Morgunblaðið - 24.03.2001, Page 42
42 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
HÉR fara á eftir niður-stöður úr skýrsluRannsóknarnefndarflugslysa og tillögur í
öryggisátt sem gerðar eru til sam-
gönguráðherra og Flugmála-
stjórnar. Í niðurstöðukaflanum
eru líklegir orsakaþættir merktir
með stjörnu.
3.1 Flugvélin TF-GTI hafði gild
skrásetningar- og lofthæfiskírteini
til flutningaflugs útgefin af Flug-
málastjórn.
3.2 Flugmaðurinn hafði gild
réttindi atvinnuflugmanns með
áritun til blindflugs og tilskildar
áritanir til þess að fara þetta flug.
3.3 Flugrekandinn, L.Í.O. ehf./
Air Charter Iceland, hafði gilt
flugrekstrarleyfi til þjónustuflugs.
Flugvélin TF-GTI var skráð á
leyfi hans hinn 16. júní 2000.
3.4 Flugið var þjónustuflug í
sjónflugi á flugvélinni TF-GTI
með einn flugmann og fimm far-
þega frá Vestmannaeyjum til
Reykjavíkur.
3.5 Flugið í flugstjórnarsviði
Reykjavíkurflugvallar og aðflugið
að flugvellinum var sjónflug sam-
kvæmt sjónflugsreglum.
3.6 Flugvélinni TF-GTI hafði
verið breytt þannig, að nýir væng-
endar með eldsneytistönkum
höfðu verið settir á hana sam-
kvæmt STC SA4300WE. Við
þessa breytingu átti að setja nýjar
upplýsingar um skilyrta hámarks-
þyngd flugvélarinnar og breyttar
hraðatakmarkanir, bæði í flug-
handbókinni og á leiðbeiningar-
spjöld í stjórnklefa. Leiðbeining-
arspjöldin voru ekki samkvæmt
fyrirmælum framleiðanda væng-
endanna.
3.7 Lofthæfifyrirmæli AD 94-
12-8 sem voru gefin út af fram-
leiðsluríki flugvélarinnar og áttu
við eldsneytismæla og áfyllingu
eldsneytis hennar, höfðu sam-
kvæmt gögnum flugvélarinnar
verið framkvæmd aðeins að hluta
til. Lýsing á verklagi við áfyllingu
eldsneytisins var ekki að finna í
flughandbókinni og merkingar
voru ekki við áfyllingaropin.
3.8 Ekki var unnt að sjá í gögn-
um frá flugrekandanum með
hvaða hætti ákvæðum um hleðslu
eða jafnvægi hafi verið fullnægt í
daglegum rekstri flugvélarinnar
frá því að hún var tekin í notkun í
flutningaflugi.
3.9 Flugmaður TF-GTI virðist
ekki hafa gert hleðsluskrá og jafn-
vægisútreikninga fyrir flugtak frá
Vestmannaeyjaflugvelli. Slík skrá
og útreikningar í samræmi við
flugrekstrarhandbók flugrekand-
ans, hefðu sýnt honum að flugvélin
var ofhlaðin fyrir flugtak. Afrit
kom ekki fram á brottfararstað og
hún fannst ekki í flakinu.
3.10 Farþegalisti var ekki gerð-
ur fyrir flugtak frá Vestmanna-
eyjum samkvæmt ákvæðum loft-
ferðalaga.
3.11 * Eldsneytis- og olíuskrá
hafði ekki verið haldin samkvæmt
reglum frá því að flugrekandinn
tók flugvélina í notkun. Flugmað-
urinn hafði því ekki tiltækar ná-
kvæmar upplýsingar um raun-
verulega eyðslu flugvélarinnar
miðað við flugtíma.
3.12 * Flugmaðurinn virðist ekki
hafa gengið úr skugga um hvert
eldsneytismagnið á tönkum flug-
vélarinnar var fyrir brottförina frá
Vestmannaeyjum.
3.13 * Flugmaðurinn virðist hafa
vanmetið eldsneytiseyðslu flugvél-
arinnar og ofmetið eldsneytismagn
í tönkum hennar fyrir brottförina
frá Vestmannaeyjum, en þá hafði
flugvélin mun minna flugþol en
hann áætlaði.
