Frjáls verslun - 01.09.1997, Side 38
Systurnar frá Siglufirði, Bára (til vinstri) og Jóhanna Hauksdætur, reka vinsælan veitingastað, Classic bar í Albufeira.
I faðmi Báru er fjögurra ára sonur hennar, Rósant Máni. Jóhanna fluttí tíl Kaupmannahafhar fyrir nær þrjátíu árum.
Þaðan hélt hún suður á bóginn, hugmynd kviknaði, hún hafði samband við systur sína - og Classic bar var keyptur.
FV-mynd: Þórdís
SYSTURNAR FRÁ SIGLUFIRÐI
Dsumar fögnuðu systurnar frá
Siglufirði, Jóhanna og Bára
Hauksdætur, tólf ára afmæli
Classic bar. Mikið var um dýrðir og allir
viðskiptavinir fengu rjómatertusneið og
kampavin. Fyrir systurnar markaði af-
mælið upphafið að þrettánda sumri þeir-
ra í Albufeira - og í tólfta sinn sáu þær
fram á annasamar vikur. Viðskiptavinir
þeirra eru ekki eingöngu íslendingar,
enda er fjöldi þeirra sem dropi í hafið á
þessum vinsæla ferðamannastað.
Classic bar er til húsa við eina íjöl-
förnustu götu gamla miðbæjarins þar
sem ferðamenn úr öllum áttum eiga leið
um. Classic bar er því alþjóðlegur í þeim
skilningi. Og kokkteilarnir á Classic
bera hróður staðarins víða. Islenskar
stúlkur vinna á barnum á sumrin og
Portúgalinn Poulo talar íslensku líka.
„Barinn hefúr breyst með árunum og
núna er hægt að kalla hann diskóbar
með öllu sem tilheyrir. Fyrst vorum við
bara með segulbandspólur sem við tók-
um upp heima og létum okkur vel líka.
Allt var svo afslappað og einfalt hér í þá
TEXTI: JÓHANNA Á. H. JÓHANNSDÓTTIR
daga. Sveitin rétt fyrir utan bæinn og
gömlu sjómennirnir líkt og þeir höfðu
verið um aldir. Gamla fólkið grætur
þennan gamla tíma og við eiginlega
líka.“
„RÆÐISMENN”
Viö vorum líka í hlutverki ræöis- í
mannsins. Skottuöumst með fólk í
búðir, túlkuðum hjá lækni og þar fram
eftir götunum. Fyrstu árin komu nán-
ast allir íbúar Siglufjaröar í heimsókn.
í KJÖLFAR DANANNA
Jóhanna og Bára hafa komið sér vel
fyrir í Albufeira. Þrátt fyrir að þær séu
mjög samhentar við rekstur Classic, og
komi fram sem ein, búa þær í sitthvorri
íbúðinni og dágóður spölur er á milli
íbúða þeirra. Blaðamaður Frjálsrar
verslunar hitti þær að máli á heimili
Báru mitt í ágústönnunum.
„Upphafið að Classic má rekja til
þess að ég hafði áhuga á að opna minn
eigin veitingastað," segir Jóhanna. „Eg
hafði dvalið í Kaupmannahöfn í mörg ár
og unnið hjá Þorsteini Viggóssyni á
Bonaparte og Pussycat. Eg hóf því leit-
ina að barnum mínum með því að kanna
hvert Danirnir færu í frí. Hingað kom
ég í kjölfar þeirra dönsku og heillaðist
strax af Albufeira. Þá var Albufeira bara
lítill fiskimannabær með öllum sínum
gamla sjarma.“
Jóhanna hafði samband heim á Sigló.
Bára, sem hafði verið framreiðslumaður
á hótelinu heima, var til í tuskið. „Eg
hafði ekkert sérstakt í gangi heima og
var því meira en tilbúinn að breyta til,“
segir Bára og hlær. Þær hlæja báðar
mikið og að nánast öllu. Þeim fylgir
alltaf mikil kátína og það kunna gestirn-
ir að meta.
„Núna getum við leyft okkur að vera
lausar við og látið aðra um hinn daglega
rekstur," segja þær. „Þegar við byijuð-
um þurftum við að vinna baki brotnu til
þess að greiða niður kostnaðinn. Við
rákum barinn um sumarið, fórum svo
heim á Sigló til að vinna í fiski eða á hót-
elinu yfir veturinn. Við þurftum svo
sannarlega að halda vel á spöðunum."
„Þá voru Islendingar ekki mjög
38