Morgunblaðið - 04.01.2001, Blaðsíða 22
ERLENT
22 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skrifstofutækni
250 stundir!
Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrifstofum
og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög
hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum.
Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefj-
andi störf á vinnumarkaði.
Helstu námsgreinar eru:
Handfært bókhald
Tölvugrunnur
Ritvinnsla
Töflureiknir
Verslunarreikningur
Glærugerð
Mannleg samskipti
Tölvubókhald
Internet
STARFSMENNTUN
fjárfesting til framtíðar
Mig langaði að vera vel samkeppnisfær í
öllum almennum skrifstofustörfum og eftir
vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla
Íslands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word-
ritvinnslu og Excel-töflureikni og lærði
hand- og tölvufært bókhald, glærugerð,
verslunarreikning ásamt undirstöðuatriðum
í mannlegum samskiptum og Interneti.
Námið er vel skipulagt og kennsla frábær.
Nú finnst mér ég vera fær í flestan sjó!.
Steinunn Rósq, þjónustu-
fulltrúi,
Íslenska Útvarpsfélaginu
Öll námsgögn innifalin
Tölvuskóli Íslands
B í l d s h ö f ð a 1 8 , s í m i 5 6 7 1 4 6 6
Opið til kl. 22.00
RÚSSAR lögfestu fyrr í vetur
sem þjóðsöng sinn fyrrverandi
þjóðsöng Sovétríkjanna sem
saminn var að beiðni Stalíns ár-
ið 1943. Þó með þeirri breyt-
ingu, að nýr texti skyldi saminn
við gamla lagið. Í nýársmóttöku
í Kreml var nýi þjóðsöngurinn
frumfluttur opinberlega, eftir
að Vladimír Pútín hafði sam-
þykkt hann. Hinn 87 ára gamli
Sergej Mikhalkov, höfundur
textans frá 1943, samdi nýja
þjóðsönginn en í honum vekur
athygli, að ort er um hið „heil-
aga Rússland“ sem „Guð
verndar“. Á hinum „guðlausu“
tímum Sovétríkjanna var
óhugsandi að minnzt væri á
Guð í opinberum söngtextum
eins og þjóðsöngnum. Hin
gamla hylling Vladimírs Leníns
og kommúnismans er horfin.
Talsmenn rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar hafa fagnað
nýja þjóðsöngnum en Borís
Jeltsín, fyrrverandi forseti, er
ekki eins hrifinn eftir því sem
segir í frétt sænska blaðsins
Nya Dagen.
Fischer var
„herskár“
JOSCHKA Fischer, utanríkis-
ráðherra Þýzkalands, viður-
kennir í viðtali sem þýzka viku-
ritið Der
Stern birtir
í dag,
fimmtudag,
að hann
hafi á sín-
um tíma – á
fyrri hluta
áttunda
áratugar-
ins – verið
„herskár“
þátttakandi í hreyfingu vinstri-
sinnaðra stúdenta en hafi þó
hafnað vopnaðri baráttu fyrir
þeim pólitísku markmiðum sem
hann aðhylltist. Í viðtalinu seg-
ist Fischer meðal annars hafa
tekið þátt í húsatöku og slags-
málum við lögreglu í Hamborg.
Til stendur að Fischer beri vitni
eftir tvær vikur í réttarhaldi yf-
ir Hans-Joachim Klein, póli-
tískum samherja ráðherrans
núverandi frá þessum tíma, en
Klein þarf að svara til saka fyrir
meinta þátttöku sína í að ræna
fulltrúum á OPEC-fundi í Vín
árið 1975. Aðalmaðurinn sem
að mannráninu stóð var hinn al-
ræmdi hryðjuverkamaður Car-
los, öðru nafni Iliich Ramirez
Sanchez, en tveir lífverðir og
einn OPEC-fulltrúi létu lífið er
mannránið var framið.
Sjálfsmorðs-
tilræði í
Istanbúl
ÓÞEKKTUR maður framdi
sjálfmorðssprengjutilræði á
lögreglustöð í Istanbúl í gær.
