innar losa rétt 900. Starfandi
læknir er þar nú einn, en aóstaða í
stöðinni fyrir tvo og einn tann-
lækni. Húsnæði stöðvarinnar er
og nýtt fyrir starfsemi lyfjaútibús,
og íbúð er þar fyrir sérfræðing.
Heildarhúsrými
heilsugæslustöðva
utan Reykjavíkur
áætlað 18.008 ferm
Að því er varðar gang fram-
kvæmda vegna bygginga heildar-
húsrýmis fyrir heilsugæslu, þá
segir í áðurnefndri grein ráðu-
neytisstjóra frá 1977 að þá hafi mál
þessi verið þannig á veg komin að í
byggingu voru 800 ferm í Reykja-
vík og 8.168 ferm utan Reykjavík-
ur, í hönnun 860 ferm utan
Reykjavíkur og áætluð viðbótar-
þörf þar sem fé hafði enn ekki
verið veitt af fjárlögum var 5.700
ferm í Reykjavík og 8.160 ferm
utan Reykjavíkur. Þetta gerir sam-
tals 7.400 ferm í Reykjavík og
18.008 ferm utan Reykjavíkur —
eða alls á öllu landinu 25.400 ferm.
Að því er næst verður komist er
staða þessara mála í dag þannig
að utan Reykjavíkur hafa verið
reistar nýjar byggingar fyrir starf-
semi 15 heilsugæslustöðva og í
byggingu eru 10. Víðar hafa pen-
ingar þó farið til stofnkostnaðar
heilsugæslustöðva. Við lauslega
athugun á fjárlögum fyrir árin frá
1974 til og með 1981 kom t.d. í Ijós
að fjárframlög hafa verið veitt til
allt að 50 heilsugæslustöðva utan
Reykjavíkur.
/*
N
V
Pensillinn
Verslun og
verktakaþjónusta
Hafnarstræti 1 — ísafirði
Sfmar: 94-3221 — 3720
Gólfteppi
Gólfdúkar
Veggstrigi
Allar
5