Frjáls verslun - 01.01.1996, Page 42
MARKAÐSMAL
spamaðar því allir kunna að eyða en
fáir að spara. Þessi óvenjulega nálgun
átti því að opna augu fólks fyrir þess-
ari auðveldu spamaðarleið.
Á hugarflugsfundi hjá Góðu fólki
nefndi Pétur þetta orðalag dóttur
sinnar og fundarmenn gripu það á
lofti. „Reyndar vomm við tvístígandi
yfir þessu orðalagi en eftir að hafa
ráðfært okkur við málfræðinga, lög-
fræðinga og fleiri ákváðum við að slá
til. í framhaldi af þessari setningu
kom upp hugmynd af einhverri eftir-
minnilegustu auglýsingu herferðar-
innar: Geymslunni sem full var af
drasli sem fólk var hætt að nota en
hafði eytt peningunum sínum í. Aug-
lýsing eins og þessi, þótt góð sé, er
afar vandmeðfarin. Helgi benti rétti-
lega á að auglýsingin gæti móðgað
áskrifendur spariskírteinanna því um
leið og sýnd væri dæmigerð geymsla
væri verið að gera lítið úr óþarfa
eyðslu fólks á liðnum árum. En við
vildum reyna þessa leið, án þess að
skerða ímynd Þjónustumiðstöðvar
ríkisverðbréfa. Og ég gleymi ekki
fundinum þar sem Helgi og félagi hans
á Góðu fólki kynntu hugmyndina fyrir
samstarfsfólki okkar Einars. Þarna
birtust þeir með fullar hendur af
drasli; ónotaðafótanuddtækið, hljóm-
borð, Soda-Stream tæki, snjóþrúgur
og fleira í þessa veruna. Fundarmenn
misstu andlitið en sáu að á fundar-
borðinu var samankomið drasl sem
finna má í flestum geymslum lands-
ins. Og menn keyptu hugmyndina,
sem betur fer. Auglýsingin sló síðan í
gegn án þess að móðga nokkum
mann, enda held ég að þjóðin hafi vit-
að upp á sig skömmina."
Eftir símhringingarnar og árang-
ursríkar auglýsingar hafa 25 þúsund
manns gerst áskrifendur spariskír-
teina um lengri eða skemmri tíma. En
eftir að jafnvægi komst á hafa að jafn-
aði yfir 10 þúsund manns greitt
áskriftina í hverjum mánuði.
En hversu lengi er hægt að halda
úti auglýsingunum um þau Þór og
Björgu. Helgi segir að erfitt sé að
svara því. „En lykillinn að velgengn-
inni er hversu sparlega við höfum far-
ið með þau. Þór og Björg eru ekki
kölluð til sögunnar nema þegar við
erum að sýna árangur þeirra og þær
auglýsingar bera árangur. Fólk bæt-
ist í hópinn þegar árangur þeirra heið-
urshjóna en nefndur. Þá hringir fólk
einnig inn og hækkar áskriftarfjárhæð
sína, enda hefur það glögglega komið
í ljós að eftir því sem spamaðurinn
verður meiri hjá fólki þeim mun meira
vill það leggja til hliðar. Áskriftin er
orðin að lífsstíl og lífsstíllinn að nautn.
Og ég held að enginn viti hvemig
þetta endar allt saman.“
ísland í tölum
Hagtölur mánaðarins hafa að geyma ítarlegar tölfræði-
upplýsingar um íslenska hagkerfið.
Reglulega birtast upplýsingar
um m.a.: • Peningamál
• Greiðslujöfnuð
• Ríkisfjármál
• Utanríkisviðskipti
• Framleiðslu
• Fjárfestingu
• Atvinnutekjur
Einnig eru birtar yfirlitsgreinar d'J°7 ‘ó 594
um efnahagsmálin í Hagtölum mánaðarins.
Túlkið tölurnar sjálf. Pantið
áskrift að Hagtölum mánaðarins.
Áskriftarsíminn er 569 9600.
978
lööi
1
457 68L
301
1.000
1
716
909
I
834
1.154
4.34b
44
901
957
31.899 16.888 18.969
887 1.082
340 385
9.015 13.265
1.425
1.098
1.430
1.014
1
5*.-
410
73u
738
60j
437 17.879 19020
1.059 1 602
3.754 5
4753 5.'
SEÐLABANKI
ÍSLANDS
/ A O ' KALKOFNSVEGI1,150 REYKJAVÍK, SÍMI 569 9600
333
05
30
386 200
5.198 6.A».'
1.037 O96
1.692
232-«T
295
42