Morgunblaðið - 15.03.2001, Síða 30
ERLENT
30 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
YOWERI Museveni, forseti Úg-
anda, hélt velli í forsetakosningunum
sem fram fóru í landinu á mánudag.
Úrslitin voru tilkynnt í gær og sigr-
aði Museveni með yfirburðum,
69,3% atkvæða. Helsti keppinautur
hans, Kizza Besigye, hlaut 27,8%
fylgi, en hann lýsti því yfir áður en
úrslitin voru gerð kunn að hann
myndi ekki viðurkenna þau.
Besigye, sem var áður samherji
Musevenis, heldur því fram að kosn-
ingasvikum hafi verið beitt og sendi
á þriðjudag bréf til yfirkjörstjórnar,
þar sem hann krefst þess að kosn-
ingarnar verði endurteknar. Besigye
fullyrðir að fölsuðum kjörseðlum
hafi verið komið fyrir í kjörkössum,
ógnunum hafi verið beitt og að eft-
irlitsmenn annarra frambjóðenda en
forsetans hafi verið reknir á brott frá
kjörstöðum. Að minnsta kosti tveir
af hinum frambjóðendunum fjórum
hafa tekið undir ásakanir Besigyes,
en þeir fengu hvor um sig um 1% at-
kvæða í kosningunum.
Besigye hefur gefið til kynna að
hann muni vefengja úrslitin fyrir
dómstólum, en formaður yfirkjör-
stjórnar, Aziz Kasujja, þvertekur
fyrir að brögð hafi verið í tafli. Upp-
lýsingamálaráðherrann Basoga
Nsadhu, sem stjórnaði kosningabar-
áttu Musevenis, vísaði því einnig á
bug að svikum hefði verið beitt.
„Þessar ásakanir eiga ekki við rök að
styðjast, því stjórnarandstaðan veit
að það er erfitt að falsa kosningaúr-
slit í þessu landi,“ sagði Nsadhu í
samtali við AFP-fréttastofuna í gær.
Erlendir fréttamenn höfðu þó eftir
íbúum þriggja þorpa í suðvestur-
hluta landsins að bæjaryfirvöld
hefðu merkt við nafn Musevenis á
kjörseðlum allra þorpsbúanna og að
þeim hefði verið meinað að kjósa.
Sprengja sprakk á leigubílastöð í
Kampala í gærkvöld, sem lögregla
sagði hafa verið heimatilbúna. Að
minnsta kosti ein kona lét lífið og sex
særðust, þar af fimm alvarlega.
Óljóst var hvort sprengitilræði þetta
tengdist kosningaúrslitunum.
Museveni vel liðinn
á Vesturlöndum
Yoweri Museveni, sem er 56 ára
gamall, komst til valda árið 1986, eft-
ir fimm ára borgarastríð. Stjórnar-
skrá tók gildi í Úganda árið 1995 og
ári síðar var Museveni kosinn forseti
í frjálsum kosningum. Hann hefur
verið vel liðinn á Vesturlöndum fyrir
að hafa komið á lýðræði í landinu og
aðhyllast viðskiptafrelsi.
Kizza Besigye, sem er 44 ára gam-
all, er fyrrverandi herforingi og
einkalæknir Musevenis, en þeir voru
samherjar í borgarastríðinu á 9. ára-
tugnum. Helsta stefnumál Besigyes í
kosningunum var baráttan gegn
spillingu í stjórnkerfinu.
Yoweri Museveni hélt velli í forsetakosningunum í Úganda
Óstaðfestar ásakanir á
lofti um kosningasvik
Kampala. AFP, AP.
AP
Stuðningsmenn Yoweris Museveni Úgandaforseta fagna á götum
Kampala eftir að tilkynnt var um kosningasigur hans í gær.
LÍKUR benda til að sósíalistinn
Bertrand Delanoë verði næsti borg-
arstjóri Parísar, miðað við niður-
stöðu fyrri umferðar sveitarstjórn-
arkosninganna í Frakklandi sl.
sunnudag. Hann hefur ekki verið
mjög áberandi í frönskum stjórn-
málum, þótt pólitískur ferill hans sé
langur, og þrátt fyrir að hann sé
kunnasti samkynhneigði stjórnmála-
maðurinn í Frakklandi hefur hann
ekki haft hátt um kynhneigð sína.
