Morgunblaðið - 12.01.2001, Side 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LÁGMARKSFJÁRHÆÐ sú, alls 43.424 kr., sem
ríkisstjórnin hefur ákveðið að lögfesta vegna
dóms Hæstaréttar í máli Öryrkjabandalagsins, og
ætlað er að tryggja að öryrki hafi a.m.k. ákveðnar
lágmarkstekjur án tillits til tekna maka, er byggð
á tillögum starfshóps sem forsætisráðherra skip-
aði.
Aðspurður hvernig starfshópurinn hefði komist
að niðurstöðu um þessa tilteknu fjárhæð sagði Jón
Steinar Gunnlaugsson, formaður starfshópsins, að
hún byggðist ekki á nákvæmum útreikningum,
heldur á mati út frá forsendum dóms Hæstaréttar
svo uppfylla mætti þær kröfur sem í dómi Hæsta-
réttar felast.
Lægri fjárhæð en óskert
tekjutrygging einhleypings
Grunnlífeyrir örorkulífeyrisþega nemur í dag
18.424 kr. og full tekjutrygging 32.566 kr. eða
samanlagt 50.990 kr. Þær tekjuskerðingarreglur
sem Hæstiréttur dæmdi ólögmætar gátu leitt til
þess að öryrki í hjúskap eða sambúð, sem ekki
hefur aðrar tekjur en lífeyri almannatrygginga,
fengi aðeins grunnörorkulífeyri, ef tekjur maka
fóru yfir tilgreind mörk. Ekki er lagt til í skýrslu
starfshópsins og frumvarpi ríkisstjórnarinnar að
skerðing tekjutryggingar vegna tekna maka verði
að öllu leyti afnumin heldur er umræddri viðmið-
unarfjárhæð ætlað að tryggja að örorkubætur líf-
eyrisþega í sambúð eða hjúskap verði aldrei lægri
en 43.424 kr. á mánuði þrátt fyrir tengingu bóta
við tekjur maka.
Lagt er til í frumvarpi ríkisstjórnarinnar skv.
tillögum starfshópsins að umrædd tekjutrygging
verði 300 þús. kr. á ári eða 25 þús. kr. á mánuði og
því samtals að lágmarki 43.424 kr. á mánuði að
grunnlífeyri meðtöldum.
Þessi fjárhæð er nokkru lægri en óskert tekju-
trygging einhleyps öryrkja en í skýrslu starfs-
hópsins segir að við ákvörðun á þessari viðmið-
unarfjárhæð hafi verið talið rétt að taka tillit til
þess, sem fram komi í dómsforsendum Hæsta-
réttar, að það geti átt við málefnaleg rök að styðj-
ast að gera nokkurn greinarmun á greiðslum til
einstaklinga úr opinberum sjóðum eftir því hvort
viðkomandi er í sambúð eða ekki. Verði fjárhæð
sérreglunnar því eðlilega nokkru lægri en fjárhæð
óskertrar tekjutryggingar einhleypings.
Töldu nauðsynlegt að hækka
lágmarkstöluna umtalsvert
Jón Steinar bendir á að í þessari sérreglu felist
samt sem áður umtalsverð hækkun á því lágmarki
sem um var fjallað í forsendum hæstaréttardóms-
ins.
„Það er engin akademísk nákvæmni í tölunni.
Hún er ekki byggð á neinum útreikningum heldur
er hún bara byggð á þessu mati. Við töldum rétt,
vegna þess að við vorum að reyna að leggja mæli-
kvarða á það sem í dómnum felst, að hún væri
lægri en tekjutrygging einstaklings, en þyrfti
engu að síður að hækka umtalsvert. Þessi tala sem
við fundum uppfyllti þessi skilyrði,“ sagði hann.
Jón Steinar Gunnlaugsson um viðmiðunarfjárhæð örorkubóta
Upphæðin ekki byggð á
útreikningum heldur mati
JAFNRÉTTISSTOFA, sem opnuð
var á Akureyri í september í fyrra,
hefur lagt fram verkefnaáætlun fyrir
þetta ár auk þess sem gengið hefur
verið frá hugmyndum að verkefnum
til næstu fimm ára. Nú starfa fjórir
starfsmenn í fullu starfi hjá Jafnrétt-
isstofu auk þess sem einn sinnir ýms-
um sérverkefnum, en næsta skref er,
að sögn Valgerðar Bjarnadóttur
framkvæmdastjóra, að fá lögfræðing
til starfa þar.
