Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1997, Qupperneq 73

Frjáls verslun - 01.09.1997, Qupperneq 73
□ ið einbeitum okkur að stærri viðskipta- vinum og stofnana- flárfestum. Þetta er í sam- ræmi við þróunina annars staðar í heiminum sem er aukin sérhæfing verðbréfa- fyrirtækja,“ segir Ragnar Þórisson verðbréfamiðlari í erlendum verðbréfum. Ragnar starfar hjá Verðbréfa- stofunni á Suðurlandsbraut sem er ungt fyrirtæki undir forystu Jafets Olafssonar. Fyrirtækið var stofnað í nóv- ember 1996 svo ársafmælið nálgast senn. Helstu viðskiptavinir Verðbréfastofunnar eru því lífeyrissjóðir, bankar og stærri fyrirtæki sem fjárfesta í hlutabréfum og skuldabréf- um. „Mitt hlutverk er að fylgj- ast með erlendum mörkuð- um, aðallega bandaríska markaðnum, Asíumarkaði og erlendum hlutabréfasjóð- um. Einnig sé ég um bein hlutabréfakaup frá Banda- ríkjunum og Evrópu. Eg skoða og fylgist með rann- sóknum og skýrslum frá samstarfsfyrirtækjum okkar um allan heim.“ Ragnar segir að smátt og smátt séu íslenskir ijárfestar að átta sig betur á þeim tæki- færum, sem bjóðast í þess- um efnum, og verði stöðugt óragari við að fjárfesta í er- lendum fyrirtækjum þar sem búast má við góðri ávöxtun. „Sem dæmi er ég að kaupa hlutabréf í írsku flug- félagi, bresku tölvuleikjafyr- irtæki, norsku oliuborunar- fyrirtæki og símafyrirtæki í Indónesíu fyrir íslenska ijár- festa.“ Að baki kaupum af þessu tagi liggur mikil vinna og rannsóknir. Fjárfestar kaupa ekld hlutabréf nema eftir að hafa skoðað vandlega og þegið ráðgjöf sérfræðinga. „Þetta gerist þannig að fyrst velja menn sér iðngrein Ragnar Þórisson starfar hjá Verðbréfastofunni og kaupir hlut í fyrirtækjum út um allan heim. FV mynd: Kristín Bogadóttír. RAGNAR ÞORISSON, VERÐBRÉFASTOFUNNI eða svið sem þeir vilja ijár- festa á. Síðan finna þeir sér fyrirtæki í þessum geira og kaupa í því. Hlutabréf er hlutabréf og þau tækifæri sem við sjáum nýtum við okkur.“ Ragnar segist fylgjast mikið með umijöllun um við- skipti af þessu tagi í blöðum, tímaritum og sjónvarpi og einnig notar hann Internetið mjög mikið til rannsókna. Nýlega hófust útsendingar frá sjónvarpsstöðinni Bloom- berg á Islandi og Ragnar fagnar því mjög. „Upplýsingar eru lykill ijárfestsins og þetta ættu menn að íhuga þegar verið er að ræða um að laða erlent ijármagn til landsins. Upp- lýsingar um íslensk fyrirtæki fyrir erlenda ijárfesta eru mjög af skornum skammti.“ Til þess að bæta úr þessu efndi Verðbréfastofan til samstarfs við Háskóla Is- lands og nemendur í mastersnámi í viðskiptafræði unnu úttekt á 10 íslenskum fyrirtækjum fyrir erlenda ijárfesta. Ragnar er 27 ára og varð stúdent frá Kvennaskólan- um 1990. Hann hefur alltaf haft brennandi áhuga á hlutabréfaviðskiptum og keypti fyrsta hlutabréfið á Wall Street þegar hann var aðeins 18 ára. Þá var hann að vinna í Ameríku og rak meðal annars vél sem mál- aði bílastæði. Eftir stúdentspróf fór hann til Ameríku og tók BA próf í viðskiptafræði við American College í Los Ang- eles. Síðan hefur hann sótt námskeið hjá New York Institute of Finance. Heim kom hann alkominn 1995 en hafði áður haft viðkomu í ís- lensku viðskiptalífi þegar hann og Skúli Mogensen í Oz stofnuðu fyrirtæki sem seldi körfuboltamyndir. Ragnar er í sambúð með Nönnu Björk laganema og segist reyna að nýta frístund- irnar til þess að stunda lík- amsrækt og hreyfingu. „Eg er í World Class, bæði í líkamsrækt og þar spila ég líka skvass. Einnig hef ég gaman af því að fara á skíði og þegar ég fer í frí þá vil ég helst fara á skíði til Austurríkis.“ W TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON 73
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.