Morgunblaðið - 04.01.2001, Page 16

Morgunblaðið - 04.01.2001, Page 16
AKUREYRI 16 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ VOGIR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum eitt mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband Síðumúla 13, sími 588 2122 www.eltak.is AÐEINS ein umsókn barst um stöðu aðstoðarslökkviliðsstjóra Slökkviliðs Akureyrar en umsóknar- frestur rann út skömmu fyrir ára- mót. Umsækjandi um stöðuna er Heim- ir Gunnarsson tæknifræðingur og verslunarstjóri Byko á Akureyri. Birgir Finnsson aðstoðarslökkviliðs- stjóri á Akureyri hefur verið ráðinn til Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og flytur sig um set innan tíðar. Tómas Búi Böðvarsson slökkviliðs- stjóri sagði að töluverð spenna væri á vinnumarkaðnum og þá ekki síst í tæknigeiranum og að það skýrði m.a. að ekki bárust fleiri umsóknir um stöðu aðstoðarslökkviliðsstjóra. Eins og komið hefur fram bárust 11 umsóknir um stöður slökkviliðs- manna sem auglýstar voru í nóvem- ber sl. Stefnt er að því að ráða í fimm stöður slökkviliðsmanna og tengist sú fjölgun að mestu leyti sameiningu Slökkviliðs Akureyrar og Slökkviliðs Flugmálastjórnar á Akureyrarflug- velli nú um áramótin. Að sögn Tómasar Búa voru 5 af þeim 11 sem sóttu um taldir hæfir en síðan hafa tveir þeirra dregið um- sóknir sínar til baka. Hann sagði að því yrði auglýst aftur eftir slökkvi- liðsmönnum. Auglýsa þarf aftur eftir slökkviliðsmönnum á Akureyri Ein umsókn um stöðu að- stoðarslökkviliðsstjóra Mikil þensla hefur verið í byggingariðnaðinum á Akureyri Síðasta ár var metár í byggingariðnaðinum Morgunblaðið/Björn Gíslason EMBÆTTI sýslumannsins á Ólafs- firði hefur verið auglýst laust til um- sóknar en staðan er veitt frá 1. apríl 2001. Sýslumaðurinn á Akureyri hef- ur gegnt embættinu síðan haustið 1999 er Björn Rögnvaldsson, sýslu- maður á Ólafsfirði, tók við embætti sýslumannsins á Siglufirði af Guð- geiri Eyjólfssyni sem hóf störf hjá Fangelsismálastofnun ríkisins. Björn Friðfinnsson, ráðuneytis- stjóri dóms- og kirkjumálaráðuneyt- isins, segir að nú hafi þessar manna- breytingar gengið til baka nema hvað að Björn Rögnvaldsson, fyrrum sýslumaður á Ólafsfirði, hafi kosið að láta af störfum og því sé staðan aug- lýst nú. Tímabundin tilraun „Það var alltaf stefnan að þessar mannabreytingar gengju til baka. Það var ekki stefnan að leggja emb- ættið niður en það má þó segja að þetta hafi verið tímabundin tilraun hvort hægt væri að veita sömu þjón- ustu með sýslumanninn á Akureyri og ég held að það sé óhætt að full- yrða að svo hafi verið. Engu að síður var ákveðið að auglýsa stöðuna og verður hún veitt frá 1. apríl en fram að þeim tíma sinnir sýslumaðurinn á Akureyri embættinu. Ólafsfjörður Embætti sýslumanns laust til umsóknar SAMKVÆMT bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands fjölgaði Akureyr- ingum um 253 eða 1,7% á síðasta ári og voru þeir því 15.396 1. desember sl. Ásgeir Magnússon, formaður bæj- arráðs, segir að stjórnendur bæjarins séu afar hamingjusamir með þessa fjölgun. „Það er greinilegt að þetta er allt á réttri leið og við erum loks að sjá jákvæða þróun í íbúafjölda sem við höfum beðið eftir í langan tíma. Við höngum nú loksins í landsmeð- altalinu og vel það og það verður von- andi framhald á því.“ Ástæður fjölgunarinnar telur Ás- geir vera marga samverkandi þætti. „Það hafa verið gríðarleg umsvif í bæjarfélaginu á undanförnum miss- erum, bæði á vegum opinberra aðila og ekki síður í einkageiranum þar sem mikill uppgangur hefur verið. Byggingariðnaðurinn er oft góður mælikvarði á hvort heilbrigt efna- hagsumhverfi er í viðkomandi sam- félagi og það eru ár og dagar síðan jafn mikið hefur verið byggt eins og gert er nú hér á Akureyri. Mikill upp- gangur hefur verið í verslun og þjón- ustu hér á Akureyri ásamt öðrum greinum og það er því vonandi að fólk sjái að hér er gott að búa og nóg um að vera. Ánægð á meðan ekki fækkar Á Grenivík og í Grýtubakkahreppi fjölgaði íbúum um 5 á árinu, eða úr 379 íbúum í 384. Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri segir að fjölgað hafi um 14 manns á Grenivík en að sama skapi hafi fækkað í sveitinni. „Hjá okkur hefur fjölgað í þéttbýlinu en dregist saman aftur í dreifbýlinu enda virðist þróunin vera þannig. Það hefur verið talsvert um að fólk hafi verið að flytja annars staðar að af landinu á Grenivík og eru þar á meðal einhverjir áður brottfluttir Grenivík- urbúar. Þótt fjölgunin sé ekki mikil er maður ánægður meðan ekki fækkar.“ Formaður bæjarráðs Akureyrar um íbúafjölgun á Akureyri Jákvæð þróun sem beðið hefur verið eftir lengi Morgunblaðið/Björn Gíslason FÉLAGAR í Veðurklúbbnum á Dalbæ á Dalvík eru nokkuð bjartsýn- ir í janúarspá sinni á nýju ári og vilja halda sig við það sem sagt var um fyrstu þrjú vetrartunglin, að þau yrðu svipuð. Þriðja tunglið endar þann 24. janú- ar nk. og nýtt kviknar, þorratungl. Samkvæmt þessu ætti veðrið að verða svipað og verið hefur, umhleyp- ingasamt, hvasst, norðlægar áttir og svalt en samt með hléum. Þó gæti orðið breyting á, að hann verði vest- anstæður og meiri skafrenningur en verið hefur. Ekki gera þeir klúbb- félagar ráð fyrir miklum snjó eða stórtíðindum. Bjartsýni í veðurspánni byggja flestir klúbbfélagar á að mjög sjald- gæft er að það komi harður vetur eftir slíku veðri og var hér sl. sumar. Þeir telja þó að það geti orðið meiri vetur austast á landinu og sunnanlands. Janúarspá Veður- klúbbsins á Dalbæ Svipað veður verður áfram SÍÐASTA sýning leikritsins Gleði- gjafarnir verður hjá Leikfélagi Ak- ureyrar laugardaginn 6. janúar. Gleðigjafarnir er eitt vinsælasta og víðförlasta leikrit bandaríska leik- skáldsins Neil Simon en leikritið hefur verið sýnt við góðan orðstír hjá Leikfélagi Akureyrar síðan í október. Aðalleikarar eru Þráinn Karlsson og Aðalsteinn Bergdal. Morgunblaðið/Kristján Síðasta sýning Gleðigjafanna ♦ ♦ ♦ GÍFURLEGA mikið hefur verið að gera í byggingariðnaðinum á Akur- eyri allt síðasta ár og ekki lítur út fyr- ir að lát verði á því á næstunni. Guð- mundur Ómar Guðmundsson, formaður Félags byggingarmanna í Eyjafirði, segist telja að síðasta ár sé algjört metár í byggingariðnaði á Ak- ureyri. „Hugsanlega hefur einhvern tím- ann á áttunda áratugnum verið byggt meira af íbúðarhúsnæði en þá var mun minna af öðrum framkvæmdum í gangi eins og nú. Gríðarlega mikið var byggt á síðasta ári af atvinnuhúsnæði og langtum meira en ég hef nokkur sinni séð.“ Mörg stór verkefni framundan Mörg stór verkefni eru fram undan og segir Guðmundur Ómar að gríð- arlega margt sé í farvatninu fyrir ut- an þau verkefni sem eru í gangi núna. „Fyrst er hægt að nefna innréttingu á einni hæð við Fjórðungssjúkrahúsið sem á að vera til fyrir vorið, síðan á að byggja á lóð FSA 1.600 fermetra hús fyrir Íslenska erfðagreiningu en þessi tvö verkefni bættust við aðeins á síð- ustu tveimur mánuðum ársins. Það á að byrja á nýjum áfanga við Gilja- skóla og er það tveggja ára verkefni, áformað er að byrja á Amtsbókasafn- inu og jafnframt vonast ég til að heimavist Mennta- og Verkmennta- skólans fari af stað. Einnig eru fyr- irheit um byggingu rannsóknarhúss við Háskólann á Akureyri sem hefur verið í bígerð nokkuð lengi. Ekkert lát á framkvæmdum Meðal annarra verkefna eru áform um byggingu orlofsbyggðar í Grófar- gili, einhverjar breytingar verða á heilsugæslustöðinni og eins er verið að byggja töluvert mikið af iðnaðar- húsnæði og mér sýnist að það verði áfram. Síðan er spurning hversu mik- ið verði um íbúðarbyggingar en ég tel að miðað við þá fólksfjölgun sem stefnir í samhliða komu Íslenskrar erfðagreiningar verði umtalsverð þörf fyrir íbúðarhúsnæði á komandi misserum. Guðmundur Ómar segir að ekkert lát sé á framkvæmdum, ekki síst vegna samnings Íslenskrar erfðar- greiningar, FSA og Háskólans. „Þessar framkvæmdir einar sem nú eru fyrirhugaðar í tengslum við þenn- an samning verða líkast til á annan milljarð króna á næstu tveimur árum. Segja má að þetta sé hrein viðbót við þau verkefni sem voru í gangi áður og var ég þó bjartsýnn á verkefnastöð- una fyrir. Það er því næg vinna fram undan hjá iðnaðarmönnum í bygging- ariðnaðinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.