Morgunblaðið - 04.01.2001, Blaðsíða 24
ERLENT
24 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á AÐEINS einu ári hefur næstum
tekist að útrýma heilahimnubólgu
af C-stofni í Bretlandi. Var það
gert með umfangsmikilli bólusetn-
ingu sem kostaði nokkuð á þriðja
milljarð ísl. kr. Ekki hefur þó enn
tekist að framleiða bóluefni við
heilahimnubólgu af B-stofni en hún
er öllu algengari en sú af C-stofni.
Kom þetta fram í breska dag-
blaðinu Daily Telegraph í gær sem
sagði, að von væri á yfirlýsingu um
þetta frá breska heilbrigðisráðu-
neytinu. Að sögn Haralds Briem
sóttvarnalæknis er nú verið að
skoða hvort sams konar bólusetn-
ing verði hafin hér á landi.
Enginn heilahimnubólgufaraldur
kom upp í breskum skólum á síð-
asta ári og áætlað er, að lífi 25
barna, unglinga og ungs fólks hafi
verið bjargað með bólusetningunni.
Hefur sjúkdómstilfellum meðal
unglinga á aldrinum 15 til 17 ára
fækkað um 90% og um 82% meðal
barna sem eru yngri en ársgömul.
Er þessi árangur kallaður „krafta-
verk“ sem jafnist aðeins á við þann
árangur sem náðist í baráttunni við
lömunarveikina á sjötta áratug síð-
ustu aldar.
Sérfræðingar breska heilbrigðis-
ráðuneytisins líkja bólusetningunni
við „leifturstríð“ og segja, að heila-
himnubólga af C-stofni muni verða
æ sjaldgæfari. Þá er einnig fullyrt,
að einsdæmi sé, að jafnmikill ár-
angur náist á jafnstuttum tíma en
fólk er almennt mjög hrætt við
heilahimnubólguna vegna þess, að
oft er hún ekki réttilega greind í
fyrstu þegar börnin veikjast.
Dr. George Kassianos, talsmaður
Félags breskra heimilislækna, seg-
ir, að þessi mikli árangur hafi náðst
vegna þess, að allir hafi lagst á eitt,
heilbrigðisyfirvöld, læknar, fram-
leiðendur og dreifingarfyrirtæki.
Segir hann, að ekki sé vitað um
jafngóðan árangur annars staðar.
Kassianos segir, að á árunum
1998 til 1999 hafi 1.530 manns
sýkst af heilahimnubólgu C. 150
hafi látist, þar af 40 unglingar. Yf-
irleitt verður sjúkdómurinn einum
af hverjum tíu að bana.
Bólusetningin hófst í nóvember
1999 og síðan hafa verið notaðar
um 18 milljónir skammta. Höfðu
ungabörn og elstu unglingarnir
forgang enda eru þessir hópar
taldir eiga mest á hættu. Aðrir
hópar hafa síðan komið inn og er
nú búið að bólusetja alla sem eru
18 ára og yngri. Hér eftir mun
bólusetningin því aðeins beinast að
ungabörnum.
Heilbrigðisyfirvöld leggja eftir
sem áður mikla áherslu á, að fólk
sé vel á verði enda sé ekki enn búið
að finna bóluefni við heilahimnu-
bólgu af B-stofni. Er það afbrigði
raunar algengara í Bretlandi en C-
afbrigðið, eða um helmingur tilfella
á móti þriðjungi.
Síðasti stóri faraldurinn
á Íslandi 1974
Haraldur Briem sóttvarnalæknir
sagði í gær í viðtali við Morgun-
blaðið, að hér á landi væru heila-
himnubólgutilfellin 10 til 12 á ári
og um helmingur af hvorum stofni.
Síðasti stóri faraldurinn hér hefði
verið 1974 og hefði þá verið um að
ræða B-stofn. Sagði Haraldur, að
verið væri að kanna hvort hafist
yrði handa við bólusetningu við C-
stofninum.
Árangur af baráttu Breta við heilahimnubólgu C
Hefur næstum verið
útrýmt á einu ári
London. Daily Telegraph.
Ekkert bóluefni
er þó enn til við
heilahimnubólgu
B sem er öllu
algengari
JEAN-Christophe
Mitterrand, sonur
Francois heitins
Mitterrand Frakk-
landsforseta, verður
að dúsa áfram í
fangelsi vegna þess,
að hann á ekki fyrir
tryggingunni.
