Frjáls verslun - 01.08.1981, Page 45
Mörg staerri flugfélög vilja
sneiöa hjá þessum milliliðum og
annast því sölu véla sinna sjálf.
Þann hátt hefur franska flugfélag-
ið UTA sem selt hefur fjölmargar
vélar af öllum gerðum allt frá litlum
tveggja hreyfla Twin Otter til 747
breiðþotna. Alitalia hefur sérstak-
an sölustjóra til að annast þessi
mál og hefur sá selt rúmlega 100
vélar á 17 ára starfsferli. Hlutverk
hans er aö hafa upp á flugfélögum
víðsvegar um heim sem áhuga
kynnu að hafa á kaupum hverju
sinni.
Miklar og örar
sveiflur í verði
En kaupveröið á hinum ýmsu
vélategundum breytist ört. Þannig
hækkaöi verð á DC-8-63 þotum til
vöruflutninga úr 10 í 14 milljón
Bandaríkjadollara á fjórum árum,
en er nú nýlega komið aftur niður í
10 milljónir. Hlutfallið milli fram-
boðs og eftirspurnar hefur mikil
áhrif á verðið hverju sinni. Þannig
féllu notaðar DC-10 breiðþotur í
veröi þegar Air New Zealand til-
kynnti að það vildi selja allar sjö
vélar sínar af þessari gerð. Fyrir ári
var verð á notuðum 727-100 þot-
um kringum fimm milljón dollarar.
Síðan hefur Lufthansa selt 18 vélar
af þessari gerð, og nú eru þær
komnar niður í 2,5 milljónir. Fyrir
tveimur árum var verð á sumum
gerðum af notuðum breiðþotum
kringum 28 milljón dollarar, en í
dag fást þær fyrir 17 milljón dollara
(ný 747 breiðþota kostar nú 70
milljón dollara). Nokkrar tegundir
véla eru illseljanlegar. Meðal
þeirra eru elstu Boeing 707 vél-
arnar (nokkrar munu hafa farið á
100.000 dollara) og elstu Cara-
vellevélarnar. Loks má geta þess
að þess eru dæmi að kaupendur
sækist frekar eftir notuðum vélum
frá evrópskum félögum en banda-
rískum því viðhaldið hjá evrópsku
félögunum sé betra.
Flestir eru á því að sveiflurnar í
veröi notaðra véla muni halda
áfram og jafnvel aukast þrátt fyrir
viðleitni seljenda að koma sér
saman um ákveðið, sanngjarnt
verð á hinum ýmsu vélategundum.
Og svo má alltaf búast við sértil-
boðum frá risum eins og United
Airlines: Sá sem kaupir þrjár DC-8
vélar fær hverja vél á eina milljón
dollara. gg
Hefur þú heyrt um
Vandex
hið frábæra þéttiefni fyrir steinsteypu?
Hönnuðir og verktakar þekkja og nota þetta efni aö
sjálfsögðu. En ef til vill veist þú ekki að hægt er að þétta
sprungur varanlega með Vandex, já og meira að segja er
hægt aö þétta kjallarann með því aö bera það innan á
jafnt sem utan á.
Hafið samband við skrifstofuna og fáið nánari upplýs-
ingar.
■a
FJÖLNISGÖTU 3a
(96)23248 - Pósthólf 535-Akureyri 602
Sparlsjóður
Norðfjarðar
Neskaupstað
Símar: 97-7125 og 97-7425
Símnefni: SPARISJÓÐUR
ÖLL VENJULEG INNLEND
BANKASTARFSEMI
45