Fjórir lögreglumenn og einn
óbreyttur borgari særðust, eft-
ir því sem Anatolian-fréttastof-
an greindi frá. Í gær hafði eng-
inn lýst ábyrgð á tilræðinu á
hendur sér en grunur var helzt
sagður falla á vinstriöfgamenn,
sem áður höfðu heitið því að
hefna dauða nokkurra félaga
sinna er fangauppreisnir í tyrk-
neskum fangelsum voru kveðn-
ar niður með valdi í síðasta
mánuði.
STUTT
„Guð
verndar
Rússland“
Joschka
Fischer
SADDAM Hussein, forseti Íraks,
skýtur hér úr riffli upp í loftið á
gamlársdag, sl. sunnudag. Upplýs-
ingamálaráðuneyti Íraks vísaði í
gær á bug fréttum þess efnis, að
forsetinn hefði fengið alvarlegt
slag um helgina. AFP hefur eftir
talsmanni ráðuneytisins að Saddam
hafi hleypt af 142 skotum með ann-
arri hendi; það sanni að hann sé
hinn hraustasti.
Samkvæmt heimildum íraskra
útlaga, sem nokkrar fréttastofur
vitnuðu til í gær, liggur Íraks-
forseti nú á gjörgæzlu á sjúkrahúsi
í Bagdad.
Reuters
Saddam sagður
hafa fengið slag
AÐALVITNI ákæruvaldsins í réttar-
höldunum til embættismissis á hend-
ur Joseph Estrada, forseta Filipps-
eyja, bar við vitnaleiðslur í gær að
hann hefði veitt forsetanum andvirði
hundraða milljóna króna af hagnaði
af ólöglegum fjárhættuspilum.
Efnt var til réttarhaldanna yfir
Estrada í kjölfar ásakana ríkisstjór-
ans Luis Singson þessa efnis, og stóð
hann við framburð sinn er hann kom í
fyrsta sinn fyrir dómstól öldunga-
deildarinnar í gær. Singson bar einn-
ig að Estrada hefði skipað sér að
breiða yfir þá staðreynd að tekjur af
skattfé hefðu runnið til forsetans og
fjölskyldu hans.
Verjandi Estradas, Estelito Men-
doza, freistaði þess við vitnaleiðslurn-
ar í gær að draga upp mynd af Sings-
on sem spilltum stjórnmálamanni
sem reyndi að koma sök á forsetann
fyrir eigin afbrot. „Ég er tilbúinn að
fara í fangelsi, svo fremi sem höfuð-
paurinn fer sömu leið,“ svaraði Sings-
on þá.
Sagði forsetann hafa tekið við
hundruðum milljóna
Vitnaleiðslurnar yfir Singson í gær
tóku yfir fjórar klukkustundir, en
verjanda Estradas tókst ekki að fá
hann til að hvika frá fyrri vitnisburði.
Singson sagði að forsetinn hefði á
tveggja ára tímabili tekið við 400
milljónum filippseyskra peseta, eða
um 700 milljónum króna, af hagnaði
af ólöglegum fjárhættuspilum. Féð
hefði ýmist verið lagt inn á banka-
reikninga í eigu Estradas eða afhent
á skrifstofu hans.
Singson fullyrti einnig að aðstoð-
armenn forsetans hefðu fyrir hans
hönd tekið við töskum, sem innihéldu
tekjur af skattfé, en viðurkenndi eftir
spurningar öldungadeildarþing-
manna að hann hefði ekki sjálfur séð
forstetann taka við skattfénu. Hann
kvaðst samt sem áður vera sannfærð-
ur um að Estrada hefði fengið féð í
hendur, enda hefði hann staðfest það
við sig síðar, og fullyrti að forsetinn
hefði fyrirskipað að þessu yrði haldið
leyndu. Singson sagði þó hugsanlegt
að ekki hefði verið um að ræða 140
milljónir peseta, eins og hann hélt
fyrst fram, heldur 90 milljónir.
Estrada er ákærður fyrir mútu-
þægni, fjárglæfra, trúnaðarbrest og
brot á stjórnarskránni. Ef tveir þriðju
af 22 þingmönnum öldungadeildar-
innar finna hann sekan um eitt eða
fleiri ákæruatriðanna verður honum
vikið úr embætti.
