Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1997, Qupperneq 25

Frjáls verslun - 01.09.1997, Qupperneq 25
Trúarsöfnuöir utan þjóðkirkjunnar Hlutur þeírra í sóknargjöldum 1996. verið hærra en nú eða um 62 þús- und krónur fyrir hvert kíló. Tólf prestssetur, Staðastaður, Holt, Vatnsfjörður, Árnes, Prestbakki, Melstaður, Laufás, Skeggjastaðir, Hólmar, Kollreyjustaður, Heydalir og Djúpivogur, hafa tekjur af æðar- dún sem renna til prestsins sem situr staðinn. Samtals munu falla til um 200 kíló af dún á þessum 12 býlum sem gerir þá um 12,4 millj- ónir á núvirði eða milljón á hveija jörð að meðaltali. SKATTFRELSITRÚFÉLAGA 0G SAFNAÐA Söfnuðir og trúfélög greiða lög- boðin gjöld til ríkis og sveitarfé- laga í formi fasteignagjalda, launa- tengdra gjalda og tryggingagjalds, svo dæmi sé tekið, en söfnuðir og trúfélög greiða hvorki tekjuskatt né eignaskatt. Að sögn formanns sóknarneihdar í stórum söfnuði í Reykjavík er þar stuðst við 4. grein skattalaga en þar segir í 6. tölulið að félög, sjóðir og stofnanir, sem ekki reki atvinnu, skuli vera und- anþegin tekju- og eignarskatti. Þess vegna hafa allir söfnuðir og trúfélög svokallaða R-merkingu hjá Rikisskattstjóra. VARANLEG SAMBUÐ? Frá 1907 hefur ríkisvaldið verið nokkurskonar ijárhaldsmaður kirkj- unnar og greitt prestum laun. I stað- inn fékk ríkið jarðeignir kirkjunnar til ráðstöfunar. 1907 voru þetta tæp- lega 17% af jarðeignum landsins sem þannig skiptu um eigendur og komust í eigu ríkisins. Fyrr á þessu ári voru samþykkt lög sem eru stað- festing nútímans á þessu nær aldar- gamla samkomulagi. Þar skuldbind- ur ríkið sig til þess að greiða laun 138 presta, biskups og 18 starfsmanna Biskupsstofu. í staðinn eignast ríkið 420 kirkju- jarðir sem í dag eru taldar tæp 10% af lögbýlum landsins. Því má ætla að um 400 jarðir hafi verið seldar frá 1907. í tengslum við það samkomulag, sem gert var milli ríkis og kirkju um afhendingu kirkjujarða til ríkisins og greiðslu launa presta úr ríkissjóði, heyrðist nokkuð rætt um aðskiln- að ríkis og kirkju og sú skoðun heyrðist einnig að íslenska þjóðkirkjan nyti sérstakra réttinda umfram önnur trúfélög. Þeirri skoðun virðist hafa vaxið fylgi að aðskilja bæri ríki og kirkju og skoðanakannanir meðal almennings hafa sýnt nokkuð fylgi við þá hugmynd. í greinargerð kirkjueignanefndar, sem var lögð fram á Söfnuður Fjöldl felaga Upph. 1996 í þús. Fríkirkjan Reykjavík 3.867 17.472 Fríkirkjan Hafnarf. 1.919 8.670 Kaþólska kirkjan 1.781 8.046 Óháði söfnuðurinn 921 4.161 Aðventistar 579 2.616 Fíladelfía 537 2.426 Vegurinn 443 2.001 Vottar Jehóva 393 1.775 Baháisamfélag 281 1.269 Krossinn 260 1.174 Búddistar 215 971 Ásatrúarféiagið 179 808 Hvítasunnukirkjan 136 614 Hvítasunnu Betel 103 465 Orð lífsins 52 234 Hvítusunnu Salem 50 225 Kletturinn 48 216 Sjónarhæðarsöfn. 37 167 Hvítas. Kirkjulækjark. 33 149 F0RSIÐUEFNI Tæplega 12 þúsund félagar eru í trúarsöfn- uðum utan þjóðkirkjunnar. Langflestir eru í Fríkirkjusöfnuðunum í Reykjavík, eða tæp- lega 3.900 manns. Sóknargjöld safnaðarins námu rúmum 17 milljónum á síðasta ári. Andrúmið i kirkjum helgast af hátíðleik og Kirkjuþingi í janúar 1997, segir um þetta mál: „Með samkomulaginu, er með ótvíræðum hætú, hægt að að sýna fram á að launagreiðslur ríkisins til biskupa, presta og annarra starfsmanna þjóðkirkjunnar, flokkast ekki undir annarleg for- réttindi kirkjunnar og ganga því hvergi í berhögg við hugmyndir um trúfrelsi eða jafnrétti trúar- bragða. Launagreiðslur ríkisins byggjast á afhendingu kirkjujarð- anna - hér er um kaup kaups að ræða. Samkomulagið mun standa að óbreyttu, jafnvel þótt numin verði úr gildi ákvæði stjórnar- skrárinnar um vernd og stuðning ríkisins við kirkjuna og hún yrði þannig ekki lengur þjóðkirkja. Samkomulagið er þess vegna ekki háð stjórnarskrárákvæðinu um þjóðkirkju." Þetta endurspeglar það álit að í lögunum frá 1907 um sama efni kemur fram að höfuðstól, þ.e. kirkjujarðirnar, megi ekki skerða. Þá voru kirkjujarðir rúm 16% af áætluðu verðmæti jarða í landinu en í þessu nýja samkomulagi er reiknað með að þær séu um 10% af verðmæti jarða. Svo aftur sé vitnað til álits viðræðunefndar kirkjunnar segir í áliti hennar frá í vetur: „Það er skoðun viðræðunefad- ar kirkjunnar að samkomulagið frá 10. janúar standi um langa hríð. Kjósi Alþingi að hrinda skuldbindingu ríkisvaldsins varð- andi prestslaunin sem felst í sam- komulaginu, þá væri grafið undan sljórnarskrárákvæðinu um vernd og stuðning við þjóðkirkju, þannig að gjörvallt samband ríkis og kirkju væri í uppnámi. Við- ræðunefadin vill þess vegna taka fram, að ef framangreindar ástæður sköpuðust, yrði að leggja af stað í nýjar kirkjueigna- viðræður, þar sem fyrrgreind rök um „óskerðanlegan höfuð- stól“ kirkjujarðanna, sem sannanlega voru kirkjunnar og heyrðu undir kirkjuleg embætti árið 1907, yrðu sett í önd- vegi. Þá væri, af hálfa kirkjunnar, hægt að setja fram kröfa um greiðslu á höfaðstólnum frá 1907.“ Þetta verður varla skilið öðruvísi en kirkjan líti svo á að samkomulagið standi um aldur og ævi, að öðrum kosti fái ríkið bakreikning fyrir höfuðstól með vöxtum frá 1907. Af sjálfu leiðir að frá sjónarhóli kirkjunnar er sambúð ríkis og kirkju varanleg og allt tal um aðskilnað byggt á veikum grunni. B3 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.