Morgunblaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 21
Full búð af
glæsilegum
undirfatnaði
undirfataverslun,
1. hæð Kringlunni, sími 553 7355
dd
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 21
jafnvel lagið á meðan þeir greiða úr
netunum. Þeir gera að öllum fiski
og hirða bæði gotu og lifur. Það er
prýðileg búbót því mjög gott verð
hefur fengist fyrir gotuna, vel yfir
500 krónur fyrir kílóið. Múkkinn
lætur sér hinsvegar fátt um söng-
inn finnast og bíður rólegur við
skipshlið eftir bitanum sínum.
Afkoman erfið þegar
stólað er á leigumarkaðinn
Gullfaxi GK er kvótalaus bátur
og því stólar útgerðin á kvóta frá
leigumarkaðnum. Kristinn Arnberg,
útgerðarmaður bátsins, segir verðið
hafa hækkað verulega á Kvótaþingi
síðustu vikur og það geri útgerðinni
verulega erfitt fyrir. „Afkoman
verður skiljanlega mjög erfið þegar
50 til 60% af aflaverðmætinu fer í
kvótaleigu, markaðskostnað og ann-
að. Við erum búnir að leigja kvóta
fyrir vel yfir 10 milljónir frá ára-
mótum og fjármagnskostnaðurinn
því orðinn verulega hár. Hann er
hinsvegar ekki tekinn af nema þeim
40% sem eftir standa og þá á líka
eftir að borga mannskapnum og all-
an útgerðarkostnað,“ segir Krist-
inn.
Gullfaxi leggur aflann upp hjá
fiskverkun í Keflavík og fyrir hann
fæst ágætt verð, rúmar 200 krónur
fyrir kílóið. „Það er samt sem áður
erfitt að láta enda ná saman við
þessar aðstæður. Ég vil að stjórn-
völd ákveði í eitt skipti fyrir öll
hvort þessi bátaflokkur á að lifa eða
ekki. Það er heiðarlegast að taka
veiðileyfið af þessum kvótalausu
bátum og banna þeim að róa eða þá
að breyta reglunum þannig að þeim
verði gert kleift að róa,“ segir
Kristinn.
Róið stíft í skugga verkfallsins
Það er róið stíft þessa dagana,
alla daga vikunnar, enda vilja menn
nýta tímann sem best fram að verk-
falli sjómanna, sem á að hefjast 1.
apríl nk. Kristinn segist ætla að róa
sjálfur í verkallinu, með tveimur
sonum sínum, þeim Óðni og Kristni.
„Það verður erfitt að vera bara þrír
á, en við verðum þá bara með færri
trossur. En maður verður víst að
reyna að bjarga sér. Verst að mað-
ur skuli ekki hafa verið duglegri við
að framleiða fleiri sjómenn. Það
hefði verið gott að hafa í eins og
eina áhöfn í verkfallinu,“ segir
Kristinn útgerðarmaður.
Á landstíminu er tíminn nýttur til að spúla dekkið og ganga frá.