Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1997, Side 70

Frjáls verslun - 01.09.1997, Side 70
Jón Erling Ragnarsson, sölustjóri hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Jón er einn fárra Islendinga sem bæði hefur orðið Islandsmeistarí í knattspyrnu, með Fram, og í handknattíeik, með FH. Hann er slingur golfleikari og með 10 í forgjöf. FV-mynd: Kristín Bogadóttir. unum og vera í góðu sam- bandi við okkar fjölmörgu viðskiptavini. Þetta er ekk- ert persónulegt en þetta er stríð." Undanfarin ár hefur ákveðin samþjöppun átt sér stað í matvöruverslun á Is- landi, sérstaklega á höfuð- borgarsvæðinu þar sem nokkrar stórar verslana- keðjur eru orðnar nær ein- ráðar. Þetta hefur, að sögn Jóns Erlings, að sumu leyti einfaldað starfið þar sem færri aðila þarf að semja við. A hinn bóginn er meira í húfi í hverju tilviki fyrir sig. „Samningamálin eru gríðarlega mikilvæg í þess- um efnum og þar verður að halda vel á spöðunum.“ íslendingar drekka einna mest allra þjóða af gos- drykkjum en tölur um hlut einstakra framleiðenda í þeirri neyslu eru ekki opin- berar og eru, að sögn Jóns, ekki gefiiar upp. Það eina sem hann vill segja um það mál er að hlutur Egils í gos- drykkjasölu sé vanmetinn. Stærstu mánuðirnir í gosdrykkjasölu eru kring- M JON ERLING, OLGERDINNI sem nú er. Jón Erling hefur starfað hjá Ölgerðinni í sex ár. Áður starfaði hann m.a. á Stöð 2 í auglýsinga- og kynningar- deild. Hann var einnig um hríð verslunarstjóri í Spörtu sem er verslun með íþrótta- vörur. „Það var góð reynsla og kenndi mér margt í sölu- tækni.“ Jón varð stúdent frá Fjöl- braut í Garðabæ 1986 og lærði síðan markaðs- og auglýsingafræði í tvö ár við San José State University í Kaliforníu. Hann ákvað síðan að taka sér frí frá nám- inu um stund en það frí stendur enn. „Það er ómögulegt að segja hvað verður í þeim efnum. Kalifornía er frá- bært land og aldrei of seint að ljúka námi.“ Jón er giftur Þórunni Dögg Árnadóttur kennara og þau eiga eina dóttur, Unu Brá, sem er fjögurra ára. Annað barn er á leiðinni og væntanlegt í desember, eða í miðri malt- og appelsínver- tíðinni, eins og Jón orðar það. Jón Erling er fyrrverandi keppnismaður í íþróttum en hann lék samtals 15 ár með meistaraflokki FH í knatt- spyrnu og handbolta og spilaði einnig fótbolta með Fram. Hann hætti ekki fyrr en fyrir tveimur árum og segist síðan hafa helgað fjöl- skyldunni eins mikið af frí- tíma sínum og hægt er. „Eg hef mikinn áhuga á golfi og er með 10 í forgjöf. Það hefur ekki gefist mikill tímúupp á síðkastið en ég vildi bæta úr því. Golfið er ekkert ólíkt vinnunni að sumu leyti. Það snýst um að fá sem besta skor úr hverri holu og leggja sig allan fram. Annars líður mér best heima hjá mér.“ SH itt starf snýst um daglegan rekstur söludeildar, sam- skipti við erlenda aðila og innlenda viðskiptavini. Okk- ar svæði er Reykjavík, Suð- urnes og Suðurland eða langstærsti hluti markaðar- ins,“ segir Jón Erling Ragn- arsson, sölustjóri hjá Öl- gerðinni Egill Skallagríms- son hf. Jón Erling sinnir mark- aði þar sem samkeppni er gríðarlega mikil og fram- leiðendur berjast hart um hylli viðskiptavina. Það er tekist á um hylli viðskipta- vina og ekki síður kaup- manna sem selja gosdrykki en uppstilling og framsetn- ing í verslun getur auðveld- lega haft úrslitaáhrif á val neytandans. „Þetta er stöðug barátta. Menn reyna að ná til sín við- skiptum frá öðrum, auka viðskipti þar sem þau eru fyrir og yfirleitt að slaka aldrei á árvekni sinni í þess- um efnum. Þetta snýst mik- ið um að vaka yfir viðskipt- um jól, páska og hluta af sumrinu. Jón segir að stöðugt sé unnið að því að jafna söluna yfir áríð og í þeim efnum verði lalsvert ágengt. Ölgerðin Egill Skalla- grímsson er meðal grón- ustu iðnfyrirtækja landsins og hefur starfað í Reykjavík frá fyrsta áratug aldarinnar. Fyrirtækið er í nýlegum bækistöðvum á Ár- túnshöfða og ætlar sér stærri hlut því hægt er að auka afköstin þrefalt frá því TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON 70

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.