Morgunblaðið - 04.01.2001, Blaðsíða 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001 49
Innritun er hafin og fer fram daglega virka daga kl. 14:00 til 17:00 í skólanum, Síðumúla 17,
sími: 588-3730, fax: 588-3731, tölvupóstur: ol-gaukur@islandia.is. Á þessari önn verða í boði
þau námskeið sem talin eru upp hér að neðan, miðað við næga þátttöku. Við bendum á nýtt
námskeið, FRAMHALDSFORÞREP, fyrir alla þá sem áður hafa lokið FORÞREPS-námskeiði
hjá okkur eða kunna eitthvað smávegis fyrir sér. Nánari upplýsingar í innritunarsíma á
innritunartíma og einnig sendum við ítarlegan bækling um skólann til þeirra sem þess óska.
LÉTTUR
UNDIRLEIKUR
Hægt
að fá leigða
HEIMAGÍTARA
kr. 2500 á önn
Sendum
vandaðan
upplýsinga-
bækling
HEFÐBUNDINN
GÍTARLEIKUR
ÖNNUR
NÁMSKEIÐ
1. FORÞREP FULLORÐINNA
Byrjendakennsla, undirstaða, léttur
undirleikur við alþekkt lög. Geisla-
diskur með æfingum fylgir.
2. FORÞREP UNGLINGA
Byrjendakennsla, sama og Forþrep
fullorðinna. Geislad. m. æfingum fylgir.
3. LÍTIÐ FORÞREP
Spennandi, styttra, ódýrara námskeið
fyrir börn að 10 ára aldri. Geisladiskur
með æfingum fylgir.
4. FRAMHALDS-FORÞREP
Nýtt, skemmtilegt námskeið
í beinu framhaldi af For-
þrepi. Geisladiskur með
æfingum fylgir.
5. PLOKK
Beint framhald Forþreps – meiri undir-
leikur með áherslu á svonefnt „plokk“.
6. ÞVERGRIP
Beint framhald Forþreps – dægurlög
undanfarinna áratuga og áhersla á
þvergrip.
7. BÍTLATÍMINN
Aðeins lög frá Bítlatímabilinu, t.d. lög
Bítlanna sjálfra, Rolling Stones, vinsæl
íslensk lög o.fl. Fyrir þá sem lokið hafa
Forþrepi/kunna fáein grip.
8. PRESLEYTÍMINN
Einkum lög sem Elvis Presley gerði
fræg um alla heimsbyggðina ásamt
alþekktum lögum íslenskra og
erlendra höfunda frá sama tíma.
Afbragðs þjálfun fyrir þá sem lokið
hafa Forþrepi/kunna fáein grip.
9. TÓMSTUNDAGÍTAR
Byrjendakennsla (sama og Forþrep
fullorðinna, en styttra) fyrir 16 ára og
eldri í samvinnu við Tómstundaskólann.
10. FYRSTA ÞREP
Undirstöðuatriði nótnalesturs fyrir
byrjendur lærð með því að leika
léttar laglínur á gítarinn o.m.fl.
Forstig tónfræði. Próf.
11. ANNAÐ ÞREP
Framhald Fyrsta þreps, leikin þekkt
smálög eftir nótum, framhald tón-
fræði- og tónheyrnarkennslu. Próf.
12. ÞRIÐJA ÞREP
Beint framhald Annars þreps. Verk-
efnin þyngjast smátt og smátt.
Framhald tónfræði- og tónheyrnar-
kennslu. Próf.
13. FJÓRÐA ÞREP
Beint framhald Þriðja þreps. Bæði
smálög og hefðbundið gítarkennslu-
efni eftir þekkt tónskáld. Tónfræði,
tónheyrn, tekur tvær annir. Próf.
14. FIMMTA ÞREP
Beint framhald Fjórða þreps. Leikið
námsefni verður fjölbreyttara.
Tónfræði, tónheyrn. Tekur tvær
annir. Próf.
15. JAZZ-POPP I
Þvergrip, hljómauppbygging,
tónstigar, hljómsveitarleikur o.m.fl.
Einhver nótnakunnátta áskilin.
16. JAZZ-POPP II/III
Spuni, tónstigar, hljómfræði,
nótnalestur, tónsmíð, útsetning.
17. TÓNSMÍÐAR I/II
Byrjunarkennsla á hagnýtum
atriðum varðandi tónsmíðar. Einhver
undirstaða nauðsynleg.
18. TÓNFRÆÐI-TÓNHEYRN I/II
Innifalin í námi.
19. TÓNFRÆÐI-TÓNHEYRN
FYRIR ÁHUGAFÓLK
Fyrir þá sem langar að kynna sér hið
einfalda en fullkomna kerfi nótnanna
til þess m.a. að geta sungið/leikið
eftir nótum.
