Frjáls verslun - 01.09.1997, Page 44
HAGFRÆÐI
okaritgerð Gauta heitir: Ein
mynt í Evrópu. Kostir og gallar
og möguleikar Islands. Á ein-
um stað í ritgerðinni segir hann: „Með
því að taka upp sameiginlega mynt eru
stjórnvöld að afsala sér stjórntækjum.
Oftast er þetta nefnt sem galli. En þarf
það endilega að vera galli að takmarka
völd stjórnmálamanna? Svarið við
þeirri spurningu felst að sjálfsögðu í því
hvernig þau hafa notað völd sín til
þessa. Flest bendir til að íslensk stjórn-
völd hafi misnotað stjórntæki sín á und-
anförnum árum og þau völd sem þau
hafa haft í gengismálum. Það er því
margt sem bendir til þess að þeir hafi
rétt fyrir sér sem segja að binda verði
hendur stjórnmálamanna, á sama hátt
og Odysseifur var bundinn við mastrið,
til að veija þá fyrir lokkandi söng sér-
hagsmunahópa.”
NOKKRAR HELSTU NIÐURSTÖDUR RIT-
GERÐAR GAUTA
Um 2/3 hlutar útflutnings Islendinga
fer til ríkja ESB. Svipað hlutfall innflutn-
ings kemur frá ríkjum ESB. Þegar
skoðaðir eru möguleikar á því að taka
upp annan gjaldmiðil en íslensku krón-
una er því eðlilegt að líta til Evrópu.
KOSTIR
Nokkrir ábataþœttir þess að taka uþþ
evró:
Gauti B. Eggertsson útskrifaðist sl. vor frá hagfræðiskor viðskipta- og hag-
ffæðideildar Háskólans með hæstu einkunn sem þar hefur verið gefin til
þessa; 9,1. Hann fékk 9,5 fyrir lokaritgerð sína sem fjallaði um eina mynt í
Evrópu; evró. Gauti þykir einn aleihilegasti hagfræðingur landsins. Hann
stundar nú framhaldsnám við Princeton háskólann í Bandaríkjunum.
FY-mynd: Kristín Bogadóttir.
Lægri viðskiptakostnaður
Kostnaður vegna gjaldeyrisvið-
skipta innan Evrópu hverfur. Ef notað-
ar eru svipaðar aðferðir og ESB notar
/
Ur lokaritgerd Gauta Eggertssonar hagfrœdings:
„ODYSSEIFUR OG MA
44
Eiga íslendingar ab kasta krónunni og taka uþp evró, samevrópska mynt?
Viö birtum hér helstu nióurstööur úr lokaritgerö Gauta