Morgunblaðið - 15.03.2001, Síða 53
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 53
Borgartúni 28, 562 2901
www.ef.is
Dönsku Varde viðarofnarnir hafa
hlotið sérstaka viðurkenningu í
Danmörku, Svíþjóð og Þýska-
landi fyrir fullkomna brennslu og
lágmarksreykmengun. Smíðaðir
úr þykku stáli, tvöfalt byrði og
steypt hurð með barnaöryggi.
Gæðavara á góðu verði,
34 gerðir fáanlegar.
KAMÍNUR -
VIÐAROFNAR
SLEÐADAGAR
á fatnaði og fylgihlutum
15-30%
afsláttur
ar í Vatnsmýrinni í nálægð við Há-
skóla Íslands. Ekkert er tekið undir
þetta, en fréttir berast af viðræðum
um fyrirhugaða byggingu 200 þús.
fermetra húsnæðis fyrir slíka starfs-
semi við Urriðakot hjá Heiðmörk.
Sá staður er vart í vegasambandi
ennþá.
Þrengsli þrýsta blokkarbyggð
að ströndum Elliðavatns
Svona heldur þróunin látlaust
áfram. Flugvöllurinn er fastur í
mýrinni. Skerjafjörðurinn er óbrú-
aður. Geldinganes, Viðey, Vatns-
mýrin, Bessastaðanes, Álftanes og
Gálgahraun eru auð svæði, en
byggðin þenst endalaust út og upp
til fjalla, norður og suður með
ómældum kostnaði.
Miðað við þessa ógnarþróun verð-
ur Reykjavíkurflugvöllur okkur ansi
dýrkeyptur.
„Flugvöllurinn verður þarna til
2016 hvort sem okkur líkar betur
eða verr“ segja stjórnmálamennirn-
ir. Hvar er lýðræðið? Eru það ekki
kjósendur sem ráða þessu í okkar
lýðræðislandi? Eru það ekki kjós-
endur sem geta skipt um fulltrúa
sína og látið taka samninga upp aft-
ur til endurskoðunar og breytinga?
Borgarbúar hafa risið upp gegn
þessu ofríki stjórnmálamanna. Þess
vegna er þessi mikla umræða um
skipulagsmál og flugvöllinn þar
með. Kosningin 17. mars nk. bindur
engan nema í mesta lagi meirihluta
borgarstjórnarinnar í Reykjavík
fram að næstu sveitarstjórnarkosn-
ingum 2002. Hún er því aðeins skoð-
anakönnun um hug borgarbúa eins
og hann verður þann dag.
Gallinn við báða kostina, sem kos-
ið er á milli, er sá að þeir takmarka
um of umræður um skipulagsmál til
ársins 2016 og annar kosturinn leng-
ur. Kosningin er staðreynd, hvaða
skoðun sem menn hafa á henni sem
slíkri. Ég mæli þó með því að kjósa
flugvöllinn burt úr Vatnsmýrinni
vegna þess að það skapar um-
ræðunni um skipulagsmál höfuð-
borgarsvæðisins meira svigrúm.
Umræða um skipulagsmál er útilok-
uð án þess að taka afstöðu til flug-
vallarsvæðisins. Samþykkt hinnar
tillögunnar myndi þrengja allar um-
ræður um skipulagsmál. Þau eru
þýðingarmeri málaflokkur en svo að
hægt sé að taka hann af dagskrá
fram yfir árið 2016. Umræður um
skipulagsmál verða ekki bældar nið-
ur úr þessu en munu fara beint inn í
næstu sveitarstjórnar- og alþingis-
kosningar um langa framtíð.
Höfundur er formaður Samtaka um
betri byggð á höfuðborgarsvæðinu.
Svæðið þar sem Reykjavíkurflugvöllur er nú. Líkan sem Borgarskipulag hefur gert af hugsanlegri byggð eftir
að flugvöllurinn er farinn.