Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1981, Page 62

Frjáls verslun - 01.08.1981, Page 62
skodun Skattsvik Oft heyrum við fólk tala um nauðsyn þess að taka hart á skattsvikum, og oft sjáum við tillögur frá stjórnmálamönnum þess efnis að auka skuli tekjur ríkissjóðs með því að stórefla skatt- eftirlit. Við höfum líklega flest litla samúð með þeim sem greiða ekki sína skatta í samræmi við lög og reglur, og við eigum því erfitt með að skilja af hverju aldrei verður neitt úr þessum áformum stjórnmálamannanna að taka rækilega á skattsvikunum. Kannski er bara ekki hægt að skattsvik skulum við draga upp auka tekjur ríkissjóðs með því að taka hart á skattsvikum. Ef það er rétt, þá förum við að skilja af hverju stjórnmálamennirnir eru ekki dug- legri við að ná til skattsvikaranna. En það hlýtur að segja okkur, að eitthvað meira en lítið sé bogið við lög, sem ekki borgar sig að fram- fylgja. Mynd úr neðanjarðarhagkerfinu Til þess að sjá hvernig það má vera, að ríkið tapi á því að taka fyrir mynd úr neðanjarðarhagkerfinu svokallaða. Þessi mynd er náttúr- lega aðeins ímyndun eins og allt, sem sagt er opinberlega um neðanjarðarhagkerfið verður að vera. Setjum okkur í spor eigenda og starfsmanna bílaverkstæðis. Segj- um að þetta sé lítið verkstæði með 4—6 menn í vinnu, auk eigandans. ímyndum okkur, að eigandinn sé með ríka sjálfsbjargarhvöt og aðeins í meðallagi umhyggjusam- ur fyrir velferð fjármálaráöherra og

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.