Frjáls verslun - 01.09.1997, Síða 27
FRÉTTASKÝRING
VALDIÐ HJA FINNIINGOLFSSYNI
Þröstur Ólafsson, formaöur bankaráðs Seðlabankans, segir í samtali við Frjálsa versl-
un að vald bankaráðsins sé skýrt. Það hafi ekki agavald yfir bankastjórunum, það vald
sé hjá viðskiptaráðherra. (Finni Ingólfssyni).
opinberlega enda þekkist slíkt hvergi
í alþjóðlegum bankaviðskiptum. A
endanum væri það ríkissjóður og
þjóðarbúið sem biði tjón ef slík upplýs-
ingakvöð væri íyrir hendi.“
Það er ekki á hveijum degi sem
borið er við þjóðaröryggi þegar neitað
er um upplýsingar en það eru fleiri ný-
mæli í
þessu máli.
Steingrím-
ur Her-
mannsson
kom fram í
sérstökum
þætti í Rik-
issjónvarp-
inu þar sem
hann þvoði
hendur sín-
ar í návígi
við Kristínu
Þorsteinsdóttur og Loga Bergmann.
Slíkt liafa íslenskir embættismenn
fram til þessa ekki gert.
Tiltölulega snemma í umfjöllun um
ferðamál Steingríms samþykkti
bankaráðið að einungis formaðurinn,
Þröstur Olafsson, skyldi ræða málið
við fjölmiðla. Þröstur hefur síðan neit-
að að ræða ferðir Steingríms og við-
brögð bankans við þeim meira en orð-
ið er. Af þessu er ljóst að hvað sem líð-
ur mati manna á því hver skuli borga
hvaða ferðir snýst vandi bankaráðsins
og bankans fyrst og fremst um stjórn
og stjórnun
Seðlabankinn er rúmlega 35 ára
gömul stofnun. Það er sagt að hann
hafi fyrst
orðið til sem
ein skúffa í
borði fjár-
málaráð-
herra en í
dag eru
starfsmenn
um 140. Lög
um starf-
semi Seðla-
bankans eru
dálítið frá-
brugðin lög-
um um aðra ríkisbanka að því leyti að
bankaráð Seðlabankans hefur ekki
eins mikið vald yfir bankastjórum eins
og bankaráð hinna bankanna heldur
heyrir agavald yfir bankastjórum
beint undir viðskiptaráðherra.
Seðlabankinn hefur alltaf verið
virðuleg stofnun, eða reynt að vera
það, og þangað til í júní á síðasta ári
Feröir bankastjóra Seölabanka
Fjárhæðir íþúsundum króna.
1994 1995 1996 1997 (áætlun)
Ferðakostn. 6.063 7.518 8.773 8.800
Kostn. v/maka 482 891 1.486 1.380
Risna erlendis 260 356 262 382
Fjöldi ferða 19 22 26 21
Maki með í för 5 5 7 6
Áætlað er að ferðakostnaður bankastjóra Seðla-
bankans verði um 8,8 milljónir á þessu ári.
AÐ „FRAMLENGJA FERÐIR“ MEÐ MAKA
Mál Steingríms hefur varpað kastljósi á utanferðir embættismanna og stjórnenda
almennt. Það er alþekkt að fjölmargir, háir sem lágir, nýta sér starfsferðir til útlanda á
vegum vinnuveitenda sinna til að sinna einkaerindum. Oftast er það þannig að makinn
er með í för og er ferðin látin ná yfir helgi eða tekið er nokkurra daga frí erlendis - fyrir
eða eftir hið eiginlega erindi - og heitir þetta snjallræði að „framlengja ferðir”
- og þykir afar sjálfsagt.
STEINGRÍMUR 0G ÞJÓÐARÖRYGGIÐ
Stöð 2 spurði um utanferðir Steingríms en fékk neitun meðal annars með þessum orð-
um: „Bankinn telur sér ekki fært og ekki rétt að veita upplýsingar um ferðir
einstakra bankastjóra og enn síður um einstakar ferðir bankastjóra..." Og síðar:
„Á endanum væru það ríkissjóður og þjóðarbúið sem biðu tjón ef slík upplýsingakvöð
væri fyrir hendi.”
MAÍ1994:
Steingrímur er ráöinn Seðlabanka-
stjóri.
JÚNÍ1996:
Endurskoðandi bankans gerir athuga-
semdir við ferðakostnað bankastjóra á ár-
inu 1995 og gerir að tillögu sinni að árs-
fjórðungslega veröi bankaráði gefin
skýrsla um ferðir bankastjóra næstu þrjá
mánuði á undan.
JÚNÍ1996: f
Bankaráð fer aö tillögum endurskofi
andans og samþykkir nýjar reglur um
ferðatilhögun sem meðal annars fela í sér
kröfu um skýrslu á þriggja mánaöa fresti.
FEBRÚAR1997:
Endurskoðandi gerir aftur athugasemd
við ferðir bankastjóra og nefnir sérstak-
lega ferðir Steingríms Hermannssonar og
efast um að þær séu allar á vegum bank-
ans eða I hans þágu.
MARS1997:
Bankaráð gerir samþykkt þar sem það
er áréttað að ráðið treysti bankastjórum til
þess að láta bankann aðeins greiða ferðir
sem séu á vegum bankans eða í hans
þágu. Aðrar ferðir fari þeir á eigin kostnað
og í eigin frítíma.
OKTÓBER1997:
Bankaráð samþykkir nýjar og enn hert-
ar reglur um ferðatilhögun bankastjóra.
Þar er sett inn það nýmæli að tilkynna
skuli fyrirfram til formanns bankaráðs um
allar ferðir sem ekki séu ótvírætt á vegum
bankans og samkvæmt venju.
tíðkaðist það alls ekki að bankaráðið
væri að skoða sérstaklega ferðir ein-
stakra bankastjóra og athugasemdir
við ferðir þeirra hafa aldrei áður í
sögu bankans verið lagðar fram,
hvorki af endurskoðendum né banka-
ráði.
Þarna var í gildi heiðursmanna-
samkomulag um að bankastjórarnir
færu ekki í ferðir til útlanda nema á
vegum bankans og í erindagjörðum
hans.
ATBURÐARÁSIN í HNOTSKURN
Þegar atburðarás þessa máls er
27