20. KASSETTUNÁMSKEIÐ
Námskeið fyrir byrjendur á tveim
kassettum og bók, tilvalið fyrir þá
sem vegna búsetu eða af öðrum
ástæðum geta ekki sótt tíma í
skólanum en langar að kynnast
gítarnum. Sent í póstkröfu.
25ára
INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17
588-3730
NÝTT
janúarm
ánaðar
UM HVER aldamót er uppi
mikil umræða um hvenær ný
öld gengur í garð. Það er um
tvo möguleika að ræða, í þessu
tilviki 2000 eða 2001.
Margir vilja halda því fram
að 1. 1. 2001 sé fyrsti dagur 21.
aldarinnar. Það er alrangt,
finnst mér.
Ástæða þess að 2001 er upp-
áhalds aldamótaár margra er
að tímatal okkar hafi byrjað á
einum. Jesús fæddist árið eitt.
Þetta kemur til vegna vanþekk-
ingar þeirra sem settu það
saman. Á þeim tíma, fyrir u.þ.b.
1400 árum, þekktist stærðin
núll ekki. Þú byrjaðir að telja á
einum. Þetta virkar ágætlega
ef telja á epli, en ekki ár.
1. 1. 2001 hlýtur að vera 2001.
afmælisdagur Frelsarans.
Hann getur varla hafa verið
eins árs við fæðingu, þótt hann
hafi borið af á flesta aðra vísu.
Hann hlýtur að hafa orðið eins
árs á árinu eitt eftir Krist.
Því segi ég: Gleðilegt ár til
ykkar allra, og megi þau 99 ár
sem eftir eru af 21. öldinni vera
okkur öllum góð og friðsæl.
VILHJÁLMUR
ÁSGEIRSSON,
Wilhelminastraat,
1165 HA Halfweg, Hollandi.
Aldamót?
Frá Vilhjálmi Ásgeirssyni:
HVERNIG litist fólki á, að barna-
skólinn byrjaði klukkan hálftíu?
Þannig er það reyndar með þjóð,
sem Íslendingar bera sig gjarna
saman við, eins og nú skal sýnt
fram á.
Ég var staddur í Osló snemma í
desember í vetur og átti leið
framhjá barnaskóla að morgni dags
klukkan hálfníu, í myrkri, og tók
eftir því, að ljós voru ekki kveikt í
skólastofum og þótti það undarlegt.
Ég komst þá að því, að þar í borg
hefst kennsla ekki fyrr en klukkan
10 mínútur fyrir níu í öllum bekkj-
um grunnskóla. Ef Norðmenn
flýttu klukkunni að vetrarlagi um
eina stund, eins og Íslendingar
gera, og skólinn hæfist á sama tíma
miðað við sólargang, væri það
klukkan 10 mínútur fyrir tíu. Þar
sem barnakennsla í skólum Reykja-
víkur hefst um áttaleytið fannst
mér þetta svo forvitnilegt, að ég
kynnti mér skólatíma í Noregi, þar
sem líkt stendur á og í Reykjavík,
en það er í Kristjánssundi á Norð-
ur-Mæri. Sá bær er aðeins sunnar
og stendur líkt af sér miðað við
þann lengdarbaug, sem skiptir máli
fyrir staðartíma. Í Kristjánssundi
er sól í hádegisstað um klukkan
hálfeitt, en grunnskóli hefst fjórum
klukkustundum fyrr, klukkan hálf-
níu. Ef skóli í Reykjavík, þar sem
sól er nú í hádegisstað um klukkan
hálftvö, ætti að hefjast eins
snemma og í Kristjánssundi miðað
við hádegisstað sólar, fjórum tím-
um fyrr, væri það klukkan hálftíu,
en er hálfum öðrum tíma fyrr,
klukkan átta. Þegar börn í Reykja-
vík fara á fætur klukkan sjö til að
hafa sæmilegan tíma til að klæða
sig, nærast og komast í skólann, er
það sex og hálfum tíma fyrir hádeg-
isstað sólar; miðað við klukku, sem
er sett þannig, að sól er í hádeg-
isstað klukkan tólf, er fótaferð
þeirra klukkan hálfsex. Óhugsandi
er, að börn annars staðar í heim-
inum séu rekin á fætur klukkan
hálfsex, og mundi alls staðar talin
ill meðferð á börnum og ekki þykja
þurfa frekari rannsóknar við.
Svefnfræðingur, sem fylgst hefur
með þessum málum hér og kynnt
það álit sitt, að illt sé við að una,
kveðst hins vegar fá þau svör, að
það þurfi að athuga frekar, hvort
þessi fótaferð sé heilsuspillandi.
Mér sýnist hins vegar, að sá, sem
ekki skynjar það strax að þannig sé
illa farið með börn og að taka þurfi í
taumana, þurfi rannsóknar við, eins
og raunar er lögfest um þá, sem
fara illa með börn.
BJÖRN S. STEFÁNSSON
Kleppsvegi 40, Reykjavík
Grunnskólinn byrjar
klukkan hálf 10
Frá Birni S. Stefánssyni: