Frjáls verslun - 01.08.1981, Qupperneq 67
greiðlega þá eiga menn alltaf ein-
hverja hönk upp í bakið hver á
öðrum, menn skulda alltaf hver
öðrum einhverja greiða. Sam-
hjálparkennd fólks í nútímaþjóð-
félagi er sennilega að miklu leyti
haldið viö í neðanjarðarhagkerfinu
á meðan allir eru að hætta að vera
ábyrgir fyrir nokkrum sköpuðum
hlut í opinbera hagkerfinu.
Neðanjarðarhagkerfið
tengist opinbera hagkerfinu
Tengsl neðanjarðarhagkerfisins
og opinbera hagkerfisins eru
mikil og það er mjög mikilvægt að
skilja eðli þessara tengsla til að
geta metið áhrif aukins skatteftir-
lits. Við verðum sérstaklega að
gera okkur grein fyrir því hvort
aukin viðskipti neðanjarðar leiði til
aukinna opinberra viðskipta eða
öfugt eða hvort ekkert marktækt
samband sé þar á milli. Þessi
tengsl neðanjarðarhagkerfisinsog
opinbera hagkerfisins eru í fljótu
bragði þrenns konar:
í fyrsta lagi eru viðskipti flutt á
milli, bílaviðgerðir, tannviðgerðir,
rukkanir, smíðaverk og svo fram-
vegis fara neðanjarðar eða koma
upp á yfirborðið á víxl. Heildarum-
fang þessara viðskipta er þó alltaf
meira eftir því sem neöanjarðar-
hagkerfið er stærra, einfaldlega
vegna þess að viðskipti í neðan-
jarðarhagkerfinu eru ódýrari en í
því opinbera.
Svo þegar reynt er að gera
neðanjarðarviðskipti opinber og
skattleggja þau þá hverfur jafnan
drjúgur hluti þessara viöskipta al-
gjörlega. Það verður hagkvæmara
fyrir mennina á verkstæðinu að
gera sjálfir það sem þarf í íbúð-
unum, það hættir líka að vera þess
virði að þræla á kvöldin fyrir betri
bílum, og betri sólarlandaferðum,
því þegar aukavinnan er skattlögð
þá þarf að vinna svo miklu meira
en áður til að ná sama marki. Færri
verða líka tilbúnir til að láta þá fá
verkefni því þjónustan verður dýr-
ari.
Skatttekjurnar geta minnkað
Fyrstu áhrif aukins skatteftirlits
geta því veriö á báöa vegu hvað
varðar tekjur af skattheimtunni. Ef
alls ekkert hefur verið talið fram af
tekjum af neðanjarðarstarfsem-
inni, þá aukast skatttekjur ríkisins
við að færa viðskiptin upp á yfir-
borðið svo fremi að þau hverfi ekki
algjörlega. Ef einhver hluti tekn-
anna hefur hins vegar verið talinn
fram þá vaxa líkurnar á því að
tekjur ríkisins aukist ekki þrátt fyrir
aukið skatteftirlit.
Til að skilja þetta betur skulum
við setja upp dæmi um viðskipti
neðanjarðar þar sem 10 tímar af
vinnu eru seldir fyrir 100 krónur á
tímann. 50 krónur eru greiddar
fyrir aðstöðu og 100 krónur eru
greiddar í skatta (10%), þannig að
hreint tímakaup fyrir þann sem
vinnur vinnuna 85 krónur á tím-
ann.
Ef réttur skattur er 60% þ.e.
tekjuskattur, útsvar, söluskattur,
aðstöðugjald, launaskattur og
sum önnur launatengd gjöld, og ef
ætlast er til að réttur skattur sé
greiddur, þá verður hreina tíma-
kaupið aö lækka niður í 35 krónur
eða verðiö á útseldum tíma aö
hækka upp í 225 krónur eða
blanda af hvoru tveggja að koma
til.
