Morgunblaðið - 15.03.2001, Síða 68
DAGBÓK
68 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Hegranes SK, Akureyr-
in EA, Sveabulk og
Mánafoss koma í dag.
Dettifoss og Helgafell
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: J.
Bergvoll, Tönnes, Lag-
arfoss og Fuglberg fóru
í gær. Hamrasvanur
kom í gær. Elina kemur
í dag.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Félag frímerkjasafnara.
Opið hús laugardaga kl.
13.30–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–12
bókband og öskjugerð,
kl. 9–16.30 opin handa-
vinnustofa, útsaumur og
bútasaumur, kl. 9.45
helgistund að morgni, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 opin smíða-
stofa, kl. 9 hár- og fót-
snyrtistofur opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 14–17 gler-
skurður.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Kóræfingar hjá Vorboð-
um, kór eldri borgara í
Mos., Hlaðhömrum á
fimmtud. kl. 17–19.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586 8014 kl. 13–16.
Tímapöntun í fót-, hand-
og andlitssnyrtingu,
hárgreiðslu og fótanudd,
s. 566 8060 kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslu-
stofan og handa-
vinnustofan opnar, kl.
9.30 danskennsla, gler
og postulínsmálun, kl. 13
opin handavinnustofan
og klippimyndir, kl.
14.30 söngstund.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 9 fótaaðgerð, kl.
10 hársnyrting, kl. 11.10
leikfimi, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 15.
bingó.
Félagsst. Furugerði 1.
Kl. 9 aðstoð við böðun,
smíðar og útskurður,
glerskurðarnámskeið og
leirmunagerð, kl. 9.45
verslunarferð í Aust-
urver, kl. 13.30 boccia.
Messa á morgun, föstu-
dag, kl. 14, prestur sr.
Ólafur Jóhannsson.
Kaffiveitingar eftir
messu.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfingar í Bæj-
arútgerð kl. 10–11.30.
Aðalfundur verður í dag
kl. 14, venjuleg aðal-
fundarstörf og kaffiveit-
ingar. „Grænlenskir
dagar“. Fjörukráin býð-
ur félagsmönnum í
Félagi eldri borgara í
Hafnarfirði á Græn-
lenska daga í Fjöru-
kránni, sunnudaginn 18.
mars kl. 15.30. Græn-
landskynning og kaffi-
veitingar. Skrásetning í
Hraunseli og aðgöngu-
miðar afhentir þar.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðjudög-
um kl. 13.30. Fótaað-
gerðir mánudaga og
fimmtudaga. Ath. nýtt
símanúmer, 565 6775.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeginu.
Brids kl. 13. Leikhóp-
urinn Snúður og Snælda
sýnir „Gamlar perlur“
sem eru þættir valdir úr
fimm gömlum, þekktum
verkum. Sýningar eru á
miðvikudögum kl. 14 og
sunnudögum kl. 17 í Ás-
garði, Glæsibæ. Ath.
allra síðustu sýningar.
Miðapantanir í símum
588-2111, 568-9082 og
551-2203. Baldvin
Tryggvason verður til
viðtals um fjármál og
leiðbeiningar um þau
mál á skrifstofu FEB
fimmtudaginn 22. mars
kl. 11–12. Panta þarf
tíma. Dagsferð verður
farin í Grindavík–Bláa
lónið–Reykjanes 2. apríl.
Brottför kl. 10 frá Ás-
garði, Glæsibæ. Skrán-
ing hafin á skrifstofu
FEB. Breyting hefur
orðið á viðtalstíma Silf-
urlínunnar; opið verður
á mánudögum og mið-
vikudögum kl. 10–12 f. h.
Uppl. á skrifstofu FEB
kl. 10–16, s. 588-2111.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, gler-
skurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla og böðun, kl. 10
leikfimi, kl. 13.30 bóka-
bíll, kl. 15.15 dans.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund og leikfimiæfingar
falla niður í dag. Kl.
10.30 helgistund, umsjón
Lilja G. Hallgrímsdóttir
djákni, frá hádegi spila-
salur og vinnustofur op-
in, m.a. glermálun, um-
sjón Óla Stína. Aðstoð
frá skattstofunni verður
veitt miðvikud. 21. mars,
skráning hafin. Mynd-
listarsýning Ólafs Jak-
obs Helgasonar stendur
yfir.
Veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Allar upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 9–15, gler og postulín
kl. 9.30, leikfimi kl. 9.05,
kl. 9.50 og kl. 10.45, kl.
13 taumálun og klippi-
myndir.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 jóga og
ganga, kl. 13 brids, kl. 14
boccia, kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur,
perlusaumur og korta-
gerð, kl. 9 fótaaðgerð, kl.
9.45 boccia, kl. 14 félags-
vist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
opin handavinnustofa,
búta- og brúðusaumur,
böðun, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 10
boccia, kl. 13 handa-
vinna, kl. 14 félagsvist.
Norðurbrún 1. Kl. 9
handavinnustofurnar
opnar, útskurður, kl. 10
leirmunanámskeið. Að-
stoð við skattframtal
verður miðvikudaginn
21. mars. Þeir sem voru
búnir að panta tíma
halda tímunum; nánari
uppl. í s. 568-6960.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–12 aðstoð við
böðun, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13–14 leikfimi,
kl. 13–16 kóræfing.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, fatasaumur
og morgunstund, kl. 10
boccia og fótaaðgerðir,
kl. 13 handmennt, körfu-
gerð og frjálst spil.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK í Gullsmára
býður alla eldri borgara
velkomna að brids-
borðum í félagsheimilinu
að Gullsmára 13 á mánu-
dögum og fimmtudög-
um. Mæting og skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
ÍAK. Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11 í Digra-
neskirkju.
Sjálfboðamiðstöð Rauða
krossins, Hverfisgötu
105, s. 551 8800.
Í dag kl. 14–17: Prjónað
og saumað fyrir Rauða
krossinn. Verkefni: Hlý-
ir skór, treflar og barna-
teppi. Allir velkomnir.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60. Biblíulestur í dag
kl. 17 hefur Benedikt
Arnkelsson.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12. Í
kvöld kl. 19.30 tafl.
GA-fundir spilafíkla eru
kl. 18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtud. í fræðsludeild
SÁÁ, Síðumúla 3–5, og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugard. kl. 10.30.
Húnvetningafélagið,
félagsvist í Húnabúð,
Skeifunni 11, í kvöld kl.
20. Annað kvöld í fjög-
urra kvölda einstakl-
ingskeppni. Kaffiveit-
ingar. Allir velkomnir.
Lífeyrisþegadeild SFR.
Skemmtifundur deild-
arinnar verður laug-
ardaginn 17. mars kl. 14
í félagsmiðstöðinni,
Grettisgötu 89, 4. hæð.
Þátttaka tilkynnist á
skrifstofu SFR, s.
562 9644.
Í dag er fimmtudagur 15. mars,
74. dagur ársins 2001. Orð
dagsins: Þá hugsaði ég: Viska er
betri en afl, en viska fátæks manns
er fyrirlitin, og orðum hans er
eigi gaumur gefinn.
(Préd. 9, 16.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 mjög veikur, 8 með-
vindur, 9 hörkufrosts, 10
aðgæti, 11 munnbiti, 13
rás, 15 nagdýrs, 18 vinn-
ingur, 21 tryllt, 22 sori,
23 æviskeiðið, 24 blys.
LÓÐRÉTT:
2 viðdvöl, 3 þolna, 4 votir,
5 snúin, 6 ljómi, 7 duft, 12
mánuður, 14 vafi, 15
stæk, 16 syllu, 17 stillt, 18
hvell, 19 borguðu, 20
streymdi.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fölur, 4 skörp, 7 ræfil, 8 aular, 9 arð, 11 aurs, 13
egna, 14 ótukt, 15 hnýt, 17 alda, 20 ata, 22 afinn, 23 rúm-
ar, 24 nagga, 25 auður.
Lóðrétt: 1 förla, 2 lofar, 3 rola, 4 spað, 5 öflug, 6 púrra,
10 raust, 12 sót, 13 eta,
15 hjarn, 16 ýring, 18 lamað, 19 akrar, 20 ansa, 21 arða.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
VÍKVERJI laugardaginn 3.
mars sl. segist „frekar ergi-
legur yfir ástandi ávaxta- og
grænmetisborða stórmark-
aða“.
