Frjáls verslun - 01.09.1998, Side 65
STJORNUN
Lárus Finnbogason, löggiltur endurskoðandi, er einn þeirra þrettán
sem eiga hið nýja fyrirtæki. Hann hefur verið hjá Endurskoðun
Deloitte & Touche um árabil.
Þannig munu um 60 manns vinna hjá hinu sameinaða fyrir-
tæki og áætluð velta þess verður um 290 milljónir króna.
Nafn þess verður Endurskoðun Deloitte & Touche hf. og
framkvæmdastjóri verður Þorvarður Gunnarsson endur-
skoðandi.
Stofan verður ein af stærstu fyrirtækjum sinnar tegundar á
Islandi. Langstærsta endurskoðunarstofa landsins er KPMG
Endurskoðun hf. en velta hennar var um 479 milljónir á síð-
asta ári. Þar á eftir koma svo PricewaterhouseCoopers og
Endurskoðun Deloitte & Touche hf. Nokkru minni eru svo
Löggiltir endurskoðendur hf. og Endurskoðun Björns E.
Arnasonar EBEA. Síðan má nefna stofur eins og Endurskoð-
un & ráðgjöf ehf. Ernst & Young og Endurskoðun BDO ehf.
SAMEINING LÁ BEINT VIÐ
„Þetta er þróunin á þessum markaði. Einingarnar eru að
stækka. Það lá beint við að sameina þessi tvö fyrirtæki,” segir
Hjörleifur Pálsson, löggiltur endurskoðandi hjá Stoð-endur-
skoðun, en hann er einn þrettán endurskoðenda sem standa
að hinu sameinaða fyrirtæki, Endurskoðun Deloitte &
Touche hf.
„Okkur vantaði betri tengsl við alþjóðlega stofu og þau
tengsl höföu þeir. Sömuleiðis var heppilegt fyrir þá að stækka
sína einingu. Verkefnalega séð féll þetta sömuleiðis mjög vel
saman. Bragurinn í báðum fyrirtækjunum er svipaður. Við
hugsum á svipuðum nótum, erum flest á svipuðum aldri og
fyrirtækin eru með líkan bakgrunn.”
Bakgrunn fyrirtækjanna má rekja nokkra áratugi aftur í
tímann. A níunda áratugnum hófu þrír endurskoðendur sam-
starf um skrifstofuhúsnæði í Síðumúlanum, þeir Guðjón Eyj-
ólfsson, Sigurður Tómasson og Sigurður Guðmundsson. Airið
1989 breyttist samstarfið í sameiginlegt fyrirtæki, Stoð - end-
urskoðun hf. Á hinum vængnum má rekja upphafið til Sigurð-
ar Stefánssonar endurskoðanda sem hóf sjálfstæðan atvinnu-
rekstur árið 1952. Síðar var stofnað sameignarfélag um rekst-
urinn - og loks hlutafélag á árinu 1987. Félagið gerðist fullgild-
ur aðili að Deloitte & Touche á árinu 1994 en nafni fyrirtækis-
ins var breytt í Endurskoðun Deloitte & Touche á árinu 1997.
Hjörleifur Pálsson, löggiltur endurskoðandi, er einn þeirra sem
standa að hinu sameinaða fyrirtæki. Hann kemur af Stoð-endurskoð-
unar vængnum. „Það lá beint við að sameina þessi tvö fyrirtxki. ”
HUGMYNDINNi VAR FYRST HREYFT FYRIR ÁRI
Að sögn Hjörleifs var hugmyndinni um sameiningu stof-
anna fyrst hreyft fyrir um ári og féll hún þá í góðan jarðveg á
báðum stofunum. Engu að síður lá hugmyndin í geijun fram
á sl. vor er viðræður hóíust fyrir alvöru um sameiningu stof-
anna.
„Það hafa orðið miklar breytingar hjá endurskoðunarstof-
um varðandi erlend tengsl á undanförnum árum. Viðskipti á
milli landa eru meira áberandi, flæði á peningum og ijárfest-
ingum sömuleiðis. Stofurnar þurfa að leggja meira í menntun
og þjálfun starfsmanna en áður. Og stórar stofur, með góð er-
lend tengsl við alþjóðlegar endurskoðunarstofur, eiga auð-
veldara með að standa undir þeim kostnaði. Þar gildir einfald-
lega hagkvæmni stærðarinnar. Sömuleiðis bjóða stærri ein-
ingar upp á meiri sérhæfingu. I hinum öru breytingum sam-
tímans úreldist öll menntun miklu hraðar og starfsmenn
þurfa á stöðugri endurmenntun að halda. Menntun og þekk-
ing er drifkrafturinn í þessu starfi. Tæknin í kringum starf
endurskoðandans hefur einnig tekið algerum stakkaskiptum.
Núna eru öflug tölvu- og upplýsingakerfi sjálfsagður hluti af
tækjakosti endurskoðunarstofa. Umhverfið er í raun allt ann-
að en fyrir nokkrum árum.”
- En er þá hinn dæmigerði einyrki sem endurskoðandi lið-
inn undir lok?
„Það held ég ekki. Línurnar eru samt orðnar skýrari. Það
verða nokkrar mjög stórar stofur sem eiga eftir að stækka
enn frekar og þjónusta stór fyrirtæki sem smá; alla flóruna.
En það verða alltaf einyrkjar í þessu starfi og sömuleiðis fyr-
irtæki af millistærð. Geta þeirra til að þjónusta mjög stóra
viðskiptavini verður hins vegar takmarkaðri og því má búast
við að verkefifin verði í samræmi við stærð þeirra,” segir
Hjörleifur Pálsson.S!]
65