Delanoë fæddist í Túnis og er
fimmtugur að aldri. Hann lagði
stund á lögfræði og hagfræði í há-
skólanum í Toulouse og stofnaði að
námi loknu almannatengslafyrirtæki
í París. Hann var kosinn í borgar-
stjórn Parísar árið 1977, þegar henni
var komið á fót að nýju, og hefur átt
sæti þar síðan. Frami Delanoës í
stjórnmálum hófst fyrir alvöru um
1980, þegar Francois Mitterrand
varð fyrsti forseti fimmta lýðveldis-
ins úr röðum sósíalista. Árið 1981 var
hann kjörinn á franska þingið og
gerður að talsmanni Sósíalista-
flokksins og tveimur árum síðar tók
hann sæti í framkvæmdastjórn
flokksins.
Um miðjan 9. áratuginn fór þó að
halla undan fæti fyrir Delanoë á
stjórnmálasviðinu, en vegna kjör-
dæmabreytinga neyddist hann til að
bjóða sig fram til þingsins fyrir kjör-
dæmi utan Parísar, Avignon, og náði
ekki kjöri. Hann sneri sér þá aftur að
almannatengslum og ráðgjöf.
En Delanoë var þó ekki reiðubú-
inn að gefa stjórnmálaframann upp á
bátinn. Hann varð oddviti stjórnar-
andstöðunnar í borgarstjórn Parísar
árið 1993 og var kjörinn til setu í öld-
ungadeild þingsins fyrir París árið
1995. Sama ár gaf hann fyrst kost á
sér sem borgarstjóri, en hafði ekki
erindi sem erfiði.
Styrkurinn felst í því
að vera óþekktur
Bertrand Delanoë var reyndar
ekki fyrsti kostur Sósíalistaflokksins
í slaginn um borgarstjóraembættið.
Upphaflega var ætlunin að Domini-
que Strauss-Kahn, fyrrerandi fjár-
málaráðherra, leiddi sósíalista í
borginni, en hann datt út úr mynd-
inni þegar rannsókn var hafin á fjár-
reiðum hans. Annar kosturinn var
Jack Lang, eða þangað til Lionel
Jospin skipaði hann í embætti
menntamálaráðherra.
Báðir þessir menn eru orðlagðir
fyrir persónutöfra, en Delanoë þykir
ekki sérlega litríkur stjórnmálamað-
ur. Hann þykir hins vegar trúverð-
ugur og traustlegur og hefur aldrei
verið bendlaður við hneykslismál,
sem hafa ekki verið fátíð í frönskum
stjórnmálum. „Styrkur Delanoës
felst í því að hann er óþekktur,“ er
haft eftir Jospin, en þeir hafa verið
vinir og samherjar um langt árabil.
Þótt Delanoë hafi aldrei haft hátt
um kynhneigð sína er hann þó ef til
vill þekktastur fyrir að vera samkyn-
hneigður stjórnmálamaður. „Ég
vildi helst að fólki væri alveg sama,“
sagði Delanoë þegar hann kom op-
inberlega „út úr skápnum“ í sjón-
varpsþætti árið 1998.
Hægrimenn semja
Frambjóðendur hægrimanna í
borgarstjórnarkosningunum, Phil-
lippe Séguin, frá RPR-flokki Jacq-
ues Chiracs Frakklandsforseta, og
borgarstjórinn Jean Tiberi, sem var
meðlimur í RPR en býður nú fram á
eigin vegum, náðu á þriðjudagskvöld
samkomulagi um bandalag í seinni
umferð kosninganna, sem fram fer
nk. sunnudag. Tiberi dró til baka
lista sína í fjórum hverfum borgar-
innar, en Séguin hætti við framboð í
fimm hverfum.