Ég tek heilshugar undir
þessi orð og lýsi hér með
eftir verslun í Reykjavík,
sem setur metnað sinn í að
selja ferskt grænmeti og
ávexti. Ég er orðin verulega
þreytt á því að þurfa að
velja úr hálfskemmdu
grænmeti og ávöxtum.
Ég tel ekki eftir mér að
fara í fiskbúð, til þess að
vera viss um að fá ferskan
fisk og til kjötkaupmannsins
til að kaupa kjöt, en þessar
sérverslanir eru báðar í
Skipholtinu, svo að segja
hlið við hlið og eru með síð-
ustu „kaupmönnunum á
horninu“, sem næstum er
búið að útrýma og við neyt-
endur sitjum uppi með stór-
verslanir, sem leggja aðal-
áherslu á að auglýsa lægstu
verðin.
Starfsmenn eru flestir
unglingar (með allri virð-
ingu fyrir unglingum), þjón-
usta er í lágmarki og við
verðum að gæta vandlega
að því hvort varan er
skemmd, eða e.t.v. komin
fram yfir síðasta söludag.
Svo á að fara að opna
fleiri stórverslanir og
„Kringlur“! Hvar á að fá
starfsfólk í allar þessar
verslanir og hverjir eiga að
versla í þeim?
Erla.
Þakklæti
Í OKKAR huga er svo mikið
þakklæti til svo margra,
sem hafa hjálpað okkur.
Fyrst læknanna og hjúkr-
unarfólks á Fossvogs-
sjúkrahúsinu deild 7-6-3.
Elskuleg hjálp og umhyggja
allan sólarhringinn.
Á langri ævi okkar höfum
við kynnst mörgum, svo
þegar veikindi kollvarpa
daglegum störfum, finnum
við vinina.
Strax og batinn kom, var
haldið til Heilsuhælisins í
Hveragerði. Þar var dvalið í
fimm vikur. Allt var gert til
að bæta heilsuna, líkamlega
og andlega. Við stöndum í
þakkarskuld til æviloka við
ykkur öll.
Gréta og Sveinn
Jakobsson.
Þakkir fyrir
fallegt ljóð
SIGRÍÐUR hafði samband
við Velvakanda og vildi
þakka fyrir fallegt ljóð, sem
birtist í Lesbók Morgun-
blaðsins 3. mars sl. og heitir
Bón eftir Björgu Elínu
Finnsdóttur.
Tapað/fundið
Blómin mín
stór og smá
ÁSTA hafði samband við
Velvakanda og sagðist hún
þurfa að losa sig við 25
stofublóm, bæði lítil og stór,
vegna flutninga. Upplýsing-
ar í síma 553-8237.
Hálsmen í óskilum
HJARTALAGA gullháls-
men fannst á bílastæðinu
við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti, fimmtudaginn 8.
mars sl. Upplýsingar í síma
862-3499.
Kúrekahattur tapaðist
NÝR svartur kúrekahattur
tapaðist aðfaranótt laugar-
dagsins 10. mars sl. í leigu-
bíl frá miðbæ Reykjavíkur.
Fundarlaun. Skilvís finn-
andi er vinsamlegast beðinn
að hafa samband í síma 698-
0414.
Þrjár húfur
í óskilum
ÞRJÁR húfur fundust á
horni Laufásvegar og
Bragagötu fyrir stuttu. Ein
þeirra er handprjónuð.
Upplýsingar í síma 552-
0135.
Myndavél fannst
við Ingólfsstræti
MYNDAVÉL fannst í porti
við Ingólfsstræti fyrir um
það bil hálfum mánuði. Upp-
lýsingar í síma 699-2700.
Hlaupahjól í óskilum
HLAUPAHJÓL er í óskil-
um í vesturbænum í
Reykjavík. Hlaupahjólið
fannst við KR-völlinn.
Upplýsingar í síma 552-
4038 og 868-3394.
Dýrahald
Fress vantar
heimili
ÁTTA mánaða fress, mjög
loðinn, vantar nýtt heimili.
Upplýsingar í síma 565-
8108.
Tómas er týndur
TÓMAS er rauðbröndóttur
u.þ.b. tveggja ára fress, með
hvítt á hálsi og niður á
bringu og hvítt á loppum.
Hann hvarf frá Bugðutanga
í Mosfellsbæ, sunnudaginn
11. mars sl. Tómas er eyrna-
merktur. Fólk í nágrenninu
er beðið að athuga í
geymslur og bílskúra. Upp-
lýsingar í síma 566-7855 eða
691-9992.
