Frjáls verslun - 01.01.1996, Page 70
FOLK
I st raEitó 'slk;i^i,
Júlíus Þorfinnsson, 30 ára framkvæmdastjóri Eureka.
Hann segist hafa mikla trú á mætti óhefðbundinna aug-
lýsinga og þess sáust raunar glögg merki þegar hann
markaðssetti fyrirtækið í upphafi.
grískum fornfræðum
er minnst á Arki-
medes sem fór í bað-
ið og þegar hann veitti því
athygli að líkaminn hrinti
vatni frá sér í réttu hlutfalli
við þyngd líkamans hljóp
hann nakinn um borgina og
hrópaði: „Eureka, eureka
eða Ég hef fundið það, ég
hef fundið það.“ Auglýs-
ingafyrirtækið Eureka, sem
m.a. sérhæfír sig í birtingu
og framleiðslu umhverfis-
auglýsinga, sækir nafnið
beint í þessa sögu.
„Það, sem við kynntum
hér á markaðnum fyrir rúmu
ári, var ný lausn í fram-
leiðslu auglýsinga. Það,
sem áður hafði kostað mikið
eða var óframkvæmanlegt,
var skyndilega framkvæm-
anlegt fljótt og örugglega á
tiltölulega hagkvæman
máta,“ segir Júlíus Þor-
fínnsson, framkvæmda-
stjóri Eureka. „Við höfum
sagt að ímyndunaraflið sé
það eina sem geti takmark-
að framleiðsluna."
Fimmtán mánuðum eftir
stofnun fyrirtækisins hefur
margt breyst frá upphafleg-
um framkvæmdum. Fyrir-
tækið, sem er að mestu í
eigu Kassagerðar Reykja-
víkur, Hans Petersen hf. og
Tryggingar hf., er stofnað
utan um stóra tölvuprentvél
sem getur framleitt auglýs-
ingar í yfirstærðum. Bætt
hefur verið við m.a. annarri
tölvuprentvél ásamt silki-
prentvél til þess að auka
þjónustu við viðskipta-
menn. Auglýsingar á stræt-
isvögnum, í biðskýlum og á
veltiskiltum eru framleiðsla
Eureka. Jafnhliða fram-
leiðslunni annast Eureka
miðlun birtinga fyrir nánast
allar umhverfisauglýsingar á
höfuðborgarsvæðinu og Ak-
ureyri. Eureka hannar ekki
auglýsingar heldur framleið-
ir aðeins þær eftir pöntun og
fyrirfram ákveðnum teikn-
ingum.
Við stofnun voru fjórir
starfsmenn ráðnir en nú eru
þeir 10 og allt upp í fimmtán.
í upphafi var einblínt á inn-
anlandsmarkað en um síð-
ustu áramót var blásið til
sóknar í útlöndum. Við-
skiptavinir erlendis senda
myndir sínar á tölvudiski og
fá síðan auglýsingarnar til-
búnar á rúllum.
„Við höfum alla burði til
að ná árangri á erlendum
mörkuðum því fyrirtækið er
mjög framarlega á sínu
sviði,“ segir Júhus.
Júlíus hefur verið fram-
kvæmdastjóri frá stofnun
Eureka. Hann segist hafa
mikla trú á mætti óhefð-
bundinna auglýsinga og
mátti sjá merki þess í mark-
aðssetningu Eureka þar
sem nafn fyrirtækisins birt-
istíýmsummyndum, m.a. á
strætisvögnum, án þess að
greint væri frekar frá starf-
semi fyrirtækisins.
„íslenskir auglýsendur
mættu að ósekju taka meiri
áhættu í auglýsingum sínum
og reyndar finnst mér vanta
meiri djörfung og framsýni í
viðskiptaheiminn almennt.
En þar spilar kannski inn í
þröngt rekstrarumhverfi og
óþolinmæði fjárfesta," segir
hann.
Júhus er þrítugur við-
skiptafræðingur með próf
frá háskóla í Suður-Karólínu
í Bandaríkjunum. Hann lauk
námi fyrir fimm árum og
hefur áður starfað sem
markaðsstjóri hjá Jöfur hf.
og sem sölustjóri hjá Heklu
hf. Júlíus er fæddur á Akra-
nesi en flutti fimm ára með
foreldrum sínum í Vestur-
bæinn í Reykjavík. Þar með
varð Skagamaðurinn að KR-
ingi og hann viðurkennir að
KR hjartað slái mjög hratt.
Júlíus er ógiftur og á einn
son, Styr 314 árs, með Lindu
Ámadóttur sem er við nám í
fatahönnun í París og hefur
þegar getið sér gott orð.
„Við höfum skipt forræði
yfir syninum og því erum við
feðgarnir töluvert mikið
saman,“ segir Júlíus. Hann
segist að vísu vinna mjög
mikið en sonurinn gangi
fyrir öllu öðru þegar vinn-
unni sleppir.
„Frítíma mínum eyði ég
helst á kaffihúsi í góðra vina
hópi. Hins vegar hefur tím-
inn til tómstunda verið tak-
markaður síðustu mánuði
og svo verður líklega áfram
um sinn meðan Eureka er
að hasla sér völl erlendis,"
segir Júlíus.
TEXTI: JÓHANNA A. JÓHANNSDÓTTIR MYNDIR: BRAGI P. JÓSEFSSON
70