Skýrðu lögfræðing-
ar hans svo frá í gær
en Mitterrand er
sakaður um ólöglega
vopnasölu.
Mitterrand var
fangelsaður 21. des-
ember sl. en í fyrra-
dag úrskurðaði dóm-
ari, að láta mætti
hann lausan úr hinu
illræmda Sante-fangelsi í París gegn
tryggingu. Er hún óvenjuhá eða
rúmlega 60 millj. íslenskra króna.
Einn lögfræðinga Mitterrand sagði,
að líkja mætti ákvörðun dómarans
við fjárkröfur mannræningja og
annar sagði, að engin leið væri að
útvega þetta fé. Þess vegna yrði
Mitterrand að vera áfram í fangels-
inu.
Ólögleg vopnasala
og fjárdráttur
Jean-Christophe Mitterrand er
grunaður um ólöglega vopnasölu og
einnig um að hafa dregið sér fé í
sambandi við sölu á miklu af rúss-
neskum vopnum til Angóla snemma
á síðasta áratug. Var hann ráðgjafi
föður síns, Mitterrand forseta, í mál-
efnum Afríku á árunum 1986 til 1992
og fékk þá viðurnefnið „Pabbi sagði
mér“ (Papa-m’a-dit) vegna þess hve
oft hann vitnaði til orða föður síns.
Hefur hann viðurkennt að vopnasal-
inn Pierre Falcone, sem er einnig til
rannsóknar, hafi greitt rúmlega 150
millj. kr. inn á reikning sinn í Sviss
en það hafi verið fyrir aðstoð við ol-
íusölu, löglega milliríkjasamninga.
Treysta á frávísun
Lögfræðingar Mitterrand og
Falcone vonast til, að málinu gegn
þeim verði vísað frá vegna alvarlegs
brots eins rannsóknardómaranna.
Segja þeir, að hann hafi breytt og
fært aftur í tímann dagsetningu á
úrskurði um, að rannsókn á málinu
skyldi aukin en það var á grundvelli
úrskurðarins, sem þeir Mitterrand
og Falcone voru flæktir í málið. Þá
segja þeir, að jafnvel þótt einhver
vopnasala hafi átt sér stað, sé hún
ekki mál franskra yfirvalda vegna
þess, að engin vopn hafi farið um
Frakkland. Þá sé fjárdráttarkæran
marklaus vegna þess, að fyrirtækið,
sem hún snertir, sé skráð á bresku
eynni Mön.
Sonur Mitterr-
ands verður
áfram í fangelsi
Má ganga laus en segist ekki eiga
fyrir tryggingunni
París. Reuters.
Reuters
Francois heitinn Mitterrand, forseti Frakk-
lands, ásamt syni sínum, Jean-Christophe.
SAUTJÁN ára breskur fram-
haldsskólanemi, Adam Hugh-
es, hafði ekki verið lengi í
starfskynningu í prentsmiðju
þegar hann tók sig til og end-
urskipulagði sölu- og markaðs-
mál fyrirtækisins og bjargaði
því þar með frá gjaldþroti.
Hughes kom upplýsingum
um fyrirtækið á Netið en það
hafði áður eingöngu notast við
gamaldags aðferðir eins og
síma og bréfaskipti.
Þessi breyting var svo
áhrifarík að prentsmiðjan fékk
stórar pantanir um leið frá
Bretlandi og Bandaríkjunum.
Mikil umskipti
Martin Mulligan, fram-
kvæmdastjóri prentsmiðjunn-
ar, sagði að hún hefði barist í
bökkum áður en Adam Hugh-
es kom til sögunnar. Breyting-
arnar hefðu hins vegar verið
afar áhrifaríkar. „Við fengum
pöntun frá Ameríku að verð-
mæti 70.000 pund [nær níu
milljónir króna] og við gerum
ráð fyrir að ná yfir milljón
dollurum [85 millj. ísl. kr.]
veltuaukningu út á pöntunar-
kerfið sem Adam á allan heið-
ur af.“
Mulligan var svo hrifinn af
Adam, sem lýkur námi í kaþ-
ólska framhaldsskólanum St.
Edwards College í Liverpool í
vor, að hann bauð honum stöðu
yfirmanns markaðsmála fyrir-
tækisins í Bandaríkjunum.
Adam hyggst hins vegar
halda sínu striki og hefja nám í
arkitektúr í háskólanum í Liv-
erpool.
Bjargaði
fyrirtæki
frá gjald-
þroti
The Daily Telegraph.
Breskur framhalds-
skólanemi