Megináherslur Jafnréttisstofu
verða að sögn Valgerðar lagðar á
samþættingu, rannsóknir, sérað-
gerðir , miðlun þekkingar, ráðgjöf og
fræðslu. Hún sagði aukna áherslu
lagða á samþættingu, sem byggist á
því að jafnréttissjónarmið og kynja-
sjónarmið eru fléttuð inn í stefnu-
mörkun og starfsemi fyrirtækja,
stofnana og ríkja, t.d. við gerð fjár-
hagsáætlana og árangurssamninga.
Þá má nefna að staðið verður fyrir
rannsóknum sem nauðsynlegar
þykja til að bregða ljósi á orsakir
kynjabundins misréttis auk þess sem
safnað verður saman þekkingu um
kynjabundna mismunun og um stöðu
og samskipti kynjanna og miðla
þeirri þekkingu inn í samfélagsum-
ræðuna.
Áhersla verður lögð á að nálgast
viðfangsefni út frá lagalegu, menn-
ingarlegu, félagslegu og sálfélags-
legu sjónarhorni. Einnig fjölskyldu-
mál, en Jafnréttisstofu getur haft
áhrif í átt til jafnréttis í fjölskyldum
m.a. með því að fylgja eftir nýjum
fæðingar- og foreldraorlofsdögum.
Hvað menntamál varðar getur stofan
haft áhrif til aukins jafnréttis með því
að standa að rannsóknum á því sviði
auk þess að vera ráðuneyti og skólum
til ráðgjafar sem og að taka þátt í
verkefnum. Þá verður lögð áhersla á
vinnumarkaðsmál en á þeim vett-
vangi er mikið verk að vinna og loks
má nefna að Jafnréttisstofa hyggst
vinna að því að jafna hlut kynjanna í
menningu, t.d. með rannsóknum á
tungumálinu og áhrifum þess á
sjálfsmynd og samskipti kynjanna.
Aðstoð og ráðgjöf til
ríkis og sveitarfélaga
Katrín Björg Ríkarðsdóttir og
Kristján Jósteinsson, sérfræðingar á
Jafnréttisstofu, gerðu grein fyrir
lögbundnum verkefnum Jafnréttis-
stofu en þar er af nógu að taka.
Áhersla verður í fyrstu lögð á jafn-
réttismál ríkisins en um þessar
mundir eru jafnréttisfulltrúar að
taka til starfa í ráðuneytum og þeir
þurfa stuðning, en m.a. verða á veg-
um stofunnar haldin námskeið fyrir
þá í næsta mánuði. Þá er mikil vinna í
kringum jafnréttismál sveitarfélaga
og mun hún heldur aukast í kjölfar
þess að nú ber öllum sveitarfélögum
að ráða til sín jafnréttisfulltrúa. Þá
mun stofan fljótlega senda öllum fyr-
irtækjum, sem hafa 25 starfsmenn
eða fleiri, bréf þar sem minnt er á
jafnréttislögin, m.a. fæðingarorlofs-
lögin. Stofan mun efna til námskeiða
í apríl um gerð jafnréttisáætlana,
samþættingu jafnréttishugsunar í
starfsmanna- og þjónustustefnu en
þau verða haldin í samvinnu við Sam-
tök atvinnulífsins og stéttarfélög.
Hvatning til að standa sig vel
Af öðrum verkefnum sem unnið
verður að má nefna kynningu og út-
gáfumál, eftirlit með jafnréttislög-
um, rannsóknir af ýmsu tagi, standa
fyrir kynningu og rannsóknum á
fæðingar- og foreldraorlofi, en m.a.
verður ráðstefna haldin um það efni á
Akureyri í mars. Þá verða launamál
til umfjöllunar, sem og kynbundið of-
beldi, jafnréttisfræðsla í skólum,
námskeið og fyrirlestrar eru á dag-
skrá og eins þarf að skoða forsjár-
mál.
Valgerður sagði að þó Jafnréttis-
stofa hefði ekki starfað ýkja lengi
hefði hún þó séð margvíslegan ár-
angur. Hún sagði að staðsetning stof-
unnar sem sætt hefði gagnrýni hefði í
för með sér að meiri kröfur væru
gerðar til hennar, en það væri starfs-
fólki hvatning til að standa sig vel.
Jafnréttisstofa hefur lagt fram verkefnaáætlun til fimm ára
Fjölmörg mikilvæg
verkefni framundan
Morgunblaðið/Kristján
Valgerður Bjarnadóttir framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu og Katrín Ríkarðsdóttir og Kristján Jósteinsson sem
starfa þar sem sérfræðingar.
FORELDRAR framhaldsskóla-
nema standa fyrir stofnfundi um
hagsmunasamtök foreldra fram-
haldsskólanema mánudaginn 15.
janúar kl. 20 að Grand hóteli við Sig-
tún í Reykjavík.
