Morgunblaðið - 04.01.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.01.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ SÖLVI Sveinsson, skólastjóri Fjöl- brautaskólans í Ármúla og formað- ur Félags framhaldsskóla, segist vita til þess að allmargir nemendur hafi þegar ákveðið að hætta námi í vetur í framhaldsskólunum vegna verkfallsins í skólunum. Hann telur verulega hættu á að þeim fjölgi hratt takist ekki að ljúka samn- ingum um helgina. Samkvæmt starfsáætlun fram- haldsskólanna áttu kennarar að mæta til starfa í dag að loknu jóla- leyfi. Kennsla átti að hefjast í skól- um með bekkjakerfi í dag en öðrum skólum á morgun. Sölvi er afar óánægður með að enn skuli ekki hafa náðst samningar í kjaradeil- unni. „Mér finnst þetta ástand orðið óþolandi. Viðræður hafa gengið allt of hægt. Það virðist sem aðilar hafi hreinlega ekki verið nægilega vel undirbúnir. Mér finnst að þær við- ræður sem hafa staðið um breyt- ingar á vinnutíma og breytingar á skipulagi hefðu átt að eiga sér stað fyrir löngu. Niðurstaða hefði átt að vera fengin í viðræður um þessi at- riði áður en farið var að ræða um kaup og kjör,“ sagði Sölvi. Sölvi sagðist rétt ætla að vona að takist að ljúka kjarasamningum um helgina. Allmargir nemendur hefðu þegar tekið ákvörðun um að hætta námi í vetur. „Ég er fullviss um að dragist að hefja kennslu aftur fjölgi þeim stórlega sem hverfa frá námi. Þessir dagar sem eru framundan skipta því miklu máli. Slæmt er þetta búið að vera, en út yfir tekur ef menn taka sér ekki tak og klára þetta núna um helgina.“ Haustönninni ljúki í lok janúar Sölvi sagðist ekki telja annað verjandi en að nemendur fengju námsmat á þær rúmar 10 vikur sem þeir voru við nám á haustönn. „Ég tel að við verðum að reyna að ljúka haustönninni núna í janúar og hefja vorönn í byrjun febrúar og ljúka henni með einhverju móti fyr- ir hvítasunnu. Ég tel að við verðum að kenna þétt og haga námsmati með þeim hætti að þetta verði hægt.“ Sölvi Sveinsson, formaður Félags framhaldsskóla, gagnrýnir samninganefndir kennara og ríkisins Hætt við að margir hverfi frá námi ljúki verkfalli ekki skjótt SÓLIN varpaði geislum sínum yfir Suðurland hvern dag jólahátíðarinnar og gladdimenn og dýr með einstakri litadýrð. Á myndinni má sjá Heklu og Þrí- hyrning. Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir Sólin lýsir upp Suðurlandið ALMENN ánægja virðist ríkja innan Verzlunarskóla Íslands með nýgerðan kjarasamning við þá kennara skólans sem eru innan Kennarasambandsins og voru í verkfalli. Þorvarður Elíasson skólastjóri er ánægður með niður- stöðuna í atkvæðagreiðslu kenn- ara. Hún styrki sig í þeirri trú að samningurinn hafi verið góður fyr- ir skólann í heild. Mikilvægt sé að skólastarf geti hafist í dag. Tals- maður kennara er sömuleiðis ánægður með samninginn og segir þá mega vel við una. Ríflega eitt þúsund nemendur Verzlunarskólans eiga að mæta í skólann samkvæmt stundaskrá í dag en kennsla átti einmitt að hefj- ast eftir áramót hinn 4. janúar. Þorvarður sagðist í samtali við Morgunblaðið vona að velflestir nemendur mættu. Byrjað yrði á að vinna upp, eins og kostur er, það nám sem legið hefði niðri vegna verkfallsins, sem hófst 13. nóvem- ber sl. Miðsvetrarpróf áttu að fara fram í desember en að sögn Þor- varðar munu þau að öllum líkind- um falla niður vegna verkfallsins og skyndipróf þá haldin í staðinn fyrstu dagana í janúar. Hann sagð- ist þó eiga eftir að ræða þessi mál betur við kennarana. Einnig væri beðið eftir því hvað aðrir fram- haldsskólar með bekkjarkerfi gerðu þegar samningar tækjust við ríkið. Þorvarður taldi ekkert því til fyrirstöðu að útskrifa þá nemendur í vor sem gert hafði verið ráð fyrir. „Að sjálfsögðu verður ekki mán- aðarverkfall hjá Verzlunarskólan- um án þess að þess sjáist merki. Við munum þurfa að einbeita okk- ur betur að kjarna málsins, fara hraðar yfir og ekki eins djúpt í námsefnið og við