3.14 Ekki fundust bilanir við
rannsókn slyssins, sem skýrt gætu
afltap hreyfilsins.
3.15 * Gangtruflanir og afltap
hreyfilsins urðu líklegast vegna
skorts á eldsneyti til hreyfilsins,
vegna þess að eldsneyti á þeim
tanki sem stillt var á gekk til
þurrðar.
3.16 Í aðfluginu til Reykjavík-
urflugvallar skapaðist aukaálag á
flugmanninn vegna annarrar flug-
umferðar, þar á meðal var Do-228
með kallmerkinu ICB-753
í blindaðflugi frá Skaga
braut 20, en fjórar flugvé
uðu lendingu nánast á sam
3.17 Flugumferðarstj
flugturninum mat það sv
ferðin gengi greiðast fyrir
því að láta ICB-753 hald
fluginu áfram og láta TF-G
var í sjónflugi kominn á
það að komast á lokastefn
vinstri hring og koma til l
á eftir ICB-753. Hann gaf
GTI fyrirmæli um að beyg
vinstri sem og flugmaðuri
3.18 Af óljósri ástæðu
TF-GTI var
Niðurstö
lögur í ö
Rannsóknarne
helstu niðurst
Skerjafirði í þr
í fjórða kaflanu
yggisátt, sem
herra og Flugm
fá viðbrögð Le
niðurstöðum
AÐILD ÍSLANDS AÐ
SCHENGEN-SAMSTARFINU
Ámorgun, 25. marz, gerist Íslandfullgilt aðildarríki Schengen-sáttmála Evrópusambandsins.
Þar meðverður Ísland þátttakandi í
umfangsmesta vegabréfasamstarfi
sem um getur; fimmtán ríki opna innri
landamæri sín og afnema vegabréfaeft-
irlit með fólki, sem ferðast innan svæð-
isins. Hugsjóninni um Evrópu án
landamæra hefur verið hrint í fram-
kvæmd og Íslendingar geta nú ferðazt
allt austur til Grikklands og suður til
Spánar án þess að þurfa að undirgang-
ast vegabréfaeftirlit.
Aðildin að Schengen var nauðsynleg
til að takast mætti að viðhalda einum
jákvæðasta ávinningi norræns sam-
starfs, vegabréfafrelsinu sem gilt hefur
á Norðurlöndum í meira en fjóra ára-
tugi. Það hefði orðið alvarlegt áfall fyr-
ir samstarf Norðurlandanna, hefðu ný-
ir múrar verið reistir á milli þeirra nú á
tímum aukins frelsis í alþjóðasamskipt-
um.
Jafnframt er vegabréfafrelsið innan
Evrópusambandsins þáttur í að full-
komna hinn hindrunarlausa innri
markað, þar sem frjáls för fólks yfir
landamæri er einn af lykilþáttunum.
Ísland og Noregur gerðust þátttakend-
ur í innri markaðnum með aðild sinni að
Evrópska efnahagssvæðinu og Scheng-
en-samstarfið er að mörgu leyti eðli-
legt framhald þess samstarfs.
Það að Evrópusambandið skyldi
vera reiðubúið að veita Íslandi og Nor-
egi jafnvíðtækan aðgang að ákvarðana-
tökuferli Schengen-samstarfsins og
raun ber vitni er einstakt í samstarfi
sambandsins við önnur ríki. Íslenzk
stjórnvöld leggja réttilega áherzlu á að
nýta þau tækifæri til áhrifa á stefnu-
mótun ESB, sem þessi aðgangur veitir.
Morgunblaðið hefur í þessari viku
birt ýtarlegan greinaflokk um aðild Ís-
lands að Schengen-samstarfinu og
áhrif hennar. Í honum hefur ljósi verið
varpað á ýmsar athyglisverðar hliðar
samstarfsins, ekki sízt þær sem snúa að
eftirlitinu á ytri landamærum Schen-
gen-svæðisins, sem er styrkt talsvert
til að vega upp á móti hugsanlegum nei-
kvæðum áhrifum vegabréfafrelsisins.
