Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1997, Page 33

Frjáls verslun - 01.09.1997, Page 33
VIÐTAL Lífeyrissjóðirnir mega ekki sitja eftir sem helsta vígi einokunar og valdaaðstöðu - með takmarkaða ábyrgð í íslensku samfélagi. gera myndarlegt átak á þessu sviði. Verslunarráðið telur líka að mikilvæg- um þáttum atvinnulífsins, eins og landbúnaðinum eða orkugeiranum, veiti ekki af uppstokkun þannig að kostir samkeppninnar fái að njóta sín þar eins og á flestum öðrum sviðum." Hann leggur áherslu á að nú þegar Island er orðið hluti af alþjóðlegu við- skiptaumhverfi skipti máli að þær starfsreglur, sem viðskiptalífinu eru settar, séu að minnsta kosti jafn góðar og helst betri en reglurnar í sam- keppnislöndunum. „Það teljum við að ríkið geri best með því að draga úr rík- isbúskapnum. Við þurfum að eyða töluvert meiri fjármunum í mennta- og heilbrigðismál til þess að geta upp- fyllt þarfir einstaklinganna sem starfa í þessu samfélagi. Til þess að fá gott fólk út í viðskiptallfið þarf að hafa gott menntakerfi. I það þurfum við meira ijármagn. Það sést á þeim hlutum sem eru að gerast í dag. Við gerum það ekki með því að auka skattana. Við þurfum að geta gert það með því að ná hagkvæmni í rekstri ríkisbúskapar- ins. Löggjafinn þarf að skilja það til að hann verði íljótari að skapa þær leik- reglur sem við viljum sjá. Ef það tekur of langan tíma teljum við okkur vera að missa af tækifærunum.“ FRELSI í LÍFEYRISSJÓÐAKERFINU Sjálfur hefur Kolbeinn mikinn áhuga á að komið verði á valfrelsi í líf- eyrissjóðakerfinu. Hann líkir þeim, sem segja að skylda eigi fólk til að vera í ákveðnum lífeyrissjóðum, við þá sem töldu að ekki mætti gefa útflutn- ing á fiski frjálsan. Fiskútflutningnum væri þest þorgið í höndum SH, ÍS og SIF. Væri útflutningurinn gefinn frjáls myndu menn bíta augun hver úr öðr- um á markaðnum. „Annað hefur nú Menn mega ekki líta á stjórnar- setu í lífeyrissjóðunum sem tæki- færi til valda í þjóðfélaginu. Þessar vikurnar er verið að takast á um þetta efni. komið í ljós. Meginástæðan fyrir bætt- um hag þjóðarinnar er hvað útflutn- ingur á fiski gengur margfalt betur eft- ir að hann var gefinn frjáls. Lífeyris- sjóðirnir eru að verða það stórir á Ijár- Kolbeinn líkir þeim, sem segja að skylda eigi fólk til að vera í ákveðnum lífeyrissjóðum, við þá sem töldu að ekki mætti gefa útflutning á fiski frjálsan. magnsmarkaðnum að þeir verða að spila í sama samkeppnisumhverfi og aðrir, bæði til að þeir vandi sig og verndi lífeyrinn og reyni að ávaxta hann sem best og líka til að þeir skili sínum íjárfestingum eingöngu með ávöxtunarmöguleika í huga. Menn mega ekki líta á stjórnarsetu í lífeyris- sjóðunum sem tækifæri til valda í þjóðfélaginu. Þetta finnst mér mjög mikilvægt og þessar vikurnar er verið að takast á um þetta.“ Kolbeinn getur þess að Verslunar- ráð hafi bent á að innan fárra ára verði Jjármagn lífeyrissjóðanna svipuð upp- hæð og öll landsframleiðsla Islands. Meðal annars þess vegna sé útilokað annað en að þetta svið efnahagslífsins verði í virku samkeppnisumhverfi. Líf- eyrissjóðirnir megi ekki sitja eftir sem helsta vígi einokunar og valdaaðstöðu með takmarkaða ábyrgð í íslensku samfélagi. Lífeyrissjóðirnir séu tæki en ekki markmið í sjálfu sér. „Mark- miðið er að allir séu tryggðir og tækin til að ná því markmiði eiga að vera sem ijölbreyttust og í samræmi við þarfir einstaklinganna." MIKIL HUGMYNDASMIÐJA Um árangur af starfi Verslunarráðs segir Kolbeinn að ráðið hafi verið sá aðili sem hrint hafi af stað umræðum í fijálsræðisátt. Menn vilji hins vegar ekki beija sér á bijóst. Framfarirnar séu auðvitað fleirum að þakka. „Versl- unarráð er mikil hugmyndasmiðja. Það eru aðilar úr öllum atvinnugrein- um sem setja í gang mál til framfara. Eg tel að Verslunarráð hafi komið mörgu góðu til leiðar og muni halda atvinnulífiö keldur túlkar þad þœr skodanir sem koma frá atvinnulífinu sjálfu! 33

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.