Aðalvitnið
stendur við
ásakanir sínar
Réttarhöldin yfir Joseph Estrada
Manila. AFP, AP, Reuters.
AP
Luis Singson svarar spurningum
verjanda Estradas, Estelitos
Mendoza, við vitnaleiðslur í gær.
NORSKI ríkissaksóknarinn til-
kynnti í gær, að gefnar yrðu út
ákærur á hendur fjórum manneskj-
um fyrir að hafa myrt þrjár mann-
eskjur á Orderud-býlinu 22. maí árið
1999. Er hér um að ræða eitt mesta
og kunnasta morðmál í norskri sögu.
Réttarhöldin eiga að hefjast í lok
apríl næstkomandi og búist er við,
að þau muni standa í marga mánuði.
Eru gögnin í málinu mikil að vöxtum
en samt mjög umdeild.
Kristian Orderud, 81 árs að aldri,
Marie Orderud, kona hans, 84 ára,
og dóttir þeirra, Anne Orderud
Paust, 47 ára gömul, voru skotin á
Orderud-býlinu sem er skammt fyr-
ir norðan Ósló. Voru tvær byssur
notaðar við morðin og alls 13 skot.
Heldur ákæruvaldið því fram, að
langvarandi deilur milli Kristians og
sonar hans, Per Orderuds, um rétt-
inn til fjölskyldubýlisins sé undirrót
morðanna. Þau fjögur, sem verða
ákærð, neita þó allri sök og lögregl-
an hefur ekki enn lagt fram tækni-
legar sannanir fyrir því, að þau hafi
framið morðin.
Þessi fjögur eru Per Orderud og
kona hans, Veronica Orderud; Lars
Grønnerød og Kristin Kirkemo. Þau
tvö síðarnefndu verða einnig ákærð
fyrir sprengjutilræði við Anne
Orderud Paust og eiginmann henn-
ar, Per Paust, sumarið 1998. Það var
15. júlí 1998 að sprengja fannst und-
ir bifreið Anne Orderud Paust en
hún var þó ekki með neinum
kveikjubúnaði. Telur lögreglan sig
hafa sannanir fyrir því, að þau
Grønnerød og Kirkemo hafi komið
sprengjunni fyrir en hún hefur hins
vegar engar vísbendingar um hver
eða hverjir komu fyrir opnum gas-
kút við heimili Anne í Ósló 12. ágúst
þetta sama ár.
Fjögur ákærð fyrir
Orderud-morðin
Ósló. Morgunblaðið.
og bætti við að „fyrirtækið hefði
áhyggjur af hatursáróðri“.
Franski dómstóllinn kvað upp
úrkskurð sinn í nóvember en Yahoo
höfðaði í desember mál fyrir dómstól
í Kaliforníu, þar sem höfuðstöðvar
fyrirtækisins eru, og krafðist þess að
franski úrskurðurinn yrði felldur úr
gildi. Að sögn Traynors verður þeim
málarekstri haldið áfram en hann
segir málið snúast um tjáningar-
frelsi á Netinu, sem sé grundvallar-
atriði.
Málaferlin eru álitin prófsteinn á
gildi löggjafar einstakra ríkja í hinu
alþjóðlega umhverfi Netsins.
BANDARÍSKA netfyrirtækið
Yahoo mun frá og með 10. janúar
banna sölu á munum sem tengjast
nasistum á uppboðssíðum sínum á
Netinu, að því er tilkynnt var á
þriðjudag.
Lögmaður fyrirtækisins sagði að
ákvörðunin tengdist ekki úrskurði
fransks dómstóls sem skyldaði
Yahoo til að taka í notkun svokall-
aðar síur svo franskir notendur gætu
ekki skoðað síður þar sem nasistam-
unir væru boðnir til sölu. „Forsvars-
menn Yahoo tóku þessa ákvörðun í
samræmi við stefnu fyrirtækisins,“
sagði lögmaðurinn Michael Traynor
Yahoo bannar nasistasíður
San Fransisco. AFP.