Í fyrri umferð kosninganna hlaut
Séguin 25% atkvæða en Tiberi 13%.
Frambjóðandi græningja, Yves
Contassot, hlaut 12,5% atkvæða og
hét strax stuðningi við Delanoë, sem
naut stuðnings 32% kjósenda.
Útlit fyrir að Bertrand Delanoë verði borgarstjóri í París
Lítt þekktur en trúverðugur
París. AFP, Reuters.
Reuters
Bertrand Delanoë
TALIBANAR, sem fara með völd í
Afganistan, lokuðu skrifstofu
breska ríkisútvarpsins, BBC, í höf-
uðborginni Kabúl í gær. Fréttarit-
aranum, Kate Clark, var og skipað
að yfirgefa landið innan sólar-
hrings. Talibanar saka BBC um að
hafa verið hlutdrægt í fréttaflutn-
ingi af eyðileggingu búddastyttn-
anna í Afganistan.
Í samtali við AP-fréttastofuna
sagði Tayyag Agha, erindreki Ta-
liban-stjórnarinnar, að BBC hefði
látið niðrandi ummæli falla um Ta-
libana og fréttaflutningur af eyði-
leggingunni hefði verið misvísandi
og fjandsamlegur. Í yfirlýsingu frá
upplýsingaráðuneyti Talibana er
BBC sakað um fordóma gagnvart
Talibönum.
Í yfirlýsingu BBC er ákvörðun
Talibana hörmuð og farið fram á að
yfirvöld endurskoði ákvörðun sína.
BBC hyggist halda áfram frétta-
flutningi af atburðum í Afganistan,
en unnið verði frá Pakistan og öðr-
um löndum. Talibanar fyrirskipuðu
eyðileggingu Búddha-líkneskjanna
í síðasta mánuði en þeir telja þau
vera skurðgoð sem engan stað eigi í
íslömsku þjóðfélagi.
Hér stendur Mullah Saeed Jan,
vörður Talibana, við rústir þar sem
áður var að finna forn Búdda-
líkneski úr leir.
BBC vísað
frá Afgan-
istan
Islambad. AP.
AP
ARNE Rolighed, heilbrigðis-
málaráðherra Danmerkur,
leggur áherslu á að ný lög um
skyldu ferðamanna til að veita
upplýsingar um lyf verði tilbúin
er Danir fá aðild að Schengen-
samstarfinu 25. mars, að sögn
Politiken. Samtök eldri borg-
ara í Danmörku hafa lýst
áhyggjum vegna þess að regl-
urnar séu svo flóknar að gamalt
fólk muni ekki skilja þær og því
hætta að ferðast til útlanda.
Kveðið sé meðal annars á um
skylduna til að segja frá gigt-
arlyfjum og hóstasaft í Scheng-
en-reglunum en í hóstasaft er
alkóhól.
Rolighed segir að gengið
verði út frá því að allir fái
ókeypis „lyfja-vegabréf“ og
haft verði samráð í þessum efn-
um við apótekin sem hafi full-
komnar upplýsingar um lyfja-
notkunina í gagnabönkum
sínum. Hann segir að ef apó-
tekin þurfi að fá umtalsverða
greiðslu fyrir þessa þjónustu
muni ríkisvaldið annast hana.
Gildandi reglur SÞ
strangari
Að sögn blaðsins eru reglur
Schengen um upplýsingaskyld-
una vegna lyfja er ferðamenn
hafa á sér í reynd vægari en
gildandi reglur Sameinuðu
þjóðanna um fíkniefni en hinum
síðarnefndu hafi aldrei verið
fylgt eftir.
Poul Nyrup Rasmussen for-
sætisráðherra segir að tryggt
sé að ekki verði um háar
greiðslur fyrir lyfja-vegabréfin
að ræða eða ótæpilegt skrif-
ræði muni fylgja þeim. En hann
furðar sig á því að menn skyldu
ekki hafa komið auga á vand-
ann fyrr. Reglurnar voru
kynntar 1997.
Schengen-aðild
Danmerkur
Skrifræði
hindri
ekki
ferðalög