Aðalatriðið er hinsvegar að
þegar tímakaupið eftir skatta
lækkar, þá vill fólk ekki vinna jafn
mikið og áður. Ef verkstæðismað-
urinn þarf allt í einu að fara að
vinna þrjá tíma í aukavinnu til að
ráða kunningja sinn í einn tíma til
að hjálpa til við smíðar í íbúðinni í
stað þess að geta fengið einn tíma
hjá kunningjanum fyrir einn og
kvart áður, þá er augljóst að það
fer að margborga sig fyrir verk-
stæðismanninn að smíða sjálfur.
Eins er líklegt að þegar hann
þarf aö fara að vinna þrjú kvöld í
viku í stað tveggja áður fyrir kvöldi
á góðum veitingastað, þá fer það
að verða eins gott að sitja heima
og biðja konuna um að elda góðan
mat.
Hinn aðilinn að viðskiptunum,
sá sem þarf aö borga meira fyrir
hvern tíma verður svo ekki tilbúinn
til að kaupa jafn marga tíma og
áöur, og það hjálpast því allt aö til
að draga úr umfangi viðskiptanna,
þegar þau flytjast úr neðanjarðar-
hagkerfinu upp á yfirborðið.
Ef við reynum að finna, hvar
markalínan í þessu dæmi er, þ.e.
hvar tekjur ríkisins af starfseminni
fara hreinlega að minnka, þá er
hún líklega í þessu dæmi einhvers
staðar á bilinu milli eins og tveggja
tíma.
En þetta eru aðeinsfyrstu áhrifin
af auknu skatteftirliti á skatttekjur
ríkisins og við sjáum að undir
kringumstæðum sem alls ekki eru
svo óraunverulegar þá minnka
hreinlega skatttekjur af viðskiptum
sem gerð eru opinber vegna þess
að svo mikið af viðskiptunum al-
gjörlega hverfur.
Neðanjarðarviðskipti
auka önnur viðskipti
í öðru lagi verðum við að athuga
hvort aukin viðskipti í neðanjarð-
arhagkerfinu auka viðskipti í öðr-
um greinum í opinbera hagkerfinu
eða öfugt.
Þau viðskipti sem flytjast á milli,
þ.e. úr opinbera hagkerfinu yfir í
neðanjarðarhagkerfið draga
náttúrulega úr viðskiptum í opin-
bera hagkerfinu. Önnur viðskipti í
opinbera hagkerfinu hljóta hins
vegar að aukast í heildina, þegar
neðanjarðarhagkerfið stækkar
eins og skýra má með eftirfarandi.
Þeir sem eru að leggja á sig einn
laugardag á verkstæðinu til að
bjóða frúnni á góðan veitingastað,
bjóða ekki frúnni á veitingastað-
inn, þegar þeir vinna ekki þennan
laugardag, og þá missir veitinga-
staðurinn viðskipti þegar viðskipti í
neðanjarðarhagkerfinu hverfa við
að gera þau opinber.
Og ef neðanjarðarviðskipti eru
til þess að fjármagna húsbyggingu
þá er augljóst að það er ekki byggt
eins stórt þegar úr minna fjár-
magni er að spila. En sé ekki byggt
jafn stórt missa allir bygginga-
vöruframleiðendur og bygginga-
vöruseljendur spæni úr sínum
öskum.
Ennfremur í þeim tilfellum þar
sem fólk í opinbera hagkerfinu
vinnur til að kaupa einhverja þjón-
ustu í neðanjarðarhagkerfinu, eins
og að vinna mikla yfirvinnu hjá
stóru fyrirtæki til að kaupa tréverk í
stofuna, þá sleppir fólk tréverkinu
ef það verður of dýrt og vinnur ekki
þessa yfirvinnu, sem þýðir m. ö. o.
að opinbera hagkerfið skreppur
saman.
Aðalatriðið er þaö, að bjóði fólk
sína þjónustu í neðanjarðarhag-
kerfinu til að kaupa eitthvað í
opinbera hagkerfinu, þá hljóta
viðskiþti í opinbera hagkerfinu að
67