Lísa er týnd
LÍSA er 6 mán., brún og
hvít Springer spaniel-tík,
með rauða ómerkta hálsól.
Hún hvarf frá Sporða-
grunni, þriðjud. 13. mars sl.
Upplýsingar í síma 899-
2432, Garðar.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Kaupmaðurinn
á horninu og
stórverslanir
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI borðaði fyrir stuttu áveitingahúsinu Ruby Tuesday,
en fyrir þá sem ekki vita má geta
þess að það er í Skipholti í Reykja-
vík, en ekki erlendis eins og ætla
mætti af nafninu. Þegar Víkverji
borgaði fyrir matinn fékk kann kvitt-
un, en þar stóð efst á blaði „Takk fyr-
ir komuna“. Síðan kom fram á
blaðinu að sá sem sat í sæti 2 (eða
„seat 2“ eins og stóð á blaðinu) hefði
keypt „Cheese Burger“ og borgað
fyrir það („total“) 395 kr. Sá sem sat
í sæti 3 („seat 3“) fékk sér „Catch of
the Day“, sem var fiskréttur með
hrísgjónum.
Víkverji skilur ekki hvers vegna
veitingahúsið hefur tekið þá stefnu
að hafa kvittunina að stærstum hluta
á ensku. Ekki getur ástæðan verið
að hún noti erlent tölvuforrit sem
ekki hafi unnist tími til að þýða því
að efst á seðlinum stendur eins og
áður segir „Takk fyrir komuna“.
Víkverja finnst þetta einfaldlega
kjánalegt.
Þess ber að geta að maturinn á
Ruby Tuesday smakkaðist ágætlega
og sá sem þjónaði til borðs stóð sig
vel. Þess má geta að sá sem þjónaði
til borðs („server“ eins og segir á
kvittuninni) talaði eingöngu ensku.
x x x
ÞESSA dagana er fólk að fylla útskattframtalið sitt, en því ber
að skila 26. mars ef fólk skilar því
skriflega, en þeir sem skila á Netinu
hafa frest til 2. apríl. Þetta er þriðja
árið sem framteljendum gefst færi á
að skila framtalinu á Netinu og hefur
Víkverji notfært sér það frá upphafi.
Að telja fram á Netinu er að mörgu
leyti einfaldara en að telja fram í
skriflegu formi. Aðeins þarf að fylla
út tölur í rétta reiti en ekki þarf að
leggja neitt saman því tölvan sér
sjálfvirkt um það. Mun minni líkur
eru því á að menn geri mistök, t.d. í
samlagningu eða að þeir gleymi að
fylla út í reitina.
Þessi rafrænu skattskil koma til
með að draga verulega úr pappírs-
notkun, en þeim sem skila á Netinu
gefst nú tækifæri til að hafna því að
fá pappírsgögn send heim frá skatt-
yfirvöldum að ári. Þeir sem eru
áhugasamir um umhverfismál ættu
því ótvírætt að skila skattaskýrsl-
unni á Netinu.
x x x
VÍKVERJI heyrði fyrir skömmuí útvarpi viðtal við Jónu Val-
gerði Kristjánsdóttur, sveitarstjóra í
Reykhólasveit. Fram kom í viðtalinu
að aðeins tæki um tvo og hálfan
klukkutíma að aka frá Reykjavík í
Reykhólasveit. Tilkoma Gilsfjarð-
arbrúar, Hvalfjarðarganga og Borg-
arfjarðarbrúar hefði stytt þessa
vegalengd mjög mikið.
Víkverji fór í tengslum við þetta að
rifja upp að ekki eru mörg ár síðan
það tók rúma tvo klukkutíma að aka
á milli Reykjavíkur og Borgarness
eða álíka langan tíma og það tekur
núna að aka alla leið í Reykhólasveit.
Þetta var áður en Borgarfjörðurinn
var brúaður og vegurinn upp í Borg-
arnes var að stórum hluta malarveg-
ur. Á þessu má sjá hversu stórstígar
framfarir hafa orðið í samgöngu-
málum á tiltölulega skömmum tíma.
Þetta vill oft gleymast þegar verið er
að fjalla um þau fjölmörgu verkefni
sem enn eru óunnin í vegamálum.