Til dæmis er ljóst að með aðild að
Schengen stóraukast möguleikar lög-
reglu og tollgæzlu til að hafa eftirlit
með fíkniefnasmygli og ýmiss konar al-
þjóðlegri glæpastarfsemi annarri. Toll-
eftirlit tekur ekki breytingum með
þátttöku í Schengen-samstarfinu,
þvert á móti verður allt eftirlit og við-
búnaður vegna afbrota mjög eflt á
Keflavíkurflugvelli. Íslenzk löggæzlu-
yfirvöld fá nú hins vegar aðgang að um-
fangsmiklum gagnagrunni Schengen-
ríkjanna, þar sem skráðir eru meira en
milljón eftirlýstir einstaklingar og
óæskilegir útlendingar, auk um níu
milljóna færslna um stolna bíla, per-
sónuskilríki o.fl. Þá hefur samstarf ís-
lenzku lögreglunnar við löggæzluyfir-
völd í öðrum ríkjum Schengen-
samstarfsins verið stóreflt.
Ísland hefur jafnframt tekið upp
samstarf við önnur ríki Schengen-sátt-
málans um útgáfu vegabréfsáritana.
Vegabréfsáritun til eins Schengen-rík-
is gildir nú fyrir allt svæðið og felst í
ýmsum tilfellum í því hagræði fyrir
ferðamenn. Með samningum Íslands
við utanríkisþjónustu hinna norrænu
ríkjanna um útgáfu vegabréfsáritana
verður jafnframt unnt að nálgast vega-
bréfsáritun til Íslands mun víðar en nú
er mögulegt.
Þá fylgir aðild að Schengen að Ísland
tekur upp samstarf við önnur aðildar-
ríki um móttöku flóttamanna og hæl-
isleitenda og breytist málsmeðferð í
slíkum málum talsvert vegna aðildar
Íslands að svokölluðum Dyflinnar-sátt-
mála.
Þótt aukið eftirlit og aukið samstarf
lögregluyfirvalda sé tvímælalaust af
hinu góða, vakna jafnframt spurningar
um áhrif þess á persónuvernd og rétt-
indi einstaklinga. Ljóst er að full þörf
er á eftirliti með eftirlitinu; að þess sé
gætt að upplýsingar um einstaklinga
séu t.d. ekki skráðar í Schengen-
gagnagrunninn nema brýn ástæða sé
til, að fólk geti krafizt þess að fá að vita
hvort það sé skráð í grunninn og hvers
vegna og að tryggt sé að persónuupp-
lýsingar séu ekki misnotaðar eða að-
gengilegar óviðkomandi aðilum. Full
ástæða er til að Persónuvernd, sem lög-
um samkvæmt hefur eftirlitshlutverki
að gegna gagnvart upplýsingakerfi
Schengen-samstarfsins, gangi eftir því
að öllum reglum sé fylgt til hins ýtr-
asta.
Þá hefur verið gagnrýnt að yfirvöld í
einstökum Schengen-ríkjum geti skráð
útlendinga sem óæskilega í gagna-
grunninn á pólitískum forsendum,
fremur en vegna þess að þeir hafi fram-
ið einhver afbrot. Ljóst er að skilgrein-
ingar á því hverjir eru óæskilegir og
hverjir ekki geta verið afar mismun-
andi á milli landa. Það getur hins vegar
ekki verið markmiðið að hækka
múrana á ytri landamærum Evrópu um
leið og innri landamærin hverfa að
mestu. Íslenzk stjórnvöld eiga því að
beita sér fyrir því að framkvæmd þessa
eftirlits komi ekki niður á fólki, sem
ekkert hefur brotið af sér annað en
e.t.v. að hafa í frammi pólitísk mótmæli
við stefnu einhvers af Schengen-ríkj-
unum.