hefðum gert hefði verkfallið ekki komið til,“ sagði Þorvarður. Umbylting á launakerfi Bertha Sigurðardóttir var annar tveggja kennara skólans sem áttu sæti í samninganefnd. Hún sagði við Morgunblaðið að kennarar skólans mættu vel við una. Samn- ingurinn væri góður og hún sagði niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar ekki hafa komið á óvart. Kennarar hefðu verið vel upplýstir um gang samningaviðræðna og eins eftir kynningu á samningnum sjálfum. Aðspurð hvað væri hagstæðast fyr- ir kennara í samningnum nefndi Bertha umbyltingu á uppbyggingu launakerfisins. Það hefði verið ein- faldað og aukagreiðslur alls konar komnar inn í dagvinnulaunin, sem hækkað hefðu verulega. Yfirvinnu- stuðull hefði verið lækkaður og hluti af honum tekinn inn í dag- vinnuna. Bertha taldi að takast ætti að vinna upp það námsefni sem ann- ars hefði verið farið í hefði verkfall ekki komið til. Menn væru allir af vilja gerðir svo það mætti takast. „Við höldum okkar striki.“ Hún vildi koma á framfæri ánægju og þakklæti frá kennurum Verzlunar- skólans til formanns Félags fram- haldsskólakennara, Elnu Katrínar Jónsdóttur, fyrir framgöngu henn- ar í samningaviðræðunum, sem hún leiddi fyrir hönd kennara. Við- ræðurnar hefðu gengið vel eftir að skriður komst á þær um miðjan desember. Kennarar segjast mega vel við niður- stöðuna una KENNARAR við Verzlunarskóla Íslands samþykktu nýjan kjara- samning framhaldsskólakennara og Verzlunarskólans með miklum mun. Fimmtíu og einn kennari sagði já, tveir sögðu nei og tveir skiluðu auðu. Sextíu og tveir voru á kjörskrá og greiddu fimmtíu og fimm atkvæði. Samningurinn var því samþykktur af 92% þeirra sem greiddu atkvæði. Kennsla við skól- ann hefst samkvæmt stundaskrá í dag. Grunnlaun tvöfaldast á samningstímanum Birt hafa verið nokkur helstu at- riði samningsins á heimasíðu Kennarasambands Íslands. Þar kemur fram að samningurinn felur í sér yfir 50% hækkun grunnlauna nú strax um áramótin og lætur nærri að grunnlaun tvöfaldist á samningstímanum, sem er til apríl 2004. Hækkun grunnlauna skýrist af áfangahækkunum og stórtækum tilfærslum milli yfirvinnu og dag- vinnu svo og breyttri samsetningu launa vegna þess að kennarar skipta framvegis með sér ábyrgð á störfum, s.s. deildarstjórn og um- sjón með nemendum. Auk þess færast sérstakar greiðslur á prófa- tíma nú inn í grunnlaun. Kennarar hafa eftir sem áður tryggingu fyrir því að þeir fái sömu launagreiðslur á kennslutíma og prófatíma. „Þrátt fyrir þessar breytingar á starfsskyldum kennara samkvæmt nýjum kjarasamningi eru störf þeirra í grundvallaratriðum óbreytt og í samræmi við gildandi lög og reglugerðir um skólastarf í framhaldsskólum. Í kjarasamningi VÍ er haldið í öll helstu atriði er varða vinnutíma kennara, s.s. 9 mánaða starfstíma, 175 kennslu- og prófadaga er fara skulu fram innan níu mánaða starfstíma, fjóra daga eða 32 klst. við upphaf og/eða lok starfstíma og 80 klst. til endurmenntunar ut- an starfstíma,“ segir á heimasíðu Kennarasambandsins. Kennsluskylduafsláttur minnkar í áföngum Sérstök bókun fylgir samningn- um um kennlsuskylduafslátt sem er minnkaður í skilgreindum áföngum gagnvart starfandi kenn- urum við skólann á löngum tíma. Inn í kjarasamninginn bætist grein um samstarfsnefnd við VÍ. „Kjarasamningurinn leiðir til verulegrar launajöfnunar sem kemur m.a. ungum kennurum til góða. Með honum dregur úr tekju- sveiflum og verða kennarar ekki fyrir sömu tekjurýrnun á sumrin og áður. Þá er þess að geta að mikil hækkun grunnlauna kemur sérstaklega til góða kennurum sem eru í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.“ 50% upphafshækkun grunnlauna í samningi framhaldsskólakennara og Verzlunarskóla Íslands 92% kennara sam- þykktu samninginn Morgunblaðið/Kristinn Nemendur Verzlunarskólans hefja nám að nýju í dag. Verkfall hófst í skólanum 13. nóvember.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.