Frjáls verslun - 01.09.1997, Side 46
Skammtímavextir á íslandi og í helstu viöskiptalöndum
Vextir myndu lækka á íslandi við að taka upp evró. Hér sjáum við skamm-
tímavextí á Islandi og í helstu viðskiptalöndunum. Heimild: Seðlabankinn
milliríkjaviðskipta vegna sameiginlegr-
ar myntar. Ef ísland tæki upp evró er
ekki óvarlegt að ætla að áhrifin yrðu
allnokkur því að lítil jaðarríki hagnast
hlutfallslega meira á því að bindast
stórum markaði en stærri ríki.
GALLAR
Nokkrir kostnaðarþœttir pess að taka
upp evró:
Færri stjórntæki
Helsti gallinn við að leggja niður ís-
lensku krónuna er að þá fækkar hag-
stjórnartækjum stjórnvalda. Ekki er
lengur hægt að nota gengið við hag-
stjórn og reka sjálfstæða vaxta- og pen-
ingastefnu. Af þessu skiptir gengis-
stjórnun mestu máli. Ef raunskellur
ríður yfir íslenska hagkerfið, til dæm-
is ef þorskstofninn hrynur, getur
verið heppilegt að beita geng-
inu til að ná jafnvægi í þjóð-
arbúskapnum. Grundvall-
arforsenda þess að heppi-
legt sé að nota gengi sem
hagstjórnartæki er að
laun séu tregbreytanleg.
Við þorskaflabrest minnka
útílutningstekjur þjóðarinn-
ar og því verða raunlaun að
laga sig að breyttum aðstæð-
um. Gengisfelling getur
auðveldað þá aðlögun og
komið í veg fyrir atvinnu-
leysi og samdrátt. Ef
vinnumarkaðurinn er skil-
virkur og laun fullkomlega sveigjanleg
er gildi gengis sem hagstjórnartækis
lítið sem ekkert, jafnvægi í þjóðarbú-
skapnum kemst á fyrir tilstilli mark-
aðsaflanna. Flestar hagrannsóknir
benda til að laun séu tregbreytanleg.
Spurningin er hins vegar hversu mikið
og hvort það hafi afgerandi áhrif.
Nokkur atriði hafa úhrif á pað
hversu miklu pað ræður að geta beitt
genginu sem hagstjórnartœki:
Hagsveiflan
Islenskt atvinnulíf er mjög einhæft
og byggir að stórum hluta á einum at-
vinnuvegi, sjávarútvegi. Þjóðarfram-
leiðsla íslands sveiflast meira en í
flestum ríkjum OECD. Islenska hag-
sveiflan hreyfist ekki í beinum takti
við þá evrópsku. Einföld fylgnirann-
sókn sýnir að fylgnin er aðeins um
17% milli íslensku hag-
sveiflunnar og þeirrar
evrópsku. Akaflega
varasamt er þó að
einblína á ein-
falda fylgni-
stuðla, þeir
kunna oft að
vera villandi.
Engu að síður er
ljóst að þjóðar-
framleiðslan sveifl-
ast meira á Islandi en
í flestum öðr-
um ríkjum.
Það eykur
kostnaðinn af
því að fórna
krónunni því að þá er ekki unnt að
nýta gengið til að draga úr áhrifum
hagsveiflunnar.
Hreyfanleiki vinnuafls
Islendingar bregðast fljótt við
versnandi atvinnuhorfum og slæmu
efnahagsástandi með því að flytja úr
landi. Hreyfanleiki vinnuafls til og frá
Islandi er likari þvi sem gerist innan
Bandaríkja Norður-Ameríku en Evr-
ópu.
Þetta minnkar þörfina á raunlauna-
lækkun við ytri skelli og dregur úr
kostnaðinum af því að fórna genginu
sem hagstjórnartæki.
Sveigjanleiki launa
Ef laun væru fullkomlega sveigjan-
leg og vinnumarkaðurinn skilvirkur
væri gildi gengis sem hagstjórnartæk-
is lítið sem ekkert, hagkerfið myndi
alltaf starfa við fulla atvinnu. Að mati
sérfræðinga OECD er íslenski vinnu-
markaðurinn einn sá sveigjanlegasti
sem þekkist, enda hreyfast raunlaun
hratt í takt við breytingar í efnahagsá-
standi þjóðarinnar. Að mati höfundar
er þessi sveigjanleiki að miklu leyti of-
metinn af OECD, þvi að sveigjanleik-
inn byggist að verulegu leyti á því að
stjórnvöld hafa beitt genginu til að
lækka raunlaun þegar illa árar. Engu
að síður er vinnumarkaðurinn á Is-
landi hugsanlega betur í stakk búinn
til að glíma við erfiðar aðstæður en
vinnumarkaðir í mörgum öðrum ríkj-
um Evrópu. Það gerir kostnaðinn við
að taka upp evró á Islandi lægri í sam-
anburði við önnur lönd Evrópu.
ER KOSTNAÐUR VIÐ
GENGISBREYTINGAR STJÓRNVALDA?
A undanförnum árum hefur þeim
hagfræðingum ijölgað sem hafa al-
mennt efasemdir um gildi gengis-
stjórnunar sem hagstjórnartækis og
telja að litlu sé fórnað með því að sam-
einast stærra myntsvæði.
Sífelldar gengisfellingar hafa líka
kostnað í för með sér. Útflutningur ís-
lendinga hefur ekki aukist jafn mikið
og annarra ríkja í veröldinni. Ein af
ástæðum þess kann að vera óstöðugt
gengi sem skaðar milliríkjaviðskipti.
Staðaifrávik raungengis á Islandi síð-
Það er ekki hundrað í hætt-
unni þótt krónan verði látin
rúlla og evró tekin upp.
46