Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1995, Page 56

Frjáls verslun - 01.04.1995, Page 56
BYGGINGARIÐNAÐURINN Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri BYKO: EINHVER HREYFING EN ALLS ENGIN KÚVENDING Gerum ekki ráð fyrir verulegri aukningu í viðskiptum vegna byggingafram- kvæmda á næstu árum þóttþað komi einhver „skotu í framkvæmdir í sumar að er alveg ljóst að það hefur orðið samdráttur í byggingar- iðnaði síðustu árin en hvað framundan er veit enginn. Maður hef- ur reyndar orðið var við að ýmsar framkvæmdir séu að fara í gang og eitt og annað bendir til að við gætum verið að horfa fram á bjartari tíma í byggingariðnaði. Hins vegar held ég, því miður, að það verði skammvinn sæla. Mælikvarðinn sem við höfum er fjöldi íbúða sem byrjað hefur verið á og fjöldi íbúða sem lokið hefur verið við. Við bætist síð- an viðhaldsvinna. Allt endur- speglast þetta í atvinnustiginu hjá iðnaðarmönnum," segir Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri BYKO. Jón segir frekar erfitt að átta sig á því hvort meiri fram- kvæmdir og viðskipti með byggingarvörur séu að fara í gang nú en síðastliðin ár. Á vor- in sjái aðilar í byggingariðnaði hefð- bundna aukningu í viðskiptum með byggingarvörur. Húseignir hafi kom- ið misjafnlega undan vetri og þurfi viðhalds við. Þá sé víða kominn tími á ýmsar viðhaldsaðgerðir hjá fjölmörg- um húseigendum. „Það virðist reyndar tölvuerð hreyfing vera komin á hlutina ef marka má hvað menn eru að kaupa um þessar mundir. Töluvert af íbúða- byggingum er að fara af stað á Reykjavíkursvæðinu en það er hins vegar mjög lítið byggt af atvinnuhús- næði.“ Jón segir stöðugleikann í efnahags- MYNDIR: BRAGIJÓSEFSSON lífinu hafa haft sitt að segja varðandi framkvæmda- og kaupgleði einstakl- inga, hvort sem um sé að ræða ný- byggingar eða viðhald. „Einstaklingar eru mjög varfæmir í sambandi við viðhald og fleira þar sem almennur samdráttur hefur orðið í þjóðfélaginu. Þannig er áberandi að fólk er farið að reikna miklu betur út þau verkefni sem það ætlar að fara út í og setur dæmið upp miðað við að- stæður hverju sinni. í dag reikna flestir dæmið alveg til enda og eru Forstjórar B YKO og Húsasmiðjunnar meta stöðuna á byggingamarkaðnum mjög varkárir; skoða vandlega úr hverju þeir hafa að spila. Svo hefur fólk almennt ekki getað bætt á sig vinnu í sama mæli og áður til að láta enda ná saman. Allt þetta hefur eðli- lega mjög mikil áhrif á viðskipti í bygg- ingariðnaði. Ég er því ekki mjög bjartsýnn fyrir hönd byggingar- iðnaðarins til lengri tíma litið þótt það komi náttúrlega ein- hver „skot“ í þessum málum um þessar mundir. Horfi maður í kring um sig er ljóst að fors- endurnar fyrir verulegri aukn- ingu í viðskiptum vegna bygg- ingaframkvæmda eru einfald- lega ekki fyrir hendi.“ Jón Helgi segir þá aðila sem eru í byggingariðnaðinum hafa átt erfiða daga undanfarin ár og það sé þungt fyrir hjá þeim. Því séu menn mjög næmir fyrir hvers kyns vísbendingum um að það fari að birta til. Hins veg- ar verði menn að líta til lengri tíma. „Við höfum lært af reynslunni að vera hóflega bjartsýnir. Ef litið er til næstu mánaða gætu þeir kannski orð- ið þokkalegir en ég held að það sé ekki til lengri tíma, því miður. En við höfum aðlagað okkur breyttum að- stæðum, stöndum vel við bakið á okkar viðskiptamönnum og bjóðum bæði samkeppnishæfa vöru og vöru- verð til að halda okkar markaðshlut- deild. Við erum í miðri atvinnugrein- inni og finnum mjög vel fyrir ástand- inu, höfum gert það síðastliðin ár og högum okkur samkvæmt því,“ segir Jón Helgi Guðmundsson. Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri BYKO, segir fólk varfærið í framkvæmdum og reikna dæmið til enda áður en það hefjist handa. 56
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.