Á fimmtudagi í síðustu viku
fundaði hópur foreldra framhalds-
skólanema. Tilgangur fundarins,
sem haldinn var í skugga 8 vikna
verkfalls kennara, var fyrst og
fremst sá að gefa foreldrunum kost á
að bera saman bækur sínar og sam-
mælast um á hvern hátt foreldrar
framhaldsskólanema geti í lengd og
bráð stutt betur jafnt við nemendur
og skólastarf í framhaldsskólum,
segir í fréttatilkynningu frá starfs-
hópi um stofnun samtakanna.
Ólöf Garðarsdóttir frá starfshópi
um stofnun samtakanna setur fund-
inn á mánudag en frummælendur
verða Jónína H. Bjartmarz frá
landssamtökunum Heimili og skóli,
Lárus H. Bjarnason, rektor Mennta-
skólans við Hamrahlíð, Gísli Ragn-
arsson, aðstoðarskólameistari við
Fjölbrautaskólann í Garðabæ, og
Margrét Rún Einarsdóttir, nemandi
í Borgarholtsskóla. Umræður verða
að erindum loknum.
Stofnun sam-
taka foreldra
framhalds-
skólanema
DÓMSTÓLL í Edinborg í Skot-
landi dæmdi í fyrradag 63 ára
skoskan karlmann í átta ára fang-
elsi fyrir að reyna að smygla 4,5
kílóum af hassi til Íslands. Hálft
annað ár mun vera frá því að mað-
urinn var handtekinn þar sem
hann var að stíga um borð í far-
þegaskip sem var á leið hingað til
lands. Maðurinn hefur áður hlotið
tvo dóma fyrir fíkniefnasmygl.
Samkvæmt upplýsingum fíkni-
efnadeildar lögreglunnar í
Reykjavík er maðurinn ekki á
skrám hennar og handtakan var
ekki gerð í samstarfi við lögregl-
una hér á landi. Maðurinn var
handtekinn í ágúst í fyrra þegar
hann var að stíga um borð í far-
þegaskipið Albatros í Invergord-
on í Skotlandi, sem var á leið til Ís-
lands.
Reyndi að smygla
hassi til Íslands
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri
hefur verið dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavíkur í sex mánaða skilorðs-
bundið fangelsi og til greiðslu fimm
milljóna króna sektar fyrir brot gegn
lögum um virðisaukaskatt, lögum
um tekjuskatt og eignaskatt og á
bókhaldslögum. Alls námu vanskil
mannsins um þremur milljónum
króna. Haldi maðurinn almennt skil-
orð í tvö ár fellur refsingin niður.
Greiði maðurinn ekki sektina innan
fjögurra vikna verður hann hins veg-
ar að sæta þriggja mánaða fangelsi.
Þá var manninum gert að greiða all-
an sakarkostnað. Ragnheiður
Bragadóttir, settur héraðsdómari,
kvað upp dóminn.
Maðurinn játaði skýlaust þau brot
sem hann var ákærður fyrir. Brotin
áttu sér stað frá því í maí 1993 til árs-
loka 1996. Honum var gefið að sök að
hafa brotið gegn lögum um virðis-
aukaskatt með því að tilkynna ekki
til skattstjórans í Reykjavík um
sjálfstæðan atvinnurekstur sinn.
Maðurinn skaut undan virðisauka-
skatti sem hann innheimti á þessu
tímabili að fjárhæð 1.676.148 kr. Þá
var hann ákærður fyrir að hafa kom-
ið sér undan því að greiða tekjuskatt
og útsvar að upphæð 1.438.545 kr. af
tekjum sínum á árunum 1994–1996.
Loks var hann ákærður fyrir bók-
haldsbrot með því að hafa eigi fært
bókhald vegna sjálfstæðs atvinnu-
rekstrar síns á árunum frá og með
1993 til og með 1996 og fyrir að hafa
á sama árabili vanrækt að varðveita
bókhaldsgögn. Hann bjó jafnframt
til gögn sem ekki áttu sér stoð í við-
skiptum við aðra aðila og lét undir
höfuð leggjast að semja ársreikning
vegna rekstrarins.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
segir að samkvæmt sakavottorði hafi
maðurinn ekki sætt refsingu frá
árinu 1986. Fram að þeim tíma átti
hann nokkuð samfelldan afbrotaferil
allt frá árinu 1971. Þar var aðallega
um að ræða brot á áfengislögum,
umferðarlögum og lögum um ávana-
og fíkniefni. Sakarferill ákærða hafði
hins vegar ekki áhrif á ákvörðun
refsingar í þessu máli.
Fimm millj-
óna sekt
fyrir van-
skil á virðis-
aukaskatti
♦ ♦ ♦