Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1995, Page 109

Frjáls verslun - 01.04.1995, Page 109
Iw»» HHBHMMHBi GARÐVINNAN DAGBÓK GARÐYRKJUMANNSINS Það vill stundum vefjast fyrir garðeigendum hvenær skuli vinna ákveðin verk í garðinum. Allt hefur sinn rétta tíma. Til þess að við megum í framtíðinni vinna verkin í takt við móður náttúru fengum við að skyggnast í eitt af verkefnum nemenda á Skrúðgarðyrkjubraut í GR í Hvera- gerði. Verkefnið fjallar um viðhald garðsins og er sett fram sem áætlun en þessa viðhaldsáætlun ættum við í flestum tilvikum að geta yfirfært á okkar eigin garð. Þar sem komið er langt fram á vor byrjum við á vorverkunum. IAPRIL OG MAI í apríl og maí er mikið um að vera í garðinum. Þá þarf að byrja á því að hreinsa allt rusl, hvort heldur sem er rusl sem fokið hefur í garðinn eða sölnaðan gróður frá fyrra ári. Ef garðurinn okkar er ungur að árum þá er rétt að bera áburð bæði í beð og á grasflöt. Borin eru 2 kg af blákorni á hverja hundrað fermetra gróðursvæðis en eftir það eru borin þrjú kg á 100 fermetra svæðisins. Á gras eru borin 3 kg á hundrað fermetra. Trjáklipping og kalklipping heyrir til á þessum árstíma og er nú allt kal klippt burt af trjám og runnum. Vilji menn setja niður vorlauka er það einnig gert og sömuleiðis er fjölærum plöntum skipt eftir þörfum. Hefja má slátt þegar grasið er orðið 10-12 sentímetra hátt. IJUNI, JULIOGAGUST í júní, júh' og ágúst er sitthvað á dagskrá. Fyrst eru sett niður sumarblóm. Snyrta þarf kanta beðanna því fallegir og vel skomir kantar setja mikinn svip á garðinn. Sláttur er töluvert verk ef grasið á að vera jafnt og fallegt allt sumar- ið. Hæfilegt er að slá það í 4-5 sentímetra hæð og auðvitað verður að raka og hirða. (Margir hafa brugðið á það ráð að smíða sér safnkassa einhvers staðar þar sem h'tið ber á og safna í þá grasi og öðrum jurtaleifum úr garðinum. Aðrir grafa grasið niður í beðin eða einfaldlega koma því fyrir inni á milli þéttra mnna þar sem það hverfur aftur til uppmna síns. (Innskot blaðamanns.) Áburðargjöf á að vera^lofyð fyrir miðjan ágúst. Strax eftir blómgun ber að klippa sem blómstra á fyrra árs grein. Rétt er að fan klippingu þessara ajnna a&leita ráía hjá fagmöi ekki sé komið í veg fyrir blómgun næsta ár. Nú eru limgerði mótuð og visnaðir blómstönglar klipptir og fjar- lægðir. Yfir hásumarið verður fólk að sópa stéttir jöfnum höndum svo garðurinn sé sem snyrtilegastur og á þessum tíma er rétt að huga að því hvort ekki þarf að fúaverja timbur þar sem það er. Loks er það skordýraeyðing en um hana segir í áætluninni: Fylgjast verður með trjám og runnum sem hætt er við skordýraplágum og gera viðeig- andi ráðstafanir. ISEPTEMBER 0G NOVEMBER í september og nóvember er gengið frá trjágróðri fyrir veturinn. Skýla þarf öllum sígrænum trjám og runnum fyrsta veturinn. Gott er að skýla fjölærum gróðri með greinum og laufi. Tími haustlaukanna er runninn upp og þeir eru settir niður. Lauf er rakað og má gjarnan þekja beðin með því. Gæta verður þess að slá gras ekki sneggra en 5-8 sentímetra í síðasta sinn að haustinu. Binda getur þurft upp sum ung tré en uppbindinga á ekki að vera þörf eftir að fjögur ár eru liðin frá gróðursetningu. ÍDESEMBEROG ALLT FRAM í MARS í desember og allt fram í mars halda sumir að ekki þurfi að líta út í garðinn en það er öðru nær. Losa þarf snjó af trjágróðri og gæta þess vel að tré og runnar skemmist ekki vegna snjóþyngsla. Fylgjast verður með lús á greni og sé hætta á ferðum er hægt að eitra fyrir henni. Einnig þarf að athuga krónur trjáa og khppa runna sem blómstra á árssprota. Síðla vetrar, áður en brum opnast, eru klipptir runnar sem blómstra á stuttum sprotum á eldri greinum. Á þessum tíma er einnig rétt að hefja mótun limgerðis til dæmis úr gljámisph og viðju svo nokkuð sé nefnt. Af þessari ágætu verkefnaskrá má sjá að garðeigandinn má aldrei slá slöku við ef hann ætlar að láta garðinn skarta sínu fegursta yfir sumarið og eigi hann ekki að „spretta úr sér“ ef svo mætti að orði komast. TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR Á bak við fallega garða, sem skarta sínu fegursta á sumrin, liggur mikil vinna. En hvenær á að vinna verkin í garðinum? Hvert verk hefur sinn árstíma. Um það getur þú lesið í þessari fróðlegu grein um dagbók garðyrkjumannsins. 109
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.