Morgunblaðið - 15.03.2001, Side 31
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 31
Yfirhafnir
Útsala
50% afsláttur
Opið laugardag
frá kl. 10—16
Mörkinni 6,
sími 588 5518
Síðustu
dagar
BANDARÍSKUR herdómstóll
sýknaði á þriðjudag hermann af
ákæru um manndráp af gáleysi og
vanrækslu vegna dauða albansks
drengs í Kosovo í fyrrasumar. Her-
maðurinn er bandarískur og var 19
ára er atburðurinn varð. Hann var
friðargæsluliði þegar sex ára dreng-
ur féll fyrir kúlu sem hljóp úr byssu
hermannsins. Saksóknari í málinu
krafðist sakfellingar á þeim forsend-
um að ekki hefði verið um slys að
ræða þar eð hermaðurinn hefði lagt
frá sér vopn sitt og leyft börnum að
snerta það en síðan tekið í gikkinn til
að athuga hvort byssan væri læst.
Hún reyndist ekki vera það og þrjú
skot hlupu úr henni, endurköstuðust
af bíl og lentu í drengnum sem lést
síðar af sárum sínum.
Hermaður
sýknaður
PÓLSKUR dómstóll hefur kveðið
upp átta ára skilorðsbundinn fang-
elsisdóm yfir átta þýskum bænd-
um fyrir að kaupa bújarðir í Pól-
landi og brjóta lög sem banna
jarðakaup útlendinga.
Bændurnir voru sakaðir um að
hafa með aðstoð pólskra sam-
verkamanna stofnað fyrirtæki sem
hafi síðan keypt jarðirnar. Sam-
kvæmt pólskum lögum mega út-
lendingar ekki kaupa bújarðir í
Póllandi og svipuð lög hafa verið
sett í Tékklandi og Ungverjalandi.
Margir Þjóðverjar voru reknir frá
þessum löndum eftir síðari heims-
styrjöldina og margir óttast að
efnaðir Þjóðverjar hyggist nú nota
auð sinn til að snúa þangað aftur.
Hræðsluáróður gegn
jarðakaupum Þjóðverja
Dómsmálið hefur verið vatn á
myllu stjórnmálamanna eins og
Andrzejs Leppers, leiðtoga
pólskra bænda, sem hefur líkt
jarðakaupum Þjóðverja í Póllandi
við innrás nasista 1939. Þýsku
bændurnir keyptu bújarðir í vest-
urhéruðum Póllands sem tilheyrðu
Þýskalandi í margar aldir til árs-
ins 1945 þegar landamærunum var
breytt.
Pólskar bújarðir hafa verið eft-
irsóttar meðal bænda í Vestur-
Evrópu þar sem þær eru ódýrar.
Þjóðverjar dæmdir fyr-
ir jarðakaup í Póllandi
Varsjá. The Daily Telegraph.
Bregðast hart
við húðlýsingu
ÖRYGGISSVEITIR í Miðafríkulýð-
veldinu hafa ráðist gegn því sem yf-
irvöld segja vera útbreidda notkun
efna sem gera húð fólks ljósari. Hef-
ur hald verið lagt á vörur og versl-
unum lokað. Um miðjan síðasta mán-
uð gaf forseti lýðveldisins, Ange-
Felix Pathasse, út tilskipun þess efn-
is að stöðva skyldi eftirlitslausa og
óhóflega notkun húðlýsandi efna.
Húðkremin virðast virka með því að
hefta framleiðslu litarefna, og eru oft
í þeim sterar og hýdrókínón, sem er
efni sem notað er í gúmmíiðnaði.
Skaðleg áhrif, einkum af tíðri notkun
og miklum styrkleika, geta verið
skemmdir á húðinni, hún getur
dökknað og aukin hætta er á húð-
krabba. Vörurnar sem seldar eru í
Miðafríkulýðveldinu eru oft eftir-
gerðir sem fluttar eru inn frá ólög-
legum framleiðslustöðvum í Vestur-
Afríku og Indlandi, að sögn lækna í
lýðveldinu. Þrátt fyrir þær hættur
sem fylgja notkun þessara lyfja eru
þau vinsæl jafnt hjá konum sem
körlum.
♦ ♦ ♦