Ýmsir hafa orðið til að gagnrýna
þann kostnað, sem íslenzk stjórnvöld
hafa lagt í vegna Schengen-samstarfs-
ins. Miðað við ávinning Íslands af sam-
starfinu virðist sá kostnaður ekki of
mikill. Kostnaður vegna stækkunar
Leifsstöðvar er sérstakt mál. Flugstöð-
in var orðin alltof lítil og löngu tíma-
bært að hún yrði stækkuð, burtséð frá
aðild Íslands að Schengen. Í stækkun
flugstöðvarinnar og aðildinni að vega-
bréfasamstarfinu geta falizt sóknar-
færi fyrir ferðaþjónustuna, ef hægt er
að fá erlenda ferðamenn frá löndum ut-
an Schengen-svæðisins til að fljúga um
Keflavík vegna þess að þar sé skilvirk
vegabréfaskoðun og greið leið inn á
Schengen-svæðið. Innan svæðisins get-
ur skipt máli að Ísland sé þátttakandi í
samstarfinu því að fólk vilji frekar
ferðast til landa, þar sem engar hindr-
anir eru á landamærunum.
Á heildina litið felur aðild Íslands að
Schengen í sér marga kosti og jafn-
framt ýmis tækifæri, sem mikilvægt er
að reyna að nýta. Ekki má þó horfa
framhjá göllunum, einkum og sér í lagi
varðandi persónuvernd og réttindi ein-
staklinga. Litlar umræður hafa farið
fram um þann þátt málsins hér á landi,
t.d. miðað við það sem gerzt hefur í
Noregi. Full ástæða er til að þær um-
ræður fari fram og að stjórnvöld fái
aukið aðhald, um leið og löggæzlan efl-
ist.
STURLA Böðvarsson,samgönguráðherra, segirmikilvægt að fara vand-lega yfir þær tillögur sem
komi fram í skýrslu Rannsóknar-
nefndar flugslysa um slysið í
Skerjafirði og fara eftir þeim
ábendingum sem þar komi fram.
Varðandi þá tillögu Rannsókn-
arnefndar flugslysa sem hún bein-
ir til samgönguráðherra að hann
endurskoði ákvörðun um ótíma-
bundna frestun gildistöku reglna
sem byggist á JAR-OPS 1 og
varðar flugrekstur minni flugvéla
í atvinnuskyni, sagði Sturla að
þessi frestun hefði verið ákveðin
með reglugerð árið 1998. Frest-
urinn væri tímabundinn og Flug-
málastjórn hefði verið að undir-
búa upp á síðkastið að þessar
reglur yrðu staðfestar, þannig að
þær næðu til allra flugvéla. Hann
gerði ráð fyrir að þær yrðu settar
að fullu í gildi áður en langt um
liði, en Flugmálastjórn hefði haft
samflot með flugmálastjórnum á
öðrum Norðurlöndum í þeim efn-
um. „Við höfum gert ráð fyrir því
að þetta yrði staðfest á árinu,
þannig að sú ábending verður að
fullu tekin til greina,“ sagði
Sturla.
Hann sagði að í skýrslunni
kæmi fram að allt benti til þess að
vélin hefði orðið bensínlaus og það
væri út af fyrir sig hlutur sem yrði
vart hægt að koma í veg fyrir
nema fyrst og fremst með skýrum
reglum gagnvart flugmönnum í
rekstri viðkomandi flugfélags.
„Að öðru leyti vil ég ekki tjá mig
mikið um skýrsluna á þessu stigi.
Það er stutt síðan ég fékk hana í
hendurnar, en ráðuneytið mun að
sjálfsögðu fara mjög vandlega yfir
þetta allt saman og við
auðvitað huga að öllu því s
ur mætti fara,“ sagði Sturl
Rannsóknarnefnd fl
beinir einnig tillögum ti
málastjórnar og Sturla sa
spurður hvort almennt ta
bóta væri þörf á reglum se
á þessu sviði að flugmenn
félög þyrftu að undirganga
ur samkvæmt sínu innra
Flugmálastjórn hefði síðan
með því sem lyti að reglu
vörðuðu flugreksturinn.
hefði Alþjóðaflugmálast
eftirlit með flugmálastjórn
á síðasta ári hefði verið g
stök úttekt á starfsemi Flu
stjórnar. Það væri sú t
sem stjórnvöld hefðu í
landi fyrir sig fyrir því að
brögðin hjá flugmálastjó
væru sem allra best og þ
Sturla Böðvarsson samgönguráðh
Mikilvægt að fara